Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Tapað milljónum vegna heilbrigðiseftirlitsins: „Verið að vinna með rassgatinu“

Tapað milljónum vegna heilbrigðiseftirlitsins: „Verið að vinna með rassgatinu“
Silli Kokkur er ósáttur við heil­brigð­is­eft­ir­litið í Reykja­vík

Sigvaldi Jóhanns­son, betur þekktur sem Silli kokkur, segir vinnu­brögð Heil­brigð­is­eft­ir­lits Reykja­víkur ekki vera góð.

Þegar nýir veit­inga­staðir ætla opna þurfa þeir sam­þykki heil­brigðs­eft­ir­lits þess bæj­ar­fé­lags sem þeir starfa í fyrir ýmsum hlutum og er gott sam­starf á milli veit­inga­staða og heil­brigð­is­eft­ir­lits mik­il­vægt fyrir almenn­ing. Stundum kemur þó upp ósætti og hafa sumir veit­inga­menn sagt að erf­ið­ara sé að vinna með Heil­brigð­is­eft­ir­liti Reykja­víkur en öðrum slíkum eft­ir­litum á Íslandi. Silli kokkur hefur síðan í júlí reynt að opna nýjan veit­inga­stað, sem heitir einmitt Silli Kokkur, á Höfða­bakka 1 en segir að vinnu­brögð Heil­brigð­is­eft­ir­lits Reykja­víkur geri honum erfitt fyrir.

„Eins og staðan er í dag þá eru þeir að draga þetta og draga þetta og þetta tekur það langan tíma að þetta er farið að kosta mig fleiri millj­ónir,“ sagði Silli í sam­tali við Mannlíf.

En af hverju er málið að drag­ast á lang­inn?

„Það sem er að þessu er að til þess að fá leyfi þá þarf ég að láta teikna upp veit­inga­stað­inn og skila inn teikn­ingu til Heil­brigð­is­eft­ir­lits­ins. Útlit og hönnun á staðnum, hvar tæki eiga að vera, að það sé allt í sam­ræmi við það sem á að vera. Allt í góðu. Ég fæ arki­tekt til að teikna þetta fyrir mig sem er vanur að teikna upp veit­inga­staði. Við teiknum þetta eins og við sáum þetta fyrir okkur, allt gott og blessað. Svo skilum við því inn í byrjun júlí og rétt fyrir versló þá fáum við sent frá þeim að það sé svo mikið sum­ar­frí, svo miklar annir, verið að taka upp nýtt kerfi og því sé eng­inn búinn að taka þetta mál að sér,“ og hefur Silli skiln­ing á að ekki sé hægt að afgreiða allt um og leið og það berst. 

„Svo aðra eða þriðju vik­una í ágúst þá kemur svar frá Heil­brigð­is­eft­ir­lit­inu með ein­hverjum fimm til átta athuga­semdum, út af teikn­ingu. Við lögum það, bætum og breytum eins og þeir biðja um. Einhver svona smátriði og við lag­færum þetta og skilum inn teikn­ing­unni aftur. Það er hald­inn fundur einu sinni í viku þannig að vik­una eftir þá fáum við átta ný atriði,“ og að sögn Silla eru það atriði sem voru öll til staðar á fyrstu teikn­ingu sem skilað var inn en engar athuga­semdir bár­ust við.

„Við förum yfir þetta og breytum og lögum og bætum. Skilum því inn. Bíðum í rúmar tvær vikur og þá fáum við aftur fimm eða sex athuga­semdir. Glænýjar, frá upp­runa­legri teikn­ingu eins og hún lá fyrir í fyrsta skipti,” og sagði Silli að nú hafi liðið þrjár vikur frá sein­ustu skilum þeirra til eft­ir­lits­ins og hann ekk­ert heyrt til baka.

„Mjög gott, því ég var í Kópavogi,” sagði Silli þegar hann var spurður hvernig sam­starf hans við heil­brigð­is­eft­ir­lit hafi verið í gegnum tíð­ina. „Mér finnst þetta vera eins og það sé verið að vinna með rass­gat­inu. Þetta er fólk sem á að vera leið­beina okkur en ekki setja stein í vegi okkar. Ef þú værir að opna veit­inga­stað í dag og vissir ekki neitt og ætl­aðir að hringja í Heil­brigð­is­eft­ir­litið til að fá svör um hvað ættu að vera margir vaskar eða hvernig hitt og þetta ætti að vera þá fengiru engin svör. Það eru menn í veit­inga­geir­anum sem skrá mat­ar­vagna í öðru bæj­ar­fé­lagi því þeir nenna ekki að standa í stappi við þá í Reykja­vík.”

En hefur Silli ein­hverja útskýr­ingu á af hverju það sé svona mik­ill munur á bæj­ar­fé­lög­unum?

„Ég veit það ekki, ekki nema það sé meira fólk sem er ekki starfi sínu vaxið eða ferl­arnir eru of flóknir. Það er ekki eðli­legt að þegar þú horfir á teikn­ingu þá finniru ný og ný atriði. Ef þú ert í vinn­unni og ert að vinna rétt þá ferðu yfir teikn­ing­una og skilar öllum atrið­unum í einu svo ég geti lag­fært það.”

„Þetta er alla­vega búið að kosta mig þrjár millj­ónir í leigu núna meðan hef beðið eftir að þeir vinni málið,” sagði Silli varð­andi hvort hann hafi leitað til lög­fræð­ings vegna máls­ins. „Það er oft sagt að sumir veit­inga­staðir séu farnir á haus­inn áður en þeir opna. Ég skil það ef þetta er vinnslan hjá Heil­brigð­is­eft­ir­lit­inu. Maður er allur af vilja gerður og vill gera hlut­ina vel en ég er ekki fimm ára. Það þarf ekki að skammta mig fimm atriði í einu. Það er mikið undir, lífs­við­ur­væri mitt er undir.”

Mannlíf hafði sam­band við Heil­brigð­is­eft­ir­lit Reykja­víkur og bar kvart­anir Silla undir starfs­mann þar. Hann sagði að það gæti verið að eitt­hvað hafi mis­farist en hann þyrfti að skoða málið betur til að geta tjáð sig um það með vissu og bað Mannlíf að hafa sam­band í næstu viku.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ