Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Líf fjögurra stúdenta endaði snögglega á Öxnadalsheiði – Flugslysið sem lamaði kennslu árið 1958

Líf fjögurra stúdenta endaði snögglega á Öxnadalsheiði – Flugslysið sem lamaði kennslu árið 1958
Blessuð sé minn­ing þeirra Mynd: Trausti Hafsteinsson

Seint í mars árið 1958 lögðu fjórir stúd­entar úr Mennta­skól­anum á Akureyri af stað í flug­ferð frá Reykja­vík. Var ætlun þeirra félaga að heim­sækja gamla vini á Akureyri og um leið gamla mennta­skól­ann sinn en þeir höfðu allir útskrif­ast úr honum ári áður. Einn þeirra, Geir Geirsson hafði lokið einka­flug­prófi og flaug Cessna 172 vél­inni. En á leið­ar­enda komust pilt­arnir ekki því brak flug­vél­ar­innar fannst á Öxna­dals­heiði en þeir lét­ust allir.

Um er að ræða eitt sorg­leg­asta flug­slys Íslands­sög­unnar því þarna fór­ust fjórir ungir menn í blóma lífs­ins á einu bretti.

Vísir sagði frá sorg­ar­tíð­und­unum á sínum tíma:

Fjórir tví­tugir menn far­ast í flug­slysi á Öxna­dals­heiði.

Flug­vélin hrap­aði nokkra kíló­metra fyrir vestan Bakkasel

Flakið fannst í gær­morgun og menn­irnir látnir, er að var komið.

Það svip­lega slys varð síð­degis á laug­ar­dag­inn að fjórir ungir menn fór­ust í flug­slysi á Öxna­dals­heiði, skammt fyrir ofan Bakkasel og rétt við þjóð­veg­inn.

Þessir ungu menn voru allir stúd­entar og bekkj­ar­bræður, útskrif­uð­ust í fyrra úr Mennta­skól­anum á Akureyri. Þeir voru Geir Geirsson frá Djúpa­vogi, flug­maður, fæddur 21. maí 1936, Jóhann Möller frá Rvík, fæddur 23. apríl 1937, Bragi Egilsson frá Hlé­skógum í Höfða­hverfi, fæddur 19. júní 1937 og Ragnar Ragnars frá Siglu­firði, fæddur 31. marz 1937 (hefði átt afmæli í dag). Pilt­arnir lögðu af stað frá Reykja­vík kl. 17.00 síð­degis á laug­ar­dag­inn í flug­vél, sem flug­skól­inn Þytur h.f. átti af gerð­inni Cessna 172. Þetta var ný vél, smíðuð í fyrra í Kansas í Banda­ríkj­unum og keypt þá þegar hingað til lands. Hún var fjög­urra sæta. Áætlaður flug­tími norður 1:45 klst. og flug­vélin hafði elds­neyti til 4% klukku­stundar flugs. Þegar flug­vélin kom ekki á áætl­un­ar­tíma til Akur­eyrar var eft­ir­grennslan hafin þegar í stað og spurst fyrir á bæjum norð­an­lands hvort flug­vél­ar­innar hafi orðið vart. Við þær eft­ir­grennsl­anir kom í Ijós, að vél­ar­innar hafði síð­ast orðið vart yfir bænum Ytri Kotum í Norð­ur­ár­dal í Skaga­firði og stefndi hún þá í átt­ina á Öxna­dals­heiði. Slyddu­veður hafði verið norð­an­lands um miðjan dag­inn, stytti síðan upp undir kvöldið en var lág­skýjað.

Leit und­ir­búin.

Þegar flug­vél­ar­innar hafði ekki orðið vart í Bakka­seli þótti sýnt að eitt­hvað myndi hafa orðið að vél­inni ann­að­hvort á Öxna­dals­heiði eða í fjöll­unum þar í grennd. Voru ráð­staf­anir gerðar þegar í stað til að senda leit­ar­flokka á svæðið, bæði héðan úr Reykja­vík, en þó aðal­lega frá Akureyri. Flug­fé­lag Íslands bauð að senda Douglas-flug­vél með leit­ar­flokk norður á Sauð­ár­krók á laug­ar­dags­kvöldið. Var það 14 manna hópur úr Flug­björg­un­ar­sveit­inni í Reykja­vík, sem fór með flug­vél­inni til Sauð­ár­króks, og kom þangað nokkru eftir mið­nætti. Flug­björg­un­ar­sveit­ar­menn héldu síðan á bílum svo langt sem komizt varð inn Blöndu­hlíð­ina og Norð­ur­ár­dal­inn, en munu hafa verið komnir skammt inn á Öxna­dals­heiði þegar fregn barst um að flakið af hinni týndu flug­vél væri fundið og að annar leit­ar­flokkur væri í þann veg­inn að kom­ast að því. Snéru Reyk­vík­ing­arnir þá til baka.

Flakið finnzt.

Douglasvélin, sem flutt hafði leit­ar­menn­ina aðfara­nótt sunnu­dags­ins til Sauð­ár­króks, hóf svo leit strax í birt­ingu í gær­morgun og það var hún sem fann flakið kl. 6 árdegis. Frá Akureyri fór 45 manna lið til leitar á þremur stórum marg­hjóla bílum (trukkum) og 4 jeppum. En kafaó­færð var víða á veg­inum, einkum á Þelamörk og eftir að inn í Öxnadal kom, svo ferðin sótt­ist seint. Lagði aðal­hóp­ur­inn af stað klukkan langt gengin 10 um kvöldið, en tveir jepp­anna eitt­hvað síðar. Við Bægisá var lið­inu skipt í þrjá flokka. Fór einn flokk­ur­inn undir for­ystu Jóns Sig­ur­geirs­sonar frá Hellu­vaði að Flögu í  Hörg­ár­dal, en þaðan átti svo að leita Hörg­ár­dals­heiði. Ellefu i menn voru í þeim hópi. Annar 11 manna hópur undir for­ystu Richards Þór­ólfs­sonar átti að leita Hóla­fjall og Hóladal og brún­irnar austan Öxna­dals­ins. Þriðji hóp­ur­inn -— 14 manns — hélt undir for­ystu Tryggva Þor­steins­sonar, for­manns Flug’*- björg­un­ar­sveit­ar­innar á Akureyri áfram inn Öxndal. Var ófærð svo mikil að ekki varð bilum við­komið og var því fengin belt­is­drátt­ar­vél með sleða að láni á Hálsi í Öxnadal og farið á henni það sem eftir var leið­ar­innar. Hafði flokk­ur­inn verið alla nótt­ina á ferli og kom um hálf sjö leytið um morg­un­inn að Bakka­seli og lágu þá fyrir orð um það að flug­vélaflakið hefði fundizt úr lofti. Væri það móts við svo­kall­aðan Kald­baks­dal á Öxna­dals­heiði, á að gizka 300—400 metrum fyrir vestan girð­ing­una á heið­ar­brún­inni og um það bil 30 metra frá þjóð­veg­inum. Mun vélin ekki hafa átt nema örfárra sek­únda flug til þess að kom­ast norður af brún­inni. Landið er þarna að mestu slétt en þó lágar ávala­hæðir.

Aðkoman að flug­vél­inni

Þegar að flug­vél­inni kom lá hún á hvolfi og öll sam­an­lögð og mikið brotin, en ekki brunnin. Tvö líkin voru inni í vél­inni, en tvö höfðu kast­ast út úr henni við árekst­ur­inn. Ekki er á þessu stigi unnt að leiða nokkrar líkur að orsökum slyss­ins, en geta má þess að brot­inn var hluti af hægra væng, sem bendir til þess að vélin hafi fyrst komið niður á væng­inn. For­stöðu­maður loft­ferða­eft­ir­lits­ins, Sigurður Jónsson. flaug norður í morgun til þess að skoða flakið og rann­saka slysið og orsakir þess.
Líkin voru flutt niður að Bakka­seli í gær og voru þau dregin á sleða, fyrst af belt­is­drátt­ar­vél en síðan jeppa­bif­reið unz komið var niður á Mold­haugna­háls. Þar beið sjúkra­bif­reið og flutti líkin til Akur­eyrar. Þangað var komið um hálf­þrjúleytið í gær­dag. Leit­ar­menn­irnir, sem héldu upp á Hörg­ár­dals­heiði komu nokkru seinna til bæj­ar­ins.



Kennsla fellur niður


Vegna þessa sorg­lega atburðar var til­kynnt í gær að kennsla félli niður í dag í Háskóla Íslands og Mennta­skól­anum á Akureyri. Sömu­leiðis var háskólatón­leikum aflýst í gær. Flug­mað­ur­inn, Geir Geirsson, var við flug­nám og með um 20,0 flug­stundir að baki. Hafði hann þegar lokið einka­flug­prófi og var að mestu búinn að ljúka atvinnu­flug­prófi. Hinir pilt­arnir þrír stund­uðu allir nám í lækna­deild Háskól­ans.  Síðasta flug­slys hér á landi, þar sem maður hefur farizt næst á undan þessu, varð fyrir röskum tveim árum, eða 12. febr­úar 1956 við sælu­húsið á Holta­vörðu­heiði, er þar fórst lítil flug­vél með einum manni og beið hann bana.

Aðstand­endur og vinir fjór­menn­ing­anna hyggj­ast koma upp minn­is­varða um fjór­menn­ing­ana á Öxna­dals­heið­inni í sumar. Stofn­aður hefur verið reikn­ingur vegna söfn­un­ar­innar í Spari­sjóði Höfð­hverf­inga. Reikn­ings­núm­erið er 1187 – 05 – 252550. Kennitala er 251059 – 3819, á nafni Braga Björg­vins­sonar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ