Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Valda grunaði að eitthvað væri í ólagi áður en Dísarfellið sökk: „Blessaður, þetta er bara í þér“

Valdimar Sig­þórs­son, betur þekktur sem Valdi Víðátta, var um borð í Dís­ar­fell­inu þegar það fórst milli Íslands of Færeyja árið 1997. Hann er nýjasti gestur Sjóarans.

Slysið er tekið fyrir í nýút­kominni bók Svövu Jóns­dóttur, Heimtir úr Helju.

„Við vorum í kol­vit­lausu veðri á leið­inni heim og vorum langt á eftir áætlun,“ segir Valdimar er hann rifjar upp hinn örlaga­ríka dag, í mars 1997. „Inn á gangi var svona vél þar sem maður gat fengið sé súpu, kaffi, kakó og svo­leiðis, sjá­fl­virk. Ég fékk mér kaffi þegar við vorum lagðir af stað til Vest­manna­eyjar en þá fannst mér vatnið vera salt. Ég minn­ist á þetta við vél­stjór­ann og hann segir „Bless­aður, þetta er bara í þér“, og svo fórum við bara til Vest­manna­eyja.“

Morg­un­inn eftir siglir Dísa­fellið aftur út frá Vest­manna­eyjum, í aftaka­veðri. „Við erum sendir upp á dekk til að herða upp í sjó­bún­aði en ég var sá eini sem átti flot­galla og er sendur fremst. Og er að herða upp á [gámana til að festa þá niður] en síðan verð ég var við það að það er ekki einn ein­asti maður á dekki nema ég. Og hann tók svo djöf­ulli inn á sig að ég tók ekki sjens­inn á að hlaupa aftur í. Svo­leiðis að ég vissi að þeir myndu taka eftir því að það vant­aði mig og myndi slá af. En ég fór inn í þrjúlest til að vera öruggur því hann tók inn á sig alveg upp á mitt skip, sitt­hvoru megin þegar hann var að velt­ast. En svo finn ég að hann er að slá af og skýst upp og þá kemur Kalli og segir „Ég bara gleymdi þér!“.“

Valdimar seg­ist mun eftir því hvað var í kvöld­mat­inn því það hafi verið í gangi megr­unar­á­tak hjá Sam­skipum. „Það voru svona bauna­ham­borgar sem mér fannst ógeðs­lega vondir. En maður slafraði þessu í sig og fór upp í her­bergi. Og það versnar alltaf veðrið og mér fannst alltaf rosa­lega skrítið hvernig hann valt aldrei meira en svona 10, 12 gráður upp í öldu og vind en svo steinlá hann alltaf í sjó.“

Þetta angr­aði Valdimar þannig að hann skrapp niður í sjón­varps og sam­komu­her­bergi í skip­inu. Og skellti víd­eó­spólu í tækið. „En svo um mið­nætti kemur Palli heit­inn fyrsti stýri­maður niður og ég spyr hvort það sé ekki allt í lagi. Hann segir að það sé allt í lagi en ég segi að það séu svo skrítnar hreyf­ingar á skip­inu, hann er ekki eins og láta eins og hann á að láta, hann á að leggj­ast alveg þokka­lega vel upp í vind­inn. En hann segir að það sé ekk­ert sem segir að ekki sé allt í lagi.“ Þegar Valdimar kemur aftur í her­bergi sitt sér hann að sjón­varpið og fleira sem var á veggnum, liggur nú í rúmi hans. „Rifnaði af veggnum. Þetta voru hel­vítis högg sem komu.“ Valdimar kíkti upp á B-dekk og sá öld­una og furð­aði sig aftur á hreyf­ingu skips­ins en fór svo aftur niður og ætl­aði að reyna að slappa af, sem hann sagði hafa verið ógjörn­ingur. „Svo minnir mig það að hún hafi verið orðin svona eitt, hálf tvö að Kalli kemur upp og bankar hjá mér og segir „Heyrðu Valdi, komdu niður og gerum okkur klára. Farðu í flot­gall­ann“. Þetta var stærsta skipið sem ég hafði verið á, ég hafði ekki haft miklar áhyggjur, ég hafði verið á trillum, tog­urum og öllu þessu en þetta var stærsta skipið og ég bar svona traust til þess.“

Þegar Valdimar var kom­inn í flot­gall­ann mundi hann eftir orðum bróður síns heit­ins, um að muna eftir vesk­inu og pass­anum ef hann lenti í svona lög­uðu. „Það er svo hel­vítis mál að fá þetta.“ Og það gerði Valdimar. „Og svo til að vera alveg pott­þéttur þá tók ég tvo sígar­ettu­pakka með mér. Og það kom sé vel því þegar við vorum á síð­unni þarna um nótt­ina var ég sá eini sem var með sígar­ettur.“

Viðtalið má sjá í heild sinni hér þar sem Valdimar lýsir sjó­slys­inu sem varð tveimur mönnum að bana.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ