Nýjir stjórnendur hafa verið skipaðir tímabundið, hjá slökkviliði Fjarðabyggðar eftir að slökkviliðsstjóri og aðstoðarslökkviliðsstjóri létu af störfum um síðustu mánaðarmót. Óskuðu þeir eftir því að stíga til hliðar eftir að svört skýrsla mannauðsfyrirtækisins Attentus leit dagsins ljós en henni var ætlað að rannsaka ásakanir um óviðeigandi hegðun stjórnendanna.
Sjá einnig: „Svört skýrsla“ um slökkvilið Fjarðabyggðar – Einelti og kynferðisleg áreitni í æðstu stöðum
Sakaðir um óviðeigandi hegðun
Fjarðabyggð hefur loksins rofið þögnina um skýrluna og starfslok yfirmanna slökkviliðs sveitarfélagsins en sveitarstjórnarmenn funduðu með blaðamanni Austurfréttar sem svo birti frétt í dag um málið. Mannlíf hafði ítrekað beðið um svör en samskiptastjóri sveitarfélagsins hundsaði spurningarnar.
Samkvæmt frétt Austurfréttar hefur vinnuhópur með utanaðkomandi sérfræðingum verið skipaður til að bæta andrúmsloftið í slökkviliðinu til frambúðar. Segir bæjarstjórinn að búast megi við að það muni taka tíma að koma starfsandandum á góðan stað.
Líkt og fram hefur komið í fréttum Mannlífs um málið, voru yfirmennirnir sakaðir um óviðeigandi hegðun, einelti og slaka stjórnarhætti. Þá var aðstoðarslökkviliðsstjórinn sakaður um kynferðislega áreitni gagnvart nokkrum undirmönnum sínum.
Forstöðumaður stjórnsýslu- og upplýsingamála hjá Fjarðabyggð, Þórður Vilberg Guðmundsson, segir í samtali við Austurfrétt að í desember í fyrra hafi kvartanir um starfsanda og stjórnunarhætti í slökkviliðinu, borist bæjarráði formlega en það fer með málefni slökkviliðisins innan stjórnkerfis sveitarfélagsins.
Þær ásakanir hafi bæjarráð fjallað um og í kjölfarið farið í ferli sem leiddi til þess að strax var leitað að utanaðkomandi aðila til að rannsaka þær. Attentus varð fyrri valinu vegna þess að það var tilbúið að fara hraðast í þá vinnu. Í janúar byrjuðu sérfræðingar fyrirtækisins að rannsaka málin.
Tjá sig ekki um einstök atriði
Þórður segir aðspurður hvort stjórnendur sveitarfélagsins hafi vitað af ásökununum fyrr en hefur komið fram, sagði hann að einhverjir starfsmenn hafi heyrt sögusagnir af slíku en að sveitarfélagið geti ekki unnið að neinum málum á grundvelli sögusagna. Þá sagði hann að enginn hafi verið sendur í leyfi á meðan á rannsókninni stóð en að Fjarðabyggð svari að öðru leyti ekki spurningum um veikindaleyfi einstakra starfsmanna, að öðru leyti en því að fyrir þeim leyfum eru ýmsar ástæður. Samkvæmt heimildum Mannlífs hefur aðstoðarslökkviliðsstjórinn verið í leyfi í talsverðan tíma.
Er Þórður var spurður hvort Attentus hafi staðfest í skýrslu sinni ásakanirnar á hendur yfirmönnum slökkviliðsins, svaraði hann á diplomatískan hátt. „Í skýrslunni koma fram ákveðnar ásakanir sem Attentus skoðar og metur. Niðurstaðan er að starfsandi og vinnulag innan slökkviliðsins hafi ekki verið í lagi. Við tjáum okkur ekki um einstök atriði.“
Föstudaginn 31. mars á þessu ári skilaði Attentus skýrslu sinni til Fjarðabyggðar en tíma setningin var frekar slæm þar sem bæði stjórnendur sveitarfélagsins og viðbragðsaðilar, að meðtöldu slökkviliðinu, sem annast meðal annars sjúkraflutningar á svæðinu, höfðu staðið í ströngu vegna snjóflóða í Neskaupsstað sem og vegna hættuástands af völdum ofanflóða um næstum allt sveitarfélagið. Þá urðu bæjarstjóraskipti á sama tíma en þá tók Jóna Árný Þórðardóttir við af Jóni Birni Hákonarsyni.
Sérfræðihópur skipaður
Áður en Jóna og Þórður, ásamt Eyþóri Evarðssyni, M.A. í vinnusálfræði, funduðu með starfsfólki þann 17. apríl, voru niðustöður skýrslunnar kynntar innanhús hjá Fjarðarbyggð. Þá var um leið virkjaður frestur sem hlutaðeigandi starfsmenn slökkviliðsins höfðu til andmælaréttar. Líkt og fram hefur komið, óskuðu yfirmennirnir eftir því að hætta störfum og gerður þeir það um síðustu mánaðarmót.
„Það bera allir hag slökkviliðsins fyrir brjósti, þar með talið þessir yfirmenn. Því víkja þeir með hagsmuni slökkviliðsins að leiðarljósi,“ sagði Jóna Árný í samtali við Austurfrétt. Er hún var spurð nánar um hvort þeir hafi átt frumkvæði að því að víkja úr starfi svaraði hún: „Þetta er samkomulag, lyktir verða aldrei þessar nema að undangengnu samtali. Þetta ferli hefur tekið allan maí með andmælaréttinum. Þegar leið á mánuðinn teiknaðist þessi niðurstaða upp. Það er engum sagt upp, það er þeirra niðurstaða og ósk að það væri öllum fyrir bestu að þeir stigju til hliðar.“
Ekki fyrstu vandræði slökkviliðsins
Jóna sagði aðspurð hvort gerðir hafi verið starfslokasamningar við yfirmenninar, en það er ein af þeim spurningum sem Mannlíf hefur beðið eftir svarið við, svaraði hún: „Við tjáum okkur ekki um það. Þetta er bara niðurstaðan – að þeir stigi út.“
Fram kemur í frétt Austurfréttar að Vinnueftirlitið hafi eftirlit með vinnuverndarlögum, en bæði einelti og kynferðisleg áreitni falla undir þau. Aðspurð hvort einhverjum málum hafi verið vísað til eftirlitsins frá slökkviliðinu segjast Jóna og Þórður ekki geta tjáð sig um mál einstakra starfsmanna. Þó segja þau að engar áminningar hafa verið veittar í ferlinu.
Vandræðagangurinn hjá slökkviliðinu í Fjarðabyggð er ekki nýr af nálinni en er þetta í annað skiptið á frekar stuttum tíma sem vandamál koma þar upp. Slökkviliðismanni var sagt upp sumarið 2019 og annar áminntur eftir kvartanir samstarfskvenna. Var Fjarðabyggð síðar dæmd til að greiða bætur til þess er sagt var upp, í ljósi þess að starfsmenn sveitarfélagsins höfðu ekki rannsakað málið nægilega vel. Á þessum tíma voru starfsmannamál sveitarfélagsins til meðferðar innan bæjarkerfisins en tvö ráðgjafarfyrirtæki höfðu komið að því að reyna að laga starfsandann innan slökkviliðins. Vegna aldurs hættu þáverandi yfirmenn hjá liðinu en vorið 2021 voru þeir stjórnendur ráðnir sem nú voru að hætta.
„Okkur þykir mjög miður að vera komin á þennan stað, þetta er ekki staða sem neinn vill vera í. Ég get ekki tjáð mig um fortíðina að öðru leyti en því en allir sem að þessum málum koma hefðu viljað sleppa því að vera í þessari stöðu. Þessi staða endurspeglar ekki Fjarðabyggð sem vinnustað. Hjá okkur starfa yfir 400 manns í ýmsum stofnunum. Það er ekki mín upplifun eftir að hafa tekið við sem bæjarstjóri að staðan sé svona víða, þetta er staðan í einni starfseiningu. Við getum samt ekki annað en tekist á við það sem við erum með í höndunum núna og erum að gera það,“ segir Jóna Árný í samtali við Austurfrétt, um þá staðreynd að tveimur árum eftir síðustu umskipti innan liðsins virðist aftur vera komið á byrjunarreit.
Júlíus Albertsson hefur verið settur aðstoðarslökkviliðsstjóri og Indriði Margeirsson yfirvarðstjóri, báðir til bráðabirgða. Þá hefur Fjarðabyggð aukreitis ráðið þrjá ráðgjafa til að vinna að úrbætum með sér og slökkviliðinu. Auk Eyþórs eru í hópnum sérfræðingur í mannauðsmálum sem og öryggisráðgjafi. Þá bætist við í haust sérfræðingur í málefnum slökkviliða. Þau Jóna og Þórður, ásamt bæjarráði, fóru á fund við slökkviliðið á mánudaginn.
„Þessi hópur er kominn í fullan gang við búa til skipulag og áætlanir. Það gengur vel. Allir sem koma að þessu verkefni vinna að því af heilum hug. Ráðgjafarnir voru hjá okkur síðast á fimmtudag og verða hjá okkur reglulega. Næsti fasi í uppbyggingunni hefst í haust þegar sérfræðingur um málefni slökkviliða kemur til okkar. Sérfræðingarnir sem eru með okkur nú hætta ekki þá heldur fylgja okkur það til okkur líður betur með stöðuna. Við höfum að undanförnu skipulagt sumarfrí og annað sem þarf til að sumarið gangi upp eins og það eigi að gera. Það hafa allir unnið saman að því,“ segir Jóna Árný.
Segist Jóna finna fyrir stuðningi frá starfsfólki slökkviliðins við vinnuna. „Já, mér finnst ég gera það. Við erum með lið sem vinnur að heilindum að því sem þarf.“
Mun taka tíma
Tekur Jóna Árný þó fram að umbreytingin gerist ekki með einum smelli heldur taki það sinn tíma. „Við gefum okkur að þurfa að halda vel utan um liðið í tvö ár til að komast á rétt ról. Það er erfitt að gefa út tímalínur en ef ég horfi raunsætt á hlutina þá myndi ég segja að eftir ár værum við komin á góðan stað og eftir ár í viðbót geta sagt að við hefðum komist alla leið. Til þess þarf að fara í gegnum ýmsa þætti og þess vegna fáum við sérfræðinga úr ólíkum áttum með okkur.
Með þessari vinnu eru málin komin í ákveðinn farveg sem við vonumst til að skapi frið og grunn að góðri og uppbyggilegri vinnu. Það ætla allir að gera þetta vel. Ekkert okkar sem komum að þessu máli bað um að vera í þessari stöðu en við verðum að vinna okkur saman út úr því,“ segir Jóna Árný að lokum.
Spurning um starfslokasamning
Mannlíf ræddi við sérfræðing í stjórnsýslulögum sem sagði erfitt að segja til um starfslokasamning í tilfellum sem þessum, það væri mögulegt að um væri einfaldlega að ræða uppgjörf vegna uppsagnar að ræða, sem yfirmennirnir hafi áunnið sér. „Þó að það sé stundum talað um starfslokasamning, það þýðir oft ekkert meira en þrír mánuðir. Þetta hugtak er bara notað svona. Ég held að það sé mjög sjaldgæft að fólki sé borgað eitthvað mikið umfram þennan þriggja mánaða uppsagnarfrétt,“ sagði sérfræðingurinn en tók fram að hann sé að tala almennt um svona mál, ekki mál Fjarðabyggðar enda hafi hann ekki sérstaka vitneskju um það mál.































Athugasemdir