Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Brian var handtekinn á aðfangadagskvöld að ósekju: „Þau þurftu að vita það af því hann er svartur“

Brian var handtekinn á aðfangadagskvöld að ósekju: „Þau þurftu að vita það af því hann er svartur“
Þórunn og fjöl­skylda

Lög­reglan í Reykja­vík er sögð hafa tekið mann fast­ann á aðfanga­dags­kvöld sem var á leið heim til sín eftir vinnu. Ástæðan var sú að hann hafði ekki skil­ríki á sér en hann er frá Kenía en hefur búið á Íslandi í fjöldi ára.

Þórunn Helga­dóttir skrif­aði Facebook-færslu í kvöld sem vakið hefur mikla reiði en þar segir hún frá raunum stjúp­sonar síns. Þórunn er gift manni frá Kenía og á með honum stjúp­son­inn Brian, sem er 28 ára og 15 ára son­inn Daníel sem þau ætt­leiddu frá Kenía. Hún flutti til Kenía árið 2006 og gift­ist föður Brian ári síðar. Árið 2014 flutti fjöl­skyldan svo til Íslands en Daníel er með rík­is­borg­ara­rétt en Brian og faðir hans með dval­ar­leyfi.

Í færsl­unni segir Þórunn að jólin hjá fjöl­skyld­unni hafi ekki farið eins og ætl­ast var en á aðfanga­dags­kvöld hvarf Brian á leið frá vinnu sinni í Vest­ur­bænum.

„Gleðileg jól öll sömul! Jólin hjá okkur fóru ekki eins og planað var í þetta sinn. Hvernig myndi ykkur líða ef að klukkan 6 á aðfanga­dags­kvöld þá væri einn fjöl­skyldu­með­lim­ur­inn horf­inn? Það kom fyrir okkur,“ segir Þórunn í upp­hafi færsl­unnar og heldur áfram að lýsa því sem kom fyrir Brian.

„Á aðfanga­dag þá var Brian að koma úr vinnu í vest­ur­bænum og ætl­aði að ganga upp á Hlemm til að ná síð­asta strætó heim. Þá kom lög­reglu­bíll upp að honum og þau spurðu hann um skil­ríki. Hann hafði óvart gleymt vesk­inu heima og var ekki með neitt á sér. Þau sögðu við hann að það væri ólög­legt að ganga um skil­ríkja laus og þau gætu hand­tekið hann fyrir það. Svo yfir­heyrðu þau hann á göt­unni um það hver hann væri. Hann sagði til nafns og kenni­tölu en þau sögðu að hann væri að ljúga. Hann bauðst þá til að koma dag­inn eftir á stöð­ina með skil­rík­inn til að sanna hver hann væri en þau sögðu að hann myndi þá reyna að flýja.“

Segir Þórunn að þegar þarna var komið við sögu hafi lög­reglan gabbað Brian upp í lög­reglu­bíl­inn með lof­orði um að hann fengi skutl heim til að sækja skil­ríkin.

„Þá spurði hann hvort þau gætu keyrt hann upp í Breið­holt svo þau gætu skoðað skil­ríkin hans. Þau sögð­ust ætla að gera það en keyrðu svo bara beint á lög­reglu­stöð­ina á Hlemmi í stað­inn. Sögðu að fyrst hann hefði sest sjálf­vilj­ugur upp í bíl­inn þá væri hann hand­tek­inn.“

Þegar á Hlemm var komið segir Þórunn að stjúp­sonur hennar hafi verið yfir­heyrður og sak­aður um lygar. Þá hafi honum verið neitað um vatn og að fara á kló­settið, auk þess sem sím­inn hafi verið tek­inn af honum.

„Þar var hann færður í mót­töku fanga og í yfir­heyrslu. Allt sem hann sagði sögðu þau vera lygi. Sögðu svo að hann yrði að sam­þykkja það að þau færu inn heima hjá honum til að skoða sig um og leita að eit­ur­lyfjum. Ef hann myndi ekki sam­þykkja það þá yrði hann að gista í fanga­geymslu yfir nótt­ina. Hannn sagði að hann gæti ekki sam­þykkt að þeir færu inn í íbúð­ina. Fjöl­skyldan væri heima að halda upp á aðfanga­dags­kvöld. Þau yrðu að bíða fyrir utan meðan hann sækti vega­bréfið. Þau tóku af honum sím­ann og hann fékk ekki að hringja heim. Var sagt að hann gæti bara hringt í lög­fræð­ing. Hvaða lög­fræð­ing er hægt að hringja í á aðfanga­dags­kvöld? Hann fékk ekki vatn að drekka og fékk ekki að fara á kló­settið. Það var öskrað á hann og hann var spurður af hverju hann væri svona aggressívur þegar hann var að reyna að svara og útskýra sitt mál. Að lokum var hann færður í fanga­klefa.“

Þegar þarna var komið við sögu segir Þórunn að rann­sókn­ar­lög­reglu­maður hafi komið að mál­inu og í raun ekki fund­ist þetta þess virði og sagði lög­reglu­menn­ina að skutla Brian heim að sækja skil­ríkin.

„Svo kom loks­ins rann­sókn­ar­lög­reglu­maður í málið sem sagði við félag­ana að þetta væri nú kannski óþarfi og að hann nennti ekki að standa í þessu. Það væri aðfanga­dags­kvöld og hann lang­aði að fara heim og halda jólin. Gaf fyr­ir­mæli um að Brian yrði keyrður heim og skil­ríkin skoðuð þar. Í bílnum hélt löggan áfram að reyna að fá sam­þykki fyrir því að fara inn í íbúð­ina.“

Þórunn segir að á heim­il­inu hafi fjöl­skyldan verið síður en svo í jóla­stuði, enda hafði ekk­ert náðst í Brian allt kvöldið.

„En inni í íbúð­inni vorum við fjöl­skyldan í engu jóla­stuði, ringluð, stressuð og kvíð­inn því ekki náð­ist í Brian. Rétt fyrir klukkan 22 um kvöldið kom lög­g­ann loks­ins með hann. Við vorum mjög fegin að sjá hann en brá að sjá lögg­una. Þau biðu fyrir utan dyrnar en þegar ég kom fram á gang og spurði hvað væri að ger­ast þá kom smá fát á þau. Þau sögð­ust þurfa að vita hver hann væri.“

Þórunn seg­ist hafa fattað ástæð­una af hverju lög­reglan hafi hand­tekið Brian, það væri af því að hann væri svartur á hör­und.

„Á þeirri stundu skildi ég ekki hvers vegna þau þurftu að vita það. Fattaði svo að þau þurftu að vita það af því hann er svartur. Svo flettu þau í vega­bréf­inu að leita að inn­komu stimpli frá þessu ári. Ég sagði að stimp­ill­inn væri nú reyndar frá 2014. Brian sagði mamma við mig og þá bara lok­aði löggan veg­bréf­inu og lét sig hverfa þegj­andi.“

Að lokum segir Þórunn að þetta sé ekki í fyrsta skipti sem fjöl­skyldan hefur orðið fyrir svip­uðu hjá lög­regl­unni.

„Við erum nú búin að lenda í ýmsu með lögg­una. Daníel 15 ára er reglu­lega stopp­aður og það hefur verið leitað á honum. Hann upp­lif­iði það á hátíð­inni túnin heima í Mosó að vera tækl­aður í jörð­ina, fá hné í bakið og hand­járn­aður fyrir framan fullt af fólki. Ástæðan var að hann var að hlaupa á kló­settið en löggan hélt að hann væri að flýja þá af því að hann hefði framið lík­ams­árás. Við höfum ekki verið að blása þetta allt saman upp, en þetta aðfanga­dags­kvöld gekk svo rosa­lega langt að það er erfitt að kyngja þessu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ