Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Opið bréf til Katrínar Jakobsdóttur: „Þessi viðbjóðslega hræsni er mér óskiljanleg“

Opið bréf til Katrínar Jakobsdóttur: „Þessi viðbjóðslega hræsni er mér óskiljanleg“
Katrín Jak­obs­dóttir.

Rebekka Guð­leifs­dóttir skrif­aði Katrínu Jak­obs­dóttur opið bréf um ástandi á Gaza.

Rebekka Guð­leifs­dóttir

Ljós­mynd­ar­inn Rebekka Guð­leifs­dóttir birti í dag á Facebook, opið bréf sem hún sendi for­sæt­is­ráð­herra Íslands, Katrínu Jak­obs­dóttur. Í bréf­inu talar hún um þann tví­skinn­ungs­hátt Vest­ur­veld­anna, sem standa þétt við bakið á Úkraínu, gegn inn­rás­ar­her Rúss­lands en styðja svo árásir Ísrael á Palest­ínu­menn. „Þessi við­bjóðs­lega hræsni er mér óskilj­an­leg. Það að Íslensk stjórn­völd for­dæmi ekki þennan við­bjóð, er mér óskilj­an­legt,“ er meðal þess sem Rebekka skrifar til Katrínar.

Opna bréfið má lesa í heild sinni hér:

„Á þessum fal­lega mánu­degi, hér á for­rétt­inda eyj­unni Íslandi, sit ég heima í nota­legu litlu íbúð­inni minni og óska þess heitar en allt að ég geti verið glöð. Stormur síð­ustu daga geng­inn yfir og ég hef þak yfir höf­uðið, mat í ísskapnum mínum og hlý kisa kúrir við fætur mína. Ég er á örorku­bótum en ég er mjög rík samt sem áður, því ég er frjals kona og hef öll þæg­indi sem þykja sjálf­sögð í hinum vest­ræna heimi.

Það er bara ekki nokkur mögu­leiki fyrir mann­eskju sem gædd er bæði rétt­lætis- og sam­kennd, að vera annað en miður sín vegna þess sem er að eiga sér stað í Palest­ínu akkúrat núna.Rétt í þessu var ég að horfa á mynd­band af Palest­inskum dreng, sem hafði særst á fæti í ein­hverri af þeim stans­lausu sprengju­árásum sem Ísraelir hafa rignt yfir Gaza á síð­ustu dögum. Læknir var að gera að sárum þessa barns, án deyf­ingar þar sem slíkur mun­aður er nú ekki lengur sjalfsagður hlutur á þessu hel­viti á jörðu sem þessi staður er orð­inn. Annar aðili lýsti með far­síma svo lækn­ir­inn sæi til, enda raf­magns­laust.Að horfa uppá sak­laust barn gang­ast undir skurð­að­gerð í myrkri án deyf­inga, árið 2023, er óbæri­legt.Við erum jafn gamlar, Katrín.Á okkar 45 árum hafa ótal skelfi­legir atburðir átt sér stað í þessum heimi.Þegar Úkrá­inu­stríðið hófst var óbæri­legt að fylgj­ast með fréttum, en þá var í það minnsta hægt að finna örlitla huggun í því að ráða­menn svo­kall­aðra sið­mennt­aðra þjóða for­dæmdu árásir Rússa og stóðu með Úkraínu.Í dag standa sömu ráða­menn með og hrein­lega hvetja áfram Ísraela, á meðan þjóð­ar­morð er framið gegn Palest­ínu­mönnum í beinni útsend­ingu á sam­fé­lags­miðlum.Opin­berir fjöl­miðlar margir hverjir reyna eins og þeir geta að gaslýsa fólk sem sér með eigin augum hvað er að ger­ast. Reyna að sann­færa okkur um að þjóð­ar­morð, linnu­lausar sprengju­árásir á sak­laust fólk, sem var núþegar lokað inni í þaklausu fang­elsi og getur hvergi flúið.. að þetta sé ein­hvers­konar „sjálfs­vörn“ sem Ísra­els­menn eiga rétt á. Ísra­els­menn sem hafa í 75 ár vaðið með ofbeldi og morðum yfir Palest­ínu og stolið frá þeim öllu sem þeir áttu.Þarna eru nokkrar kyn­slóðir sem hafa aldrei upp­lifað frelsi, þrátt fyrir að hafa aldrei framið glæp. Þau bara fædd­ust á óheppi­legum stað og eru fyrir þessum öfga- zionista frekjum, sem kom­ast upp með allt í skjóli þess að ein­hverjir for­feður þeirra voru fórn­ar­lömb helfar­ar­innar.Þessi við­bjóðs­lega hræsni er mér óskilj­an­leg. Það að Íslensk stjórn­völd for­dæmi ekki þennan við­bjóð, er mér óskilj­an­legt.Það er margt sem ég gæti talið upp i við­bot í þessu bréfi, öll þau von­brigði sem ég hef upp­lifað að horfa á jafn­öldru mína sem hefði getað verið svo stór­kost­leg fyr­ir­mynd sem ung kona í For­sæt­is­ráð­herra hlut­verk­inu.. að horfa á þig afsala öllum þeim gildum sem þú þótt­ist standa fyrir, og verða í stað­inn með­virkur aum­ingi með Sjalfstæð­is­mönnum sem virð­ast hafa það aðal­mark­mið að gera Ísland óíbúð­ar­hæft fyrir alla Íslend­inga sem eru svo ólánsamir að til­heyra ekki auð­manna elít­unni.Ég gæti skrifað margar blað­síður í þeim dúr.En í augna­blik­inu ætla ég að halda mig við að for­dæma afstöðu þína gagn­vart þeim glæpum sem verið er að fremja gegn Palest­ínu­mönnum núna í dag, á þessum fal­lega mánu­degi.Því engin vanda­mál sem ég eða aðrir Íslend­ingar eru að glíma við akkúrat núna, ná að vera jafn skelfi­leg og það sem fólkið sem er lokað inni á Gaza svæð­inu er að upp­lifa núna, á meðan það dregur enn and­ann, sem verður lík­lega ekki langur tími ef Ísraelir fá bara að halda áfram sínu plani að þurrka þá burt af jörð­inni, eins og fram hefur komið að sé þeirra mark­mið.Ég segi núna við þig, sem ein 45 ára kona og móðir við aðra : Þetta má ekki halda svona áfram, og ef þú for­dæmir þetta ekki þá verður það þín helsta arf­leifð, að þú þagðir og stóðst hjá meðan ólýs­an­lega vondur glæpur gegn mann­kyni var fram­inn í beinni útsend­ingu.Þitt er valið.

-Rebekka Guð­leifs­dóttir “

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ