Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fannar bæjarstjóri var á Hellu þegar Suðurlandsskjálftinn reið yfir: „Þetta voru sérstakir tímar“

Fannar Jónasson, bæj­ar­stjóri í Grinda­vík, hefur staðið þétt við bakið á sínu fólki í þeim jarð­hrær­ingum sem hafa skekið Reykja­nes. Í við­tali við Reyni Trausta­son ræðir hann um jarð­hrær­ing­arnar og áhrif þeirra, um Suð­ur­lands­skjálft­ann sem hann fann vel fyrir sum­arið 2000 og í haust var hann í Marokkó þegar mann­skæður jarð­skjálfti reið þar yfir.

Í við­tal­inu talar hann meðal ann­ars um Suð­ur­lands­skjálft­ann sum­arið 2000, en Fannar var þá staddur á Hellu. Hér er brotið:

Suðurlandsskjálftinn

Og jörðin skelfur af og til.

Fannar var á Hellu þegar Suð­ur­lands­skjálft­inn reið yfir sum­arið 2000 og eyðilögð­ust nokkuð mörg hús.

„Ég var þá við­loð­andi sveit­ar­stjórn­ar­málin. Ég var til dæmis for­maður stjórnar Hita­veitu Rang­æ­inga, var það í 19 ár, og það urðu mjög miklar skemmdir á hita­veit­unni 17. júní. Aðveitan frá Lauga­landi og að Hellu og síðan í Hvols­völl laskað­ist mjög veru­lega og það var heita­vatns­laust hjá okkur í um það bil hálfan mánuð. Og það vildi bara svo vel til að við vorum að leggja nýja stál­lögn í stað­inn fyrir gömlu asbest­lögn­ina – ef það hefði ekki verið á loka­metr­unum má segja hefðu bæj­ar­fé­lögin verið vatns­laus svo mán­uðum skipti. Þannig að það var í raun­inni algert lán að þessi lögn skyldi nán­ast vera til­búin og að þessi atburður skyldi vera um mitt sumar. Ef þetta hefði verið 17. des­em­ber en ekki 17. júní hefðu hús skemmst í stórum stíl vegna frost­skemmda. Þannig að það var mikið lán yfir þessu. Sá skjálfti var mjög harður og eins og innbú okkar hjóna og ann­arra fór; meira og minna allt leir­tau brotn­aði. Þetta var reyndar mis­jafnt eftir húsum og götum en það urðu mjög miklar skemmdir hjá okkur.“

17. júní-skemmtun var í íþrótta­hús­inu á Hellu og Fannar hafði skroppið á skrif­stof­una og var þar þegar jarð­skjálft­inn reið yfir. „Það féllu bóka­skápar og voru möppur út um allt.“ Fannar fór út og seg­ist hafa séð um helm­ing­inn af vatn­inu úr sund­laug­inni í bænum streyma niður göt­una og að það hafi gusast upp úr laug­inni í jarð­skjálft­anum. „Það var raf­magns­laust í íþrótta­hús­inu og fólk var skelf­ingu lostið að koma út um neyð­ar­út­gang­ana. Þar hitti ég kon­una mína og börnin. Það var blíð­skap­ar­veður. Þetta var auð­vitað mik­ill atburður og harður skjálfti á Hellu en þó hann hafi verið ennþá harð­ari við upp­tökin þá vorum við svo nálægt þessu að það urðu miklar skemmdir.“

Fannar var í almanna­varna­nefnd Rang­ár­valla­sýslu á þessum tíma og var þess vegna svo­lítið við­loð­andi fram­haldið. „Þetta voru sér­stakir tímar.

Ég fór með vís­inda­mönnum og verk­fræð­ingum svo­lítið í úttektir á milli húsa og sá skemmd­irnar og auð­vitað brá mörgum í brún. Sumir þorðu ekki að fara aftur inn í húsin. Það var eft­ir­skjálfti 21. júní og hann var dálítið snarpur líka. Það var fólk sem tjald­aði í garð­inum hjá sér eða gisti ann­ars staðar. En þessi nýju hús eru svo ramm­byggð að þau stand­ast svona áraun. Elstu húsin sem voru kannski hlaðin og úr vik­ur­steinum fóru verst. Það mátti eng­inn fara inn í sum þeirra sem voru að því komin að hrynja. Nokkrum dögum seinna fóru björg­un­ar­sveit­ar­menn inn og tíndu út nauð­syn­leg­ustu muni en fólkið kom aldrei inn í húsin aftur. Þannig að hefði skjálft­inn staðið yfir örlítið lengur hefðu sum hús hrunið; elstu húsin sem voru byggð eftir allt öðrum reglum en nú eru í gildi.“

Hægt er að hlusta á allt viðtalið á hlaðvarpsveitu Mannlífs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ