Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

15 bestu rapplög Íslandssögunnar

15 bestu rapplög Íslandssögunnar
Cell7, Herra Hnetu­smjör og Dóri DNA hafa gert sumt af bestu rapp­lögum Íslands

Endalaus straumur af nýjum íslenskum rapp­lögum koma út í viku hverri en Mannlíf leit­aði til sér­fræð­inga til að finna 15 bestu lögin í Íslands­sög­unni.

Það er ekki skortur á íslenskum röpp­urum árið 2023, ný lög koma út viku­lega og virð­ist ekk­ert benda til ann­ars en að rapp haldi áfram að vera vin­sælasta tón­list­ar­stefnan á Íslandi næstu ár. En til þess að geta tek­ist á við fram­tíð­ina er oft gott að líta til baka á þau lög sem hafa lyft íslenskri rapptón­list á hærra stig og gert hana að þeim risa sem hún er í dag. Mannlíf ræddi við þrjá rapp­sér­fræð­inga til að finna 15 bestu íslensku rapp­lögin sem hafa verið gerð. Allir eiga þeir það sam­eig­in­legt að hafa sjálfir búið til rapp þegar þeir voru yngri en hafa nú snúið sér að öðru.

Sér­fræð­ing­arnir eru:
Freyr Árnason – Leik­stjóri og hand­rits­höf­undur
Darri Rafn Hólmars­son – Gagna­sér­fræð­ingur
Ingvar Ásmunds­son – Lög­fræð­ingur

XXX Rottweilerhundar – Bent nálgast

„Grein um bestu íslensku rapp­lögin er ekki grein um bestu íslensku rapp­lögin ef hún inni­heldur ekki Bent nálg­ast. Arfleifð eða, eftir atvikum, þjóð­söngur.“

Cell7 – City Lights

„Ragna Cell7 hlaut mikla athygli á 10. ára­tugnum sem með­limur Subterra­nean en hvarf af svið­inu að miklu leyti fyrsta ára­tug 21. ald­ar­innar en gaf út plötu árið 2013 og aðra 2017. Báðar plöt­urnar fengu góða dóma og verð­laun en Ragna hefur að sumu leyti staðið fyrir utan hiphop-sen­una svoköll­uðu og ekki fengið jafn mikla virð­ingu og hún ætti í raun að fá. City Lights er besta lagið hennar. Grípandi við­lag, flott rapp og öðru­vísi taktur en íslenskt rapp er þekkt fyrir.“

Afkvæmi Guðanna – Altarisgangan

„Það er af mörgu að taka þegar kemur að Afkvæmum Guðanna en þetta lag er alltaf í ákveðnu upp­á­haldi. Hag­fræð­ing­ur­inn hlaup­andi, Eiríkur Ásþór Ragn­ars­son (Eikonomics), með sterkan leik.“

Introbeats ásamt Dóra DNA – Á vökunni

„Þetta sound er með því besta sem ég hef heyrt. Textinn er jafn­framt frá­bær. Gríð­ar­lega töff lag.“

Skytturnar – Ég geri það sem ég vil

„Geggjað lag af fyrstu rappplöt­unni á íslensku, SP, sem ég rakst á um dag­inn og eld­ist fárán­lega vel. En þetta lag er bæði fyndið og snið­ugt og síðan er þetta bara algjör gluggi inn í ein­hverja ung­linga­stemmn­ingu fyrir 20 árum.“

XXX Rottweilerhundar – Gemmér

„Að öðrum ólöst­uðum er Bent besti íslenski rapp­ar­inn. Það er stað­reynd sem breyt­ist aldrei. Þetta lag sýnir hans bestu hliðar.“

Forgotten Lores – Kapital & Hefnd

„Pólitík og stríð hafa ekki verið sér­lega fyr­ir­ferð­ar­mikil yrk­is­efni í íslensku rappi (þ.e. fyrir utan ýmis lög Erps Eyvind­ar­sonar). Í Kapital & Hefnd er aftur á móti fjallað um ástand heims­ins af svo mik­illi fágun yfir þennan ljúfa, djass­skotna takt úr smiðju Intr0beatz að fyrir mér er þetta lag ekk­ert minna en ódauð­legt. Lagið stenst alger­lega tím­ans tönn þrátt fyrir að vera tveggja ára­tuga gam­alt og ótrú­legt er að hugsa til þess að nú sé ástandið í Palest­ínu enn verra en þegar það var ort.“

O.N.E. – Move

„O.N.E. var alltaf í miklu upp­á­haldi hjá mér. Eiga mörg frá­bær lög en þetta lag er lík­lega fremst meðal jafn­ingja. Skapar gríð­ar­lega góða stemmn­ingu við hlustun.“

BlazRoca – Má ég koma heim

„Erpur og Rottweiler phena­monið er svo miklu meira og stærra en ein­hver ein­stök lög. Þeir komu beisiklí með rokkið og rólið inn í rappið en lagið sem ég ætla sækja er algjör B-hlið á Kóbacabana plöt­unni. Það er eitt­hvað myrkur og ein­hver sann­leikur í þessum texta og síðan er sound-ið á þessu bara eitt­hvað sem aldrei áður hafði heyrst í íslensku rappi.“

Úlfur Úlfur – Bróðir

„Frábært sound og flott rapp. Gríð­ar­lega vel gert lag.“

Birnir & Herra Hnetusmjör – Já ég veit

„Ákveðin toppur. Beatið er ruglað, alda­móta Pharrel fíl­ingur með 2018 twisti og Birnir og Hnetan sitja svo vel í þessu lagi. Eitt af þessum lögum sem maður man hvar maður var þegar maður heyrði það fyrst. Myndi segja þetta hið full­komna lag frá þeim tíma er það var full­komið jafn­vægi á milli popps og rapps í íslensku hip hop sen­unni.“

Tiny – Óupplýst sakamál

„Tiny er auð­vitað stór­kost­legur á ensku en sýnir það í þessu lagi að hann er ekki síðri á íslensku. Alvöru lag með alvöru texta. Gæsahúð.“

Herra Hnetusmjör – Jámarh ft. Joe Frazier

„Ef mér væri sleppt af himnum ofan niður í úthverfi Oakland-borgar og ég þyrfti að sann­færa inn­fædda um ágæti íslensks rapps þá myndi ég lík­lega leita að þessu lagi – gríp­andi við­lag, frísk­legur taktur undir áhrifum frá DJ Mustard og Joe Frazier stelur sen­unni með fjöl­mörgum snið­ugum línum. Þetta lag meikar full­komið sens eftir nokkra svell­kalda og hinn þungi 808-bassi fær mig und­an­tekn­inga­laust til að dilla mér.“

Introbeats feat. Stjáni Blái og Kötturinn Felix – Ekkert Grín

„Stjáni úr Afkvæmum Guðanna og Diddi Fel úr For­gotten Lores gáfu út nokkur lög saman undir nafn­inu Stjáni Blái og Kött­ur­inn Felix og þau eru öll frá­bær en þetta er lík­lega besta lagið. Það kemur allt saman í þessu lagi. Stór­kost­legur taktur frá Intro­beats og hugs­an­lega bestu rímur sem íslenskt rapp hefur heyrt.“

Cheddy Carter – Smoked lamb

„Þetta lag hefur „vibe“ sem grípur mann alveg rosa­lega. Textinn hnytt­inn á köflum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Menning

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar