Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Á álfaslóð – Jóna segir frá kynnum sínum af álfum á Borgarfirði eystra

Á álfaslóð – Jóna segir frá kynnum sínum af álfum á Borgarfirði eystra
Jóna Óskars við Nadda­kross, nærri Borg­ar­firði eystri

Jóna Ósk­ars­dóttir sér og skynjar meira en margur og hún var að gefa út bók­ina Á álfa­slóð þar sem hún segir frá kynnum sínum af álfum og álf­heimunum á Borg­ar­firði eystra. Bókin inni­heldur bæði frá­sögn um álfa sem og ljóð eftir Jónu, en bókin er bæði á íslensku og ensku.

Um er að ræða sanna frá­sögn skyggnrar konu af heim­sókn sinni í álfa­byggðir Borg­ar­fjarðar eystra sem verður til að bjarga lífi lít­ils álfa­drengs. Heill­andi inn­sýn í hul­iðs­heima Borg­ar­fjarðar eystra sem færir okkur heim sann­inn um að manna­byggðin þar nýtur verndar og vin­áttu hul­inna afla og að enn ríkir gagn­kvæm virð­ing þeirra á milli.

Á haust­degi 6. sept­em­ber árið 2012 var Jóna Ingi­björg Ósk­ars­dóttir, hús­móðir frá Egils­stöðum, stödd á Borg­ar­firði eystra ásamt eig­in­manni sínum Benedikt. Þar gengu henni til sjónar álfar og báðu hana um hjálp úr mann­heimum. Þessi frá­sögn fjallar um sterka upp­lifun Jónu af kynnum hennar af álf­heimum þennan haust­dag.

Jóna er upp­alin í Reykja­vík af vest­firsku kjarna­fólki komin en flutt­ist ung til Egils­staða þar sem hún kynnt­ist manni sínum, Benedikt Guðna Þórð­ar­syni. Hún er móðir sex barna og mestan hluta starfsæv­innar hefur hún sinnt umönnun fatl­aðra. Auk þess hefur hún starfað við versl­unar- og veit­inga­störf á síð­ari hluta starfsæv­innar utan við stórt heim­il­is­hald.

Uppi­staðan í þess­ari bók er frá­sögn Jónu af kynnum hennar af álf­heimum. Nákvæmar lýs­ingar hennar veita okkur inn­sýn í þennan heim sem Íslend­ingar hafa þekkt um aldir, og margar frá­sagnir í gegnum ald­irnar segja einmitt frá sam­skiptum álfa og huldu­fólks við okkur mann­fólkið. Það að Jóna getur svarað nákvæmum spurn­ingum um stað­hætti, útlit, klæðnað og ýmis óvænt smá­at­riði gerir sögu hennar raun­veru­lega og ábyggi­lega. Einnig það að Gréta leið­sögu­kona biður um hjálp í Álfa­borg­ina gefur frá­sögn­inni gildi. Frá­sögnin var skráð af Grétu og með und­ir­skrift ferða­mann­anna, og var svo hljóð­rituð hjá Tóka­tækni 8. sept­em­ber 2012, tveimur dögum eftir að sýnin birt­ist.

Jóna hefur í ára­tugi séð meira en aðrir og haft sam­skipti og tengsl við fólk hinum megin móð­unnar miklu. Hún hefur seinni ár nýtt þessa með­fæddu skyggni­gáfu til heil­unar. Margir eru skyggni­gáfu hennar til stað­fest­ingar í gegnum tíð­ina, þ.á.m. börn hennar og eig­in­maður sem stað­festa öll í sam­tölum að Jóna sé skyggn og hafi reglu­lega sam­skipti við fram­liðna. Jóna var barn­ung, aðeins fjög­urra eða fimm ára, þegar hún hafði fyrst sam­band við mann­eskju að handan. Þá bað hún Gróu, ömmu sína, sem þá var látin um hjálp við finna teygju­band sem hafði týnst og hún vildi nota í teygju­tvist. Gróa amma vís­aði Jónu strax á teygj­una í kápu­vasa, en bróðir hennar hafði lík­leg­ast verið að stríða henni og falið teygj­una þar. Æ síðan bað Jóna hana Gróu ömmu um hjálp við að finna hluti sem týnd­ust. Að öðru leyti fannst Jónu lengi vel óþægi­legt að sjá svona „vel“. Hún hélt skyggni­gáfu sinni að mestu frá sér, þar til hin seinni ár þegar hún fékk hvatn­ingu frá eig­in­manni og einni dætra sinna um að skyggni­gáfa hennar gæti hjálpað öðru fólki.

Hægt er að kaupa Á álfa­slóð í verslun A4 á Egils­stöðum og í Húsi hand­anna, einnig á Egils­stöðum. Þá má hringja í Jónu í síma 869-7376 og kaupa af henni beint.

Grein þessi birt­ist í nýjasta tölu­blaði Mannlífs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ