Fallið hefur verið frá launahækkunum bæjarfulltrúa í Reykjanesbæ.
Á fundi bæjarráðs í Reykjanesbæ í gær, 1. júní, samþykktu bæjarráðsfulltrúar samhljóða að falla frá fyrirhuguðum launahækkunum samfara hækkun þingfararkaups. Víkurfréttir segir frá þessu.
Laun bæjarfulltrúa Reykjanesbæjar ættu, samkvæmt samningum, að hækka í samræmi við þingfararkaup í júlí næstkomandi. Launin eru reiknuð þannig að þau eru hlutfall af launum þingmanna og teljast til launa fyrir hlutastörf.
Mikil pressa er í þjóðfélaginu, bæði frá almennum borgurum og verkalýðsfélögunum, á að launahækkanir æðstu ráðamanna landsins verði endurskoðuð, sérstaklega í ljósi efnahagsstöðunnar sem ríkir í landinu. Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur er að skoða sína launahækkun en Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra hefur sagt að erfitt sé að finna fyrirkomulag um launahækkanir þingmanna og annarra ráðamanna, sem sátt er um.































Athugasemdir