Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Flutti eldræðu á baráttufundi með Palestínu: „Það er nefnilega ekki allt leyfilegt í stríði“

Flutti eldræðu á baráttufundi með Palestínu: „Það er nefnilega ekki allt leyfilegt í stríði“
Helga Vala Helga­dóttir.

Helga Vala Helga­dóttir hélt magn­þrungna ræðu á bar­áttufundi með Palest­ínu sem hald­inn var á laug­ar­dag­inn. Hún birti ræð­una í heild sinni í gær á Facebook.

Fund­ur­inn á laug­ar­dag­inn var sá fjöl­menn­asti á Íslandi frá því að þjóð­ar­morð Ísraela hófst fyrir þremur mán­uðum en talið er að ríf­lega 2.000 manns hafi mætt. Safn­að­ist fólkið saman fyrir framan utan­ríki­ráðu­neytið á Rauð­ar­ár­stíg og þaðan gekk það fylktu liði niður Lauga­veg­inn og niður á Aust­ur­völl, þar sem haldnar voru til­finn­inga­þrungnar ræður, enda til­efnið til þess ærið. Ein þeirra sem hélt ræðu var Helga Vala Helga­dóttir, lög­maður og fyrr­ver­andi þing­kona Sam­fylk­ing­ar­innar en hún birti ræð­una í heild sinni á Facebook í gær.

Í ræð­unni ein­blíndi Helga Vala á þá sem ekki taka „afstöðu gagn­vart sið­ferð­is­legu ófremd­ar­á­standi“ og skýtur bylm­ings­föstum skotum á rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur, sem ekki hefur enn séð ástæðu til þess að for­dæma þjóð­ar­morðið sem framið er í beinni útsend­ingu fyrir botni Mið­jarð­ar­hafs. „“Heitustu stað­irnir í hel­víti eru frá­teknir fyrir þá sem taka ekki afstöðu gagn­vart sið­ferð­is­legu ófremd­ar­á­standi.“  – svo sagði Dante í sínum Guð­dóm­lega gleði­leik – Mig langar að leggja út frá þessum orðum, og bera þau upp á valda­fólk sem stendur þegj­andi hjá þegar lífi er murkað úr tug­þús­undum barna og full­orð­inna í Palest­ínu – valda­fólk sem ekki svo mikið sem lyftir fingri til að koma þeim til hjálpar. Sum þeirra telja nóg að hvísla sorrý, en nota ekki sinn breiða vett­vang til að koma almenn­ingi í Palest­ínu til hjálpar.“ Þannig byrjar ræða Helgu Völu en í fram­hald­inu talar hún um að líf rík­is­stjórnar Íslands hverf­ist um það sem hún kallar „þeirra eigið litla stríð“ og segir að með­limir stjórn­ar­innar virð­ist hafa „gleymt til­gangi sínum í stjórn­málum sem fyrr á tímum sner­ist um að gera Ísland og heim­inn allan að betri stað en virð­ist nú snú­ast um að gera her­bergið í ráð­herra­bú­staðnum að betri stað fyrir ráð­herrana 12.“ Bætti hún svo við: „Allt skal gert til að lengja lífið í rík­is­stjórn Íslands. Þess vegna má ekki tala um ástandið í Palest­ínu því það er of póli­tískt við­kvæmt þeirra á milli.“

Þá talar Helga Vala um þau mörgu gretti­s­tök sem Ísland hefur náð að lyfta í sinni sjálf­stæð­is­sögu og nefnir sem dæmi um aðild að Sam­ein­uðu þjóð­unum og það þegar við vorum í far­ar­broddi við að við­ur­kenna sjálf­stæði Palest­ínu og Eystra­salts­ríkj­anna. „Hvernig má það vera að það bær­ist ekki hár á höfði for­ystu­fólks rík­is­stjórnar Íslands þegar fréttir ber­ast um að 28000 börn í Palest­ínu hafi ýmist lát­ist eða slasast alvar­lega í árásum Ísra­els­hers frá 7. októ­ber síð­ast­liðnum? Þarna erum við bara að tala um börnin en tala lát­inna í heild eru rúm­lega 23.000 og lík­ast til er tala alvar­lega slas­aðra nærri 70 þús­und. Samtals eru þetta nærri hund­rað þús­und manns á þremur mán­uðum. Þessar ham­farir koma ekki á óvart því við upp­haf stríðs lýstu ísra­elsk stjórn­völd því yfir að þau myndu beita palest­ínska íbúa slíkum aðferðum að þeim má líkja við þjóð­ar­morð og brot gegn mann­kyni eins og það er skil­greint sam­kvæmt alþjóða­lögum. Með því að meina almennum borg­urum um nauð­synjar, vatn, mat, skjól, raf­magn er hægt en örugg­lega verið að murka lífið úr heilli þjóð. Með því að beina árásum sínum á borg­ara­leg mann­virki er ljóst að mark­miðið er útrým­ing þjóðar en ekki stöðvun stríðs.“

Því næst snýr Helga Vala orðum sínum að Bjarna Bene­dikts­syni utan­rík­is­ráð­herra. „„Sagðirðu árás“, spurði íslenski utan­rík­is­ráð­herr­ann á upp­hafs­dögum sínum í hinu nýja emb­ætti, þegar blaða­mað­ur­inn vildi heyra um afstöðu Íslands til árása Ísra­els­hers á almenna borg­ara í Palest­ínu. Það er nefni­lega ekki allt leyfi­legt í stríði. Eins ótrú­lega og það hljómar þá gilda þar ákveðnar leik­reglur – eða skulum við segja, stríðs­reglur.

Hinn íslenski utan­rík­is­ráð­herra er okkar full­trúi á alþjóða­vett­vangi stjórn­mál­anna og það var hann sem kváði þegar notað var orðið árás um þær ham­farir sem ísra­els­her keyrir nú áfram yfir palest­ínskan almenn­ing.“

Helga Vala segir svo frá þeim mikla stuðn­ingi sem íslensk stjórn­völd sýndu Úkra­ínu­mönnum eftir að Rússar réð­ust á landið, með því að veita flótta­fólki þaðan vernd. „Þá höfðum við skjólið en ekki nú. Eini mun­ur­inn er vega­bréfið og póli­tíkin. Palest­ínsk börn, og allur almenn­ingur má bíða á meðan rík­is­stjórn Íslands finnur leið til að geta verið saman í her­bergi í ráð­herra­bú­staðnum. Hér á Aust­ur­velli bíða hins vegar fjöl­skyldu­með­limir eftir því að þau sem þegar hafa fengið dval­ar­leyfi á Íslandi fái útgefna vega­bréfs­á­ritun svo þau kom­ist hingað.“

Að lokum skorar Helga Vala á rík­is­stjórn Íslands til að „leggja niður kut­ana í inn­byrð­is­á­tök­unum, eitt augna­blik“ og ein­blíni á að koma skjóli yfir þær palest­ínsku fjöl­skyldur, „hvort sem þau eru enn að bíða svars hér á landi, eru komin með dval­ar­leyfi hér en kom­ast ekki vegna skorts á Vega­bréfs­á­ritun eða eru hér og hafa fengið synjun vegna laga­tækni­legra atriða.“ Hér má lesa ræð­una í heild sinni:„Heitustu stað­irnir í hel­víti eru frá­teknir fyrir þá sem taka ekki afstöðu gagn­vart sið­ferð­is­legu ófremd­ar­á­standi – svo sagði Dante í sínum Guð­dóm­lega gleði­leik –Mig langar að leggja út frá þessum orðum, og bera þau upp á valda­fólk sem stendur þegj­andi hjá þegar lífi er murkað úr tug­þús­undum barna og full­orð­inna í Palest­ínu – valda­fólk sem ekki svo mikið sem lyftir fingri til að koma þeim til hjálpar. Sum þeirra telja nóg að hvísla sorrý, en nota ekki sinn breiða vett­vang til að koma almenn­ingi í Palest­ínu til hjálpar.Eins sorg­legt og það er þá hverf­ist líf rík­is­stjórnar Íslands um þeirra eigið litla stríð. Þar virð­ist fólk hafa gleymt til­gangi sínum í stjórn­málum sem fyrr á tímum sner­ist um að gera Ísland og heim­inn allan að betri stað en virð­ist nú snú­ast um að gera her­bergið í ráð­herra­bú­staðnum að betri stað fyrir ráð­herrana 12.Allt skal gert til að lengja lífið í rík­is­stjórn Íslands. Þess vegna má ekki tala um ástandið í Palest­ínu því það er of póli­tískt við­kvæmt þeirra á milli.Í ann­ars stuttri sjálf­stæð­is­sögu Íslands höfum við náð að lyfta mörgu grettistak­inu. Fámennt eyríkið sótti snemma um aðild að Sam­ein­uðu þjóð­unum, það var í far­ar­broddi við að við­ur­kenna sjálf­stæði Palest­ínu og Eystra­salts­ríkj­anna. Og við hrósum okkur dig­ur­barka­lega fyrir frum­kvæðið og hug­rekkið en þegar neyðin er mest er pakkað saman og borið við ómögu­leika.Hvernig má það vera að það bær­ist ekki hár á höfði for­ystu­fólks rík­is­stjórnar Íslands þegar fréttir ber­ast um að 28000 börn í Palest­ínu hafi ýmist lát­ist eða slasast alvar­lega í árásum Ísra­els­hers frá 7. októ­ber sl.Þarna erum við bara að tala um börnin en tala lát­inna í heild eru rúm­lega 23.000 og lík­ast til er tala alvar­lega slas­aðra nærri 70 þús­und. Samtals eru þetta nærri hund­rað þús­und manns á þremur mán­uðum.Þessar ham­farir koma ekki á óvart því við upp­haf stríðs lýstu ísra­elsk stjórn­völd því yfir að þau myndu beita palest­ínska íbúa slíkum aðferðum að þeim má líkja við þjóð­ar­morð og brot gegn mann­kyni eins og það er skil­greint sam­kvæmt alþjóða­lögum. Með því að meina almennum borg­urum um nauð­synjar, vatn, mat, skjól, raf­magn er hægt en örugg­lega verið að murka lífið úr heilli þjóð. Með því að beina árásum sínum á borg­ara­leg mann­virki er ljóst að mark­miðið er útrým­ing þjóðar en ekki stöðvun stríðs.„Sagðirðu árás“, spurði íslenski utan­rík­is­ráð­herr­ann á upp­hafs­dögum sínum í hinu nýja emb­ætti, þegar blaða­mað­ur­inn vildi heyra um afstöðu Íslands til árása Ísra­els­hers á almenna borg­ara í Palest­ínu.Það er nefni­lega ekki allt leyfi­legt í stríði. Eins ótrú­lega og það hljómar þá gilda þar ákveðnar leik­reglur – eða skulum við segja, stríðs­reglur.Hinn íslenski utan­rík­is­ráð­herra er okkar full­trúi á alþjóða­vett­vangi stjórn­mál­anna og það var hann sem kváði þegar notað var orðið árás um þær ham­farir sem ísra­els­her keyrir nú áfram yfir palest­ínskan almenn­ing.Fyrir tæpum tveimur árum höfðu íslensk stjórn­völd hins vegar staðið fram­ar­lega í stuðn­ingi við Úkraínu vegna árás­ar­stríðs Rússa sem braust út í febr­úar 2022 og stóð að veg­legum stuðn­ingi við þann fjölda fólks sem hingað kom í leit að vernd, óháð hvaðan það var að koma í raun. Þá höfðum við skjólið en ekki nú. Eini mun­ur­inn er vega­bréfið og póli­tíkin.Palest­ínsk börn, og allur almenn­ingur má bíða á meðan rík­is­stjórn Íslands finnur leið til að geta verið saman í her­bergi í ráð­herra­bú­staðnum. Hér á Aust­ur­velli bíða hins vegar fjöl­skyldu­með­limir eftir því að þau sem þegar hafa fengið dval­ar­leyfi á Íslandi fái útgefna vega­bréfs­á­ritun svo þau kom­ist hingað.„En afsakið inni­lega kæru palest­ínsku börn – rík­is­stjórn Íslands er upp­tekin, og á meðan svo er þá dynur sprengjuregnið yfir ykkur og fjöl­skyldur ykkar.“Stríð eru hrylli­leg og hryðju­verk eru það líka en getum við ekki verið sam­mála um að palest­ínskur almenn­ingur, börn og for­eldrar þeirra, sem enga ábyrgð bera á hryðju­verkum eða stríði, eigi rétt á skjóli hér á landi og eigi að vera sótt án frek­ari tafa til að koma í veg fyrir þær ham­farir sem nú dynja á þjóð­inni – ham­farir af mann­anna völdum en ekki nátt­úru?Ég skora á rík­is­stjórn Íslands að leggja nú niður kut­ana í inn­byrð­is­á­tök­unum – eitt augna­blik – og snúa sér að því að finna örugga lausn til að koma skjóli yfir palest­ínskar fjöl­skyldur, hvort sem þau eru enn að bíða svars hér á landi, eru komin með dval­ar­leyfi hér en kom­ast ekki vegna skorts á Vega­bréfs­á­ritun eða eru hér og hafa fengið synjun vegna laga­tækni­legra atriða.Fólk frá Palest­ínu þarfn­ast okkar, við höfum sýnt að við getum staðið með fólki í svona stór­kost­legri neyð og við eigum einnig að gera það núna og það án tafar.Skömm þeirra sem spila póli­tíska taf­ar­leiki þegar um manns­líf barna og for­eldra þeirra er að ræða mun ekki gleym­ast. Við getum kannski ekki stöðvað árásir Ísra­els­hers og grimmd­ar­verk Hamas sam­tak­anna en við getum skotið skjóls­húsi yfir þolendur þeirra myrkra­verka. Það eigum við að gera.Ég vil enda þessa ræðu á að þakka ykkur öllum fyrir að standa hér ekki síst þakka öllum sem staðið hafa vakt­ina hér und­an­farnar vikur því það hjálpar að minnsta kosti mér að missa ekki alveg trúna á mann­kyn­inu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ