Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Meðstofnandi Google talinn tengjast Jeffrey Epstein en finnst ekki – Hvar er Larry Page?

Meðstofnandi Google talinn tengjast Jeffrey Epstein en finnst ekki – Hvar er Larry Page?
Larry Page Mynd: Trausti Hafsteinsson

Hinar banda­rísku Jóm­frú­areyjur hafa ekki náð að stefna með­stofn­anda Google, Larry Page, vegna mögu­legra tengsla hans við barn­a­níð­ing­inn Jeffrey Epstein, vegna þess að hann finnst ekki, sam­kvæmt skjölum alrík­is­dóms­stóla.

Daily Mail segir frá því að dóms­mála­ráð­herra banda­rísku Jóm­frú­areyja segi að rann­sak­endur hafi reynt að finna út hvar Page býr, svo hægt væri að birta honum stefn­una. Eftir að þeir fundu fjögur mögu­leg heim­i­i­is­föng, sem engin voru gild, hafa sak­sókn­arar farið fram á að alrík­is­stjórnin leyfi að Page verði boð­aður í gegnum Alphabet, móð­ur­fé­lag Google, þar sem hann situr enn í stjórn þess.

Á sjálfur einkaeyjur

Tillagan um að stefna Page með „öðrum hætti“ var lögð fram síð­ast­lið­inn fimmtu­dag og er hluti af máli þar sem Jóm­frú­ar­eyjar halda því fram að JPMorgan hafi auð­veldað Epstein að halda úti kyn­lífsm­ansals­hring með því að sjá um greiðslur hans til sam­verka­manna sinna og fórn­ar­lamba.

Dval­ar­staður Page er að mestu á huldu en í des­em­ber var sagt að hann hefði eytt mestum hluta Covid-far­ald­urs­ins á einum af hans einka­eyjum sem farið hafa fjölg­andi innan banda­rísku Jóm­frú­areyja.

Page keypti eyj­una Hans Lollik og minni nágranna­eyju hennar, Little Hans Lollik, árið 2014 fyrir 23 milljón dala eða um einn millj­arð króna.

Hans Lollik

JPMorgan

Sak­sókn­arar segja að Epstein „kunni að hafa vísað eða reynt að vísa Page á JPMorgan.“

Samkvæmt skjali í blað­inu segir að Larry Page, með­stofn­andi og með­eig­andi Alphabet Inc, sem er móð­ur­fé­lag Google, sé eigna­mik­ill ein­stak­lingur sem Epstein hafi mögu­lega vísað eða gert til­raun til þess að vísa á JPMorgan.

Page er einn af þó nokkrum við­skipta­mönnum og millj­arða­mær­ingum sem hin Kar­ab­íska rík­is­stjórn hefur stefnt vegna ásak­ana um tengsl við JPMorgan og Epstein. Sak­sókn­arar Jóm­frúa­eyja höfðu áður stefnt fyrrum fram­kvæmd­ar­stjóra JPMorgan, Jes Staley, hinum með­stofn­anda Google, Sergey Brin og fyrrum fram­kvæmd­ar­stjóra Disney, Michael Ovitz.

Málið kom upp aðeins vikum áður en núver­andi for­stjóri JPMorgan, Jamie Dimon verður lát­inn taka pok­ann sinn, síðar í mán­uð­inum.

Bankinn er sak­aður um að sjá um 55 reikn­inga Epsteins á árunum 1998 til 2013, mörgum árum eftir að hann var fyrst hand­tek­inn fyrir að níð­ast á fjórtán ára stúlku árið 2006.

Þá hefur fjöldi kvenna sakað Epstein um kyn­ferð­is­lega mis­notkun sem fram fór meðal ann­ars á einka­eyju hans, Little St. James, sem notuð var sem mið­stöð mansals­hrings þar sem Epstein flutti inn stúlkur undir lög­aldri svo hægt væri að mis­nota þær kyn­ferð­is­legar. Fjöldi þekktra manna áttu vin­gott við Epstein, þar á meðal Andrés breta­prins, Bill Gates, Stephen Hawkins og Bill Clinton.

Jeffrey Epstein lést í fang­elsi 2019 en opin­beru dán­ar­or­sökin er sjálfs­víg en margt bendir til morðs.

Stephen Deckoff, athafna­maður og fjár­festir hefur nú keypt eyju Epsteins og hyggst breyta henni í lúxus dval­ar­stað.

Árið 2021 var sagt frá því í fréttum á Fiji að Larry Page hafi gefið Fiji-eyjum Covid-sjúkra­gögn í far­aldr­inum, sam­kvæmt miðl­inum Insider en fréttin hvarf á dul­ar­fullan hátt. Þar sást Page á eyj­unni Namotu. Heim­ildir sögðu Insider að heil­brigð­is­yf­ir­völd á Fiji hafi beðið um að fréttin yrði tekin niður, því upp­lýs­ing­arnar hafi aldrei átt að koma fyrir sjónir almenn­ings.

Enn er óvíst hvar Page er stað­settur síðan hann var á Fiji en leitin heldur áfram.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco