Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Nanna verslar ekki umhugsunarlaust – Hendir aldrei neinu sem hægt er að borða

Nanna verslar ekki umhugsunarlaust – Hendir aldrei neinu sem hægt er að borða

Nanna Rögn­valds­dóttur er neyt­andi vik­unnar að þessu sinni. Hún er 66 ára, móðir, amma og langamma, ein­búi í Fossvogi. Nanna var rit­stjóri hjá Iðunni og síðar For­lag­inu en fór á eft­ir­laun fyrir rúmu ári. Hún hefur þó enn nóg að starfa, þýðir, les próf­arkir, skrifa bækur og fleira. Nanna hefur skrifað um 25 mat­reiðslu­bækur en er hætt því núna og hef snúið sér að öðru.

Gerir þú verð­sam­an­burð á vörum og þjón­ustu ?

Já, yfir­leitt. Ég kaupi sjaldn­ast neitt án þess að líta á verð­mið­ann og reyni að leggja á minnið hvað hlut­ur­inn kostar á hverjum stað til að hafa sam­an­burð. Þegar ég kem að kass­anum veit ég yfir­leitt nokkurn veg­inn hvað ég mun þurfa að borga fyrir inn­kaupin. Ég kaupi samt ekk­ert alltaf endi­lega það sem er ódýr­ast, það er margt fleira sem skiptir máli.

Hvernig sparar þú í mat­ar­inn­kaupum?

Ég ber sam­an­burð á verði milli versl­ana, kaupi oft vörur sem eru á til­boði, t.d. vegna dag­setn­ingar – þó ekki hvaða vöru sem er – reyni að finna hag­stæð­ustu stærð­ar­ein­ing­arnar (þær stærstu eru ekki endi­lega hag­kvæm­astar þegar upp er staðið, síst fyrir ein­búa). Nota fryst­inn tölu­vert, bæði til að geta nýtt mér til­boð og til að skipta niður stærri stykkjum og ein­ingum og geyma. Ég rækta mínar eigin krydd­jurtir og fleira. Ég kaupi aldrei til­búna rétti og næstum aldrei skyndi­bita eða mikið unnar mat­vörur.

End­ur­nýtir þú? Ertu með ráð til ann­arra?

Ég reyni að nýta alla mat­ar­af­ganga og sumar bæk­urnar mínar eru einmitt með leið­bein­ingar um nýt­ingu á afgöngum. Ég hendi helst aldrei neinu sem hægt er að borða. Áður keypti ég dálitið af not­uðum fötum og henti tölu­verðu á móti í fatagáma. Flest hús­gögnin mín eru keypt á forn­sölum og mest­allt leir­tauið líka.

Hvað hefur þú í huga þegar þú kaupir mat, fatnað og gjafir?

Að mat­ur­inn sem ég elda úr hrá­efn­inu verði góður og fjöl­breyttur. Að fötin séu fal­leg og helst lit­rík og end­ist vel; að ég geti notað þau í mörg ár og að þau passi því að ég er löngu búin að átta mig á að það eru litlar líkur á að ég grenn­ist ofan í flík­ina. Að gjaf­irnar séu eitt­hvað sem gleður við­tak­and­ann og hafi gjarna eitt­hvert nota­gildi fyrir hann.

Hverju átt þú erf­ið­ast með að draga úr kaupum á?

Einu sinni hefði ég sagt „mat­reiðslu­bókum“ en nú er ég hætt að kaupa þær og meira að segja byrjuð að fækka þeim. Ætli ég verði ekki að segja utan­lands­ferðum? Mér finnst gaman að koma á nýja staði og upp­lifa eitt­hvað nýtt og nú hef ég tíma til að ferð­ast. En ég geri mér grein fyrir umhverf­is­á­hrifum flug­ferða og reyni að fækka þeim og a.m.k. að kolefn­is­jafna.

Skiptir umhverf­is­vernd þig máli?

Já, vissu­lega. Á móti flug­ferð­unum kemur að ein­hverju leyti að ég hef aldrei átt bíl og fer minna ferða með strætó eða gang­andi. Ég flokka allt sorp (já, fern­urnar líka) og er að mestu leyti hætt að nota kemísk efni til hrein­gern­inga eftir að ég eign­að­ist gufu­hreinsi­vél. Margt af því sem maður er að gera skiptir kannski ekki miklu í stóra sam­heng­inu en margt smátt gerir eitt stórt.

Annað sem þú vilt taka fram?

Það eru tvær reglur sem ég reyni að hafa í mat­ar­inn­kaupum: að kaupa helst aldrei neitt (fyrir utan dag­legar nauð­synjar) alveg umhugs­un­ar­laust. Og að fara helst aldrei svöng út í búð. Ég hugsa að þetta tvennt hafi sparað mér tölu­vert í áranna rás.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ