Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Gagnrýnir forræðishyggju yfirvalda: „Það verður alltaf til fólk sem kýs að setja sig í hættu“

Gagnrýnir forræðishyggju yfirvalda: „Það verður alltaf til fólk sem kýs að setja sig í hættu“
Eldgosið í Geld­inga­dölum á meðan allt var í fullu fjöri.

Kristinn Hrafns­son gagn­rýnir það sem hann kallar „for­ræð­is­hyggju­tón“ sem heyr­ist frá yfir­völdum varð­andi kom­andi eld­goss. Færslan hefur vakið mikla athygli net­verja.

Rit­stjór­inn hvít­hærði, Kristinn Hrafns­son skrif­aði færslu í dag á Facebook þar sem hann spyr hvaða lög kveði á um þá „skyldu yfir­valda að hindra að fólk fari sér að voða ef það endi­lega vill?“. Segir hann að fjöldi manns hafi ánægju af því að koma sér í hættu­legar aðstæður og sumir telji það jafn­vel sport. Nefnir hann fjallaklifur sem dæmi. „Flestir sleppa lif­andi en einn og einn lætur lífið, til dæmis í fjallaklifri. Það er jafn­vel fjallað um það sem hetju­dauða, ef fjallið er nógu frægt og hátt.“

Bendir Kristinn á að mestar áhyggjur séu af ferða­mönnum en stað­reyndin sé sú að eng­inn þeirra hafi farið undir hraun í síð­ustu tveimur eld­gosum. Fleiri hafi drukknað í Reyn­is­fjöru á liðnum árum. Þó segir Kristinn að það sé rétt að reyna sitt besta við að koma skila­boðum til ferða­manna að „þeir séu að fara í lífs­hættu, eiga ekki rétt á neinni björgun og fá enga kirkju­lega blessun ef þeir kjósa eigin bálför í 1100 gráðu fljót­andi hrauni.“ Enn­fremur sagði hann: „Það verður alltaf til fólk sem kýs að setja sig í ein­hverja hættu, sumir eru bjánar sem geta ekki metið hætt­urnar, aðrir gera þetta eftir yfir­legu og fag­legt mat. Það er erfitt að koma í veg fyrir ein­hver afföll í báðum hópum. Þannig er það bara.“

Í loka­orðum sínum er Kristinn ansi kald­hæð­inn er hann skýtur á bæði yfir­völd og lög­regl­una. „Þess utan er holur hljómur í barn­fóstru­hlut­verki yfir­valda þegar þau leggja lykkju á leið sína til að taka ekki á alvar­leg­ustu glæpum gegn þjóð­inni eins og djúpri, kerf­is­lægri spill­ingu. Eina við­bragðið við vax­andi gos­óróa vegna hennar er að þung­vopna íslenska her­lög­reglu til að til að bregð­ast við með kúlna­hríð ef gýs.“

Hægt er að lesa færsl­una í heild sinni hér að neðan:

„Á hvaða laga­grunni hvílir sú skylda yfir­valda að hindra að fólk fari sér að voða ef það endi­lega vill? Þetta er nefnt þar sem strax er farið að bera á for­ræð­is­hyggju­tóni vegna verð­andi eld­goss. Fjöldi manna hefur mikla ánægju af því að setja sig í hættu og telur það sport. Flestir sleppa lif­andi en einn og einn lætur lífið, til dæmis í fjallaklifri. Það er jafn­vel fjallað um það sem hetju­dauða, ef fjallið er nógu frægt og hátt.

Mestar áhyggjur eru af ferða­mönnum en eng­inn þeirra hefur samt farið undir hraun í síð­ustu tveimur gosum. Til sam­an­burðar hafa fimm drukknað við Reyn­is­fjöru á liðnum árum og tugir verið hætt komnir. Varðandi gosið er rétt að reyna eftir bestu getu að koma þeim skila­boðum til þeirra að þeir séu að fara í lífs­hættu, eiga ekki rétt á neinni björgun og fá enga kirkju­lega blessun ef þeir kjósa eigin bálför í 1100 gráðu fljót­andi hrauni.Yfirvöld eiga einnig að halda Íslend­ingum vel upp­lýstum um hætt­urnar og ítreka að fólk fari á svæðið á eigin ábyrgð.Það verður alltaf til fólk sem kýs að setja sig í ein­hverja hættu, sumir eru bjánar sem geta ekki metið hætt­urnar, aðrir gera þetta eftir yfir­legu og fag­legt mat. Það er erfitt að koma í veg fyrir ein­hver afföll í báðum hópum. Þannig er það bara.Þess utan er holur hljómur í barn­fóstru­hlut­verki yfir­valda þegar þau leggja lykkju á leið sína til að taka ekki á alvar­leg­ustu glæpum gegn þjóð­inni eins og djúpri, kerf­is­lægri spill­ingu. Eina við­bragðið við vax­andi gos­óróa vegna hennar er að þung­vopna íslenska her­lög­reglu til að til að bregð­ast við með kúlna­hríð ef gýs.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ