Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Sveinbjörn skrapp til Reykjavíkur eftir góða síldarvertíð – Hvarf sporlaust við þekkt sukkhús

Sveinbjörn skrapp til Reykjavíkur eftir góða síldarvertíð – Hvarf sporlaust við þekkt sukkhús
Vest­ur­bær­inn 1930. Myndin er skönnuð af þýsku smá­korti (nr. 44) úr ser­í­unni Zeppelin-Weltfahrten (Nordland-Fahrten 1930).

Sjó­mað­ur­inn Svein­björn Jak­obs­son hvarf spor­laust í Reykja­vík í októ­ber 1930. Hafði hann beiðið leigu­bíls­stjóra að skutla sér til baka að því húsi sem hann hafði sótt hann áður, svo hann gæti sótt pen­ing fyrir far­inu. Aldrei fór hann þó inn í húsið og hefur ekki sést síðan.

Svein­björn Jak­obs­son var fæddur í Reykja­vík 25. jan­úar árið 1884 en sem barn flutti hann með fjöl­skyldu sinni í Stykk­is­hólm og síðar til Ólafs­víkur. Kvæntist hann Guðlaugu Jóns­dóttur frá Svefn­eyjum og áttu þau saman dótt­ur­ina Sigríði en hún fædd­ist 1908. Guðlaug lést hins vegar aðeins fáum árum eftir að þau hófu hjú­skap. Var Svein­birni lýst sem frekar fámálum manni, með­al­manni á hæð, nokkuð grönnum og dökk­hærðum.

Blaðið Íslend­ingur sagði frá hvarfi Svein­bjarnar og ann­ars manns, Péturs Guð­munds­sonar, sem hvarf um svipað leiti en hann fannst mán­uði síðar.

Svein­björn Jak­obs­son frá Ólafsvík, full­orð­inn mann, vantar síðan á fimtu­dags­kvöld, og Pjetur Guð­munds­son vjel­stjóra, sömul. full­orðin mann, vantar einnig síðan á föstu­dags­kvöld. Leit eftir þeim hefir engan árangur borið ; ótt­ast menn, að Pjetur hafi fallið í höfn­ina af slysni, en hins­vegar er sagt, að Svein­björn hafi haft pen­inga með­ferðis og verið búinn að týna þeim, þegar síð­ast frjett­ist til hans akandi í bif­reið um borg­ina.

Alþýðu­blaðið sagði einnig frá hvarf­inu:

Svein­björn Jak­obs­son úr Ólafsvík var staddur hér í Reykja­vík og dvaldi hjá dóttur sinni. Hann hefir ekki sést síðan á fimtu­dag­inn. Var í fyrstu ekki leitað að mun, því að haldið var, að ekki væri neitt athuga­vert við, þótt hann kæmi ekki þangað heim þá þegar; en hann hafði ráð­gert að fara heim­leiðis í fyrra kvöld. Þegar hans varð þá enn ekki vart, var fengin aðstoð lög­regl­unnar til að leita að honum, en hann var ekki fund­inn í gærkveldi, og vita menn ekki, hvað af honum hefir orðið.

Kvöldið örlagaríka

Fram kemur í bók­inni Saknað: Íslensk manns­hvörf eftir Bjarka H. Hall segir að á fimmtu­dag­inn 9. októ­ber 1930 hafi Svein­björn farið að hús­inu Sauða­gerði til að sækja heim Jósefínu Eyj­ólfs­dóttur sem þar bjór. Jósefína er talin vera fyr­ir­mynd spá­kon­unnar Karólínu í kvik­mynd­inni Djöfla­eyj­unni eftir Friðrik Þór Frið­riks­son, sem byggð er á sam­nefndum bókum Einars Kára­sonar. Húsið var á sínum tíma þekkt sem sukk­hús en þar var algengt að menn drykkju þar nokkuð óheflað.

Eftir að Svein­björn hafði dvalið um dágóða stund hjá Jósefínu var pant­aður leigu­bíll handa honum en leigu­bíls­stjór­inn Skúli Egg­erts­son mætti og keyrði Svein­birni að Lauga­vegi 33 en þá kom babb í bát­inn. Svein­björn var ekki með krónu á sér en farið kost­aði þrjár. Bað hann þá Skúla að skutla sér til baka til Jósefínu svo hann gæti sótt krón­urnar sem hann skuld­aði. Það gerði Skúli og sagð­ist Svein­björn rétt ætla að skjót­ast inn og sækja pen­ing­inn. En Skúli beið og beið og var orð­inn nokkuð óþol­in­móður þegar hann sá eig­in­mann Jósefínu, Halldór Sig­urðs­son, ganga eftir göt­unni. Skúli stopp­aði hann og sagði honum frá því að hann væri að bíða eftir Svein­birni. Fór þá Halldór inn á heim­ili sitt en kom aftur skömmu síðar og sagði Skúla að Svein­björn hefði ekki komið aftur inn á Sauða­gerði. Taldi Halldór lík­legt að hann hefði farið fót­gang­andi eftir göngu­stíg sem lá frá þeim og að Meist­ara­völlum en þar hafði hann dvalið í nokkra daga hjá dóttur sinni Sigríði og eig­in­manni hennar, Hjalta Ein­ars­syni. En sú kenn­ing reynd­ist ekki rétt því þangað snéri hann ekki aftur þann dag­inn.

Dóttir Svein­bjarnar var orðin ansi óþreyju­full þegar faðir hennar skil­aði sér ekki stuttu fyrir brott­för á heim­ferð­ar­deg­inum. Hafði hún því sam­band við lög­reglu og upp­hófst þá við­fangs­mikil leit að sjó­mann­inum. Ekki fannst tangur né tetur af Svein­birni að und­an­skil­inni húfu sem hann hafði klæðst dag­inn sem hann hvarf. Í ljósi þess að talið var að hann hefði haft með­ferð­ist tals­vert fé (þrátt fyrir að hafa sagst ekki geta borgað farið með leigu­bílnum) sem hann hafði unnið inn á nýlok­inni síld­ar­ver­tíð, var talið lík­legt að manns­hvarf hans hefði borið að af manna­völdum. Skúli leigu­bíls­stjóri stóð fastur á sínum fram­burði en aldrei fannst nokk­urt sem gat útskýrt hvað hefði orðið um Svein­björn Jak­obs­son.

Við gerð bak­sýn­is­speg­ils­ins var not­ast við heim­ildir úr bók­inni Saknað: Íslensk manns­hvörf eftir Bjarka H. Hall.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni