Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Rússar svindla á Mjólkursamsölunni: „Ekki gert með samþykki Ísey og í raun í óþökk okkar“

Rússar svindla á Mjólkursamsölunni: „Ekki gert með samþykki Ísey og í raun í óþökk okkar“
„Ísey skyr“ í Rúss­landi

Svo virð­ist sem verið sé að fram­leiða og selja skyr í Rúss­landi undir merkjum Ísey skyr, en í apríl 2022 hætti Ísey útflutn­ing ehf. sem er syst­ur­fyr­ir­tæki Mjólk­ur­sam­söl­unnar, fram­leiðslu á Ísey skyr í Rúss­landi, í kjöl­far inn­rásar lands­ins í Úkraínu.

Samkvæmt upp­lýs­ingum Mannlífs er enn verið að fram­leiða skyr undir merkjum Ísey skyr í Rúss­landi en í borgum á borð við Moskvu, V.Novgorod, Sochi og Kislovodsk er hægt að kaupa slíkt skyr. Í lýs­ingu á heima­síðu versl­un­ar­keðj­unnar Vku­sville má sjá tvær týpur „Ísey skyrs“ sem er til sölu þar, segir í laus­legri þýð­ingu: „Hin fræga gerjaða mjólk­ur­vara kemur frá Íslandi. Búið til úr nýmjólk og sér­stakur for­réttur sem gefur skyr­inu rjóma­kennt áferð. Fyll­ingin, búin til með því að bæta við bitum af bök­uðu epli, bætir bragðið af vör­unni með krydd­uðum tónum af bakstri. Skyr er frá­bær val­kostur við jógúrt og hentar vel í morg­un­mat og sem milli­mál.“ Hvergi koma fram upp­lýs­ingar um það hvar varan er fram­leidd. Í einni athuga­semd á síð­unnni segir Gala Lanskaya nokkur að varan sé fram­leidd í heima­borg hennar, V.Novgorod, af fyr­ir­tæk­inu Lactis JSC.

„Ísey skyr“

Þá virð­ast fleiri teg­undir skyrs­ins fram­leitt og selt í Rúss­landi en hér fyrir neðan má sjá bæði hreint skyr og trönu­berja­skyr, undir merkjum Ísey skyr. Eru þær keyptar í versl­un­ar­keðj­unni Per­ekrestok í borg­inni Kislovodsk, í des­em­ber síð­ast­liðnum.


Í apríl 2022 birti Mjólk­ur­sam­salan yfir­lýs­ingu frá syst­ur­fyr­ir­tæki sínu, Ísey skyr sem hljóð­aði svo:

Ísey útflutn­ingur ehf. hefur rift leyf­is­samn­ingi við rúss­neska félagið IcePro um fram­leiðslu og dreif­ingu á skyri undir merkjum ISEY-skyr fyrir Rúss­lands­markað. Ísey útflutn­ingur ehf. hefur haft leyf­is­samn­ing­inn til skoð­unar und­an­farnar vikur vegna stríðs­rekst­urs Rúss­lands í Úkraínu. Samn­ingnum hefur nú verið rift og búið er að til­kynna ákvörð­un­ina til for­ráða­manna IcePro í Rúss­landi. Samhliða þess­ari ákvörðun hefur Kaup­fé­lag Skag­firð­inga dregið sig út úr eign­ar­haldi á félag­inu IcePro. Því er ljóst að fram­leiðslu á skyri undir merkjum ISEY-skyr í Rúss­landi verður hætt og þar með er engin starf­semi á vegum þess­ara fyr­ir­tækja í Rúss­landi. Í ljósi umræðna um sölu á Ísey skyri í Rúss­landi er vert að taka fram að aldrei hefur verið flutt út skyr frá Íslandi til Rúss­lands. Árið 2018 hóf fram­an­greint rúss­neskt félag, í eigu þar­lendra aðila og áður Kaup­fé­lags Skag­firð­inga, fram­leiðslu og dreif­ingu á Ísey skyri í Rúss­landi sam­kvæmt umræddum leyf­is­samn­ingi sem nú hefur verið rift.

Mannlíf hafði sam­band við Ómar Geir Þor­geirs­son, fram­kvæmd­ar­stjóra Ísey skyr en í skrif­legu svari seg­ist hann koma af fjöllum hvað varðar sölu og fram­leiðslu á skyri undir nafni fyr­ir­tæk­is­ins og að erfitt sé að fylgj­ast með þessu.

„Því er til að svara að þessar upp­lýs­ingar koma okkur veru­lega á óvart. Eftir að Rússar hófu stríð­rekstur sinn þá var leyf­is­samn­ingi við rúss­neska félagið IcePro rift þann 7. Apríl 2022.  Nokkru síðar var lokað fyrir að þetta félag gæti fengið afnot af gerl­inum okkar sem er nauð­syn­legur til þess að hægt sé að fram­leiða ÍSEY skyr.

Ef ein­hver er að fram­leiða ÍSEY skyr í Rúss­landi er það ekki gert með sam­þykki ÍSEY útflutn­ings ehf. og reyndar í óþökk okkar.

Nú háttar svo til í Rúss­landi að við eigum erfitt með að fram­fylgja að ekki sé verið að fram­leiða skyr undir okkar merkjum, en við munum gera allt sem í okkar valdi stendur til að þetta muni stöðvast ef rétt reyn­ist.

En þakka þér fyrir ábend­ing­una, við munum afla okkur upp­lýs­inga og bregð­ast við.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ