Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Skólastjóri Verzló sakaður um mismunun: „Framkoma þín bendir til þess að þú sért ekki heill heilsu“

Skólastjóri Verzló sakaður um mismunun: „Framkoma þín bendir til þess að þú sért ekki heill heilsu“
Jón Steinar Gunn­laugs­son var brjál­aður út í skóla­stjóra Verzló

Hæsta­rétt­ar­lög­fræð­ing­ur­inn Jón Steinar Gunn­laugs­son var mjög ósáttur með fram­komu skóla­stjóra Verzlunarskóla Íslands.

„Það er eins og þú skiljir ekki að þú ert ein­hver ömur­leg­asta per­sóna sem ég og fjöl­skylda mín hefur kynnst fyrr og síðar. Þú situr sem skóla­stjóri í fram­halds­skóla og beitir þar geð­þótta­valdi og veit­ist að ung­mennum við skól­ann og vel­ferð þeirra með ofríki og fauta­gangi. Framkoma þín bendir til þess að þú sért ekki heill heilsu. Það kemur ekki til greina að börn mín setj­ist á skóla­bekk í skóla sem lýtur yfir­stjórn manns eins og þíns. Þú verður að þjóna lund þinni á öðrum börnum en mínum,“ sagði Jón Steinar Gunn­laugs­son, hæsta­rétt­ar­lög­fræð­ingur og síðar hæsta­rétt­ar­dóm­ari, í bréfi til þáver­andi skóla­stjóra Verzlunarskóla Íslands árið 2004.

Tilefni bréfs­ins var að allir krakkar sem voru að klára 10. bekk fengu staðlað bréf frá skól­anum þar sem krakk­arnir voru hvattir til að sækja um skóla­vist í Verzlunarskóla Íslands. Þáver­andi skóla­stjóri skól­ans, Þor­varður Elíasson, ákvað að birta bréfið með sér­stökum hætti. Hann hengdi bréfið upp á göngum skól­ans. Þegar Þor­varður var spurður um ástæðu þess svar­aði hann teldi rétt að kenn­arar skól­ans fengu að sjá bréfið. „Jón Steinar er rit­fær maður og með sér­stakan stíl,“ sagði Þor­varður í sam­tali við DV.

Forsaga máls­ins eru deilur Þor­varðar og Jóns varð­andi skóla­göngu Gunn­laugs, sonar Jóns, en hann var nem­andi við Verzlunarskóla Íslands. Deildu Þor­varður og Jón um ein­kunn­ar­gjöf Gunn­laugs.

„Ég neit­aði að víta kenn­ara skól­ans í ákveðnu máli,“ sagði Þor­varður um málið.

Jón var ósáttur með fram­göngu skóla­stjór­ans og vildi meina að sonur hans fengi ekki sömu með­ferð og aðrir nem­endur skól­ans.

„Þá reyndi skóla­stjór­inn með ótrú­legum aðferðum að hindra fram­hald á skóla­göngu hans. í meg­in­at­riðum fólst málið í því að dreng­ur­inn hafði gerst sekur um fjar­vistir úr tímum í skól­anum sem stóðu í sam­bandi við að hann hafði verið kos­inn for­maður mál­funda­fé­lags skól­ans. Sú tíma­sókn hans var að und­ir­lagi skóla­stjór­ans. Kenn­ara­ein­kunnir í um það bil helm­ingi náms­grein­anna voru lækk­aðar þannig að hann lækk­aði í með­al­ein­kunn frá jóla­prófi til kenn­ara­ein­kunna úr 8,70 niður í 5,00,“ sagði Jón Steinar í við­tali við DV.

„Ljóst er að máls­með­ferðin gagn­vart syni mínum var algjör­lega ein­stök við skól­ann. Engar reglur voru í gildi og skóla­stjór­inn stóð fyrir því að beitt var geð­þótta­á­kvörð­unum um þetta gagn­vart honum. Ég brást við því þannig að ekki kæmi til greina að yngri börn mín sett­ust á skóla­bekk í þessum skóla á meðan þessi maður væri þar skóla­stjóri. Þegar hann svo ítrekað sendir þeim bréf með boðum um skóla­vist og virðir ekki ósk mína sá ég ástæðu til að svara honum.“

Jón Steinar sendi Mannlífi tölvu­póst og vildi fá að koma eft­ir­far­andi athuga­semd á fram­færi:

„Hér er gefin afar röng mynd af sam­skiptum mínum við skóla­stjór­ann. Ég segi frá þessu máli á bls 191 – 196 í end­ur­minn­inga­bók minni „Í krafti sann­fær­ingar“. Eins og þar kemur fram veitt­ist skóla­stjór­inn að syni mínum með þeim hætti að reyna að hindra hann í að kom­ast áfram á milli bekkja í skól­anum. Til dæmis lét hann breyta tveimur ein­kunnum í bók­færslu úr 2×10.00 á jóla­prófum í 2×2,0 í vetr­ar­ein­kunn. Ótrúlegt þar sem jóla­próf var meg­in­stofn­inn í ársein­kun­inni. Það for­eldri sem hefði ekki gripið inn í þessa atburða­rás væri eitt­hvað skrítið. Sonur minn gerði hins vegar sjálfur það sem þurfti til að brjóta þessa aðför á bak aftur. Menn geta lesið kafl­ann í bók minni og kynnt sér þessa fárán­legu aðför. Ekkert var ofsagt í bréfi mínu til þessa sjúka manns, sem aldrei hefði átt að koma nærri því að stjórna skóla­starfi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ