Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Segir umræðuna hafa snúist í andhverfu sína: „Trans börn hafa alltaf verið til“

Segir umræðuna hafa snúist í andhverfu sína: „Trans börn hafa alltaf verið til“
Frá Reykja­vík Pride 2023 – Mynd: Reykjavík

Sigga Birna Vals­dóttir segir umræð­una um trans börn á villi­götum.

Fjöl­skyldu­með­ferð­ar­fræð­ing­ur­inn Sigga Birna Vals­dóttir ræðir í nýjum pistli um trans börn og þá umræðu sem hefur mynd­ast í kringum þau á und­an­förnum vikum.

„Ég held að þau séu fá sem ekki taka heils­hugar undir stað­hæf­ing­una „Leyfum börnum að vera börn.“ Hún hefur sést víða í fjöl­miðlum og á sam­fé­lags­miðlum und­an­farið og oft í þeim til­gangi að halda því fram að það séu í raun ein­hver sem ekki séu þessu fylgj­andi. Þar á meðal fólk eins og ég.

Ég er ráð­gjafi hjá Sam­tök­unum ‘78. Síðustu þrettán árin hef ég hitt hund­ruð for­eldra. Þessir for­eldrar hafa leitað til mín vegna þess að börnin þeirra pössuðu ekki inn í kynja­boxin eða hrein­lega héldu því fram að þau til­heyrðu ekki því kyni sem þeim var úthlutað við fæð­ingu. Flest þess­ara barna eru hinsegin í dag, mörg eru trans en nokkur eru ekki á lífi,“ sagði Sigga í pistl­inum sem birt­ist á Vísi.

„Fólk talar um að vernda börnin, vernda börnin fyrir hinsegin fræðslu, vernda börnin fyrir „tran­svæð­ingu“ og vernda börnin fyrir kyn­fræðslu. Ég er nokkuð viss um að mik­ill meiri­hluti þeirra sem taka undir þessar stað­hæf­ingar og dreifa efni sem heldur þeim á lofti gerir sér enga grein fyrir því hvað þau eru að gera né hvaða afleið­ingar það hefur. Orð hafa alvöru afleið­ingar,“ en Sigga er ekki viss um að allt fólkið sem er að dreifa röngum upp­lýs­ingum um trans­mál­efni átti sig á hvað þau séu að gera.

„Ég er ansi hrædd um að flest það full­orðna fólk sem dreifir áróðri gegn trans fólki, hinsegin fræðslu og Sam­tök­unum ´78 átti sig ekki á því hvað það er að gera.

Það áttar sig ekki á því að það er að dreifa upp­lýs­ingum sem ýta undir andúð á stórum hópi fólks, andúð á alvöru fólki, á börnum á öllum aldri, for­eldrum þeirra og fjöl­skyldum,“ sagði hún og nefnir að sögur um ein­elti og þöggun séu hluti af upp­lifun margra trans ein­stak­linga.

„Trans börn hafa alltaf verið til og munu alltaf vera til. Sum ná að setja orð á upp­lifun sína mjög ung, jafn­vel á leik­skóla­aldri, önnur mun seinna og sum ekki fyrr en á full­orð­ins­aldri. Áður fyrr var algeng­ara að fólk væri eldra, enda yfir­leitt þaggað harka­lega niður í því ef það opn­aði sig á barns­aldri. Sum sem hafa leitað til mín á full­orð­ins­aldri eiga hræði­legar sögur um bæl­ingu, afneitun og skömm. Sögur um mikið ein­elti, þöggun og jafn­vel alvar­legt ofbeldi með það eitt að mark­miði að berja úr þeim afbrigði­leik­ann. Afleið­ingin er oft mik­ill og flók­inn vandi sem getur tekur allt lífið að vinna úr,“ sagði Sigga Birna og að umræðan sé komin í hálf­gert rugl. Það sé verið að ráð­ast á börn og fjöl­skyldur undir fölskum for­sendum.

„Mig langar að hvetja fólk til að muna að stundum stuðlum við að van­líðan ann­arra án þess að ætla okkur það. Öll umræða um að „vernda börnin“ hefur snú­ist í and­hverfu sína, þar sem fólk telur sig geta ráð­ist á sum börn og sumar fjöl­skyldur undir því yfir­skini að um ein­hverja hug­mynda­fræði sé að ræða, en ekki líf fólks.

Ég er hrædd við afleið­ing­arnar, ég er hrædd um börnin sem ekki hafa komið fram, börnin sem ekki hafa stuðn­ing, börnin sem fá ekki leyfi til að vera börnin sem þau eru. Leyfum öllum börnum að vera börn.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ