Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Meintur rasisti laug um hópárás innflytjenda: „Kom halarunan af þessum Asíubúum hlaupandi út“

Meintur rasisti laug um hópárás innflytjenda: „Kom halarunan af þessum Asíubúum hlaupandi út“
Veit­inga­stað­ur­inn Gullið en slags­málin fóru fram yfir utan stað­inn

 Hópárás inn­flytj­enda í miðbæ Reykja­víkur reynd­ist vera lygi.

„Ég er fyrst og fremst eftir mig and­lega og reiður út af þessu,“ sagði Birgir Rún­ars­son í sam­tali við Morg­un­póst­inn árið 1994. Þá hélt hann því fram að 20 ein­stak­lingar hefðu ráð­ist á sig og unn­ustu hans. Hann tók sér­stak­lega fram að um asískt fólk væri ræða. Átökin hafi byrjað þegar tælenskur maður hafi byrjað að abb­ast upp á sig.

„Hann var að snapa sér slags­mál eins og stundum ger­ist. Fyrst gerði ég ekki neitt en þegar hann byrj­aði að kýla mig reyndi ég að verja mig, en ég vildi ekki standa í neinu ves­eni. Síðan kom félagi hans og arg­aði eitt­hvað á óskilj­an­legu tungu­máli. Hinn Tælend­ing­ur­inn svar­aði og þá tók félag­inn á rás beint inn á Gullið en þetta gerð­ist þar beint fyrir utan. Og áður en ég vissi af kom halarunan af þessum Asíubúum hlaup­andi út og rignir yfir mig og ég lam­inn og sparkað í mig. Ég reyndi að kom­ast á fætur til að hjálpa kærust­unni minni, sem þeir réð­ust líka á, en það gekk ekki. Loksins þegar ég var að kom­ast á fætur, kom einn þeirra og spark­aði framan í mig með þeim afleið­ingum að ég nef­brotn­aði. Þegar ég stóð loks­ins upp sá ég bara hóp af Tælend­ingum sem öskr­uðu eitt­hvað sem ég skildi ekki. Þetta fólk ber ekki meiri virð­ingu fyrir land­inu en það að það vill ekki læra tungu­málið.“

Birgir sagði að bæði unnusta hans og hann sjálfur hafi slasast í slags­mál­unum.

„Kærastan mín er tognuð bæði á baki og á hálsi, með gat á höfð­inu og öll blá og marin á lík­am­anum. Sjálfur er ég með glóð­ar­auga báðum megin og brák­aður á tveimur liðum á annarri hend­inni.“

Bróðir unn­ustu Birgis var skammt undan ásamt nokkrum vinum og kom þeim til aðstoðar og sam­kvæmt þeim voru árás­ar­menn­irnir vopn­aðir.

„Vinur sem ætl­aði að koma okkur til hjálpar sagði við mig að hann hefði séð hnúa­járn, einn með hníf og svo var hann að tala um ein­hverja rör­búta. Ég get ekki stað­fest þetta sjálfur þar sem ég sá þetta ekki og ég hef ekki ennþá náð í þennan mann til að fá stað­fest­ingu,“ sagði Birgir.

Lögreglan ósammála

Lög­reglan og vitni voru þó tals­vert ósam­mála Birgi um málið. Karl Hjart­ar­son, lög­reglu­maður, var á staðnum og sagði allt aðra sögu en Birgir.

„Ég bara gapti þegar ég sá að þetta var orðið stór­mál. Í DV er talað um vopna­burð og mönnum hafi verið ógnað með hnífum, hnúa­járnum og öðrum tólum. Það var ekki minnst einu orði á þetta við okkur um nótt­ina. Upp­haf­lega kemur til okkar veg­far­andi sem segir okkur að þarna sé krúnurak­aður piltur í her­manna­jakka sem hafi verið með hníf. Við tókum hann inn í bíl og það kom í ljós að hann var með svona lít­inn, rauðan hníf, svo­kall­aðan Sviss Army knife, í vas­anum en hvort hann hafi verið eitt­hvað að sveifla honum er ekki nokkur leið að henda reiður á. En þessi drengur var ramm­ís­lenskur og við höldum að hann hafi ekk­ert bland­ast í þessar stymp­ingar. Ætli þetta hafi ekki allt í allt verið 15 til 20 manns, inn­fæddir og nýbúar, sem voru að stymp­ast þarna. Við tókum tvo Tælend­inga inn í bíl og einn sem var eitt­hvað að blanda sér í það mál fékk að fljóta með. Síðan var rætt við þetta par sem hafði verið í þessum pústrum og þá kom ekk­ert fram um neinn vopna­burð. Þessi frétt í DV á ekk­ert skylt við þetta mál sem átti sér stað aðfara­nótt sunnu­dags­ins.“

Í upp­haf­legri frétt DV sagði Birgir frá því að hann hafi verið lam­inn í lög­reglu­bíl af tveimur tælenskum mönnum meðan það var verið að færa þá á lög­regl­una­stöð­ina.

„Þessi klá­súla að þeir hafi verið að slást inni í bíl er alveg af og frá. Það var lög­reglu­maður aftur í bíl hjá þeim og ræddi við þá í mesta bróð­erni,” sagði Karl um það og sagði að lög­reglan þyrfti mjög sjaldan þurft að hafa afskipti af inn­flytj­endum.

„Það er sárasjaldan sem við höfum þurft að hafa afskipti af nýbúum í mið­bænum. Við höfum ekki nokkurn skap­aðan hlut við þetta fólk að athuga.“

Vitni töldu Birgir vera rasista

Haraldur Jónsson, veit­inga­maður á Gullinu, var vitni að slags­málum en þau áttu sér stað fyrir utan Gullið. Hann sagði Birgir fara með rangt mál varð­andi fjölda ein­stak­linga sem tóku þátt í slags­mál­unum.

„Að þau hafi verið tutt­ugu er fjarri öllu lagi, ég giska á að hóp­ur­inn hafi verið öðru hvoru megin við tug­inn,“ sagði Haraldur og tók fram að þessi hópur hefði sótt Gullið und­an­farnar helgar og hann hefði ekk­ert nema gott að segja um hóp­inn.

„Þetta fólk hefur komið á stað­inn um helgar und­an­farna mán­uði og ég hef ekki orðið var við nein vand­ræði af þeirra völdum. Einu óþæg­indin í kringum þessi grey eru að Íslend­ing­arnir láta illa við þau. Við höfum margoft þurft að vísa mönnum á dyr vegna þess að þeir hafa verið að angra þau. Þeim er leyft að flytja til lands­ins en síðan fá þau engan frið.“

Haraldur vill meina að slags­málin hafi byrjað út frá kyn­þátta­for­dómum og hann hafi ekki séð nein vopn notuð.

„Eins og þetta leit út frá okkur, án þess að ég geti fulll­yrt neitt, byrj­aði þetta í kringum eina tælensku stelpuna. Það er alltaf verið að kallað eitt­hvað á þessi grey og þarna byrj­aði ein­hver hasar. Við sáum að það var verið að ýta við þess­ari stelpu og síðan braust þetta út.“

Birgir var spurður út í hvort Haraldur fari með rétt mál.

„Það er ekki rétt, það er ein­falt mál. Ég hafði enga ástæðu til þess. Hann gekk á mig og byrj­aði þetta og ég var bara að reyna að verja mig. Ég var á leið­inni heim. Ef ég hefði byrjað þetta væri ég ekki í mála­ferlum eða að flagga þessu á þennan hátt.“.

Þá vildi Birgir ekki láta taka myndir af sér eða áverkum til sönn­unar.

„Ég vil ekki fá skrúf­járn eða hníf í bakið ein­hvern tím­ann þegar ég er að skemmta mér í fram­tíð­inni.“. 

Íslendingunum að kenna

Í vik­unni á eftir var svo tekið við­tal við Grím Grímsson sem var vitni að mál­inu. Hann sagði Birgi hafa verið að ljúga.

„Það sem ég sá var að all­stór hópur Íslend­inga veitt­ist að fáeinum ein­stak­lingum af asískum upp­runa sem máttu sín lít­ils og voru all hart leiknir. Sú atburða­rás sem lýst er í DV af þessu atviki kemur væg­ast sagt illa heim og saman við það sem ég sá,“ sagði Grímur. „Ætli það hafi ekki verið fimm tælenskir strákar og þrjár eða fjórar tælenskar stelpur sem voru þarna saman og Íslend­ing­arnir veitt­ust að. Þetta var ekki neitt svaka­legt, en ein­hverjir pústrar gengu þó þarna á milli. En eina blóðið sem ég sá var á and­liti eins Tælend­ings­ins.“

Grímur end­aði á að segja að Birgir væri lík­lega ras­isti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni