Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Unnustan minnist Lúðvíks Péturssonar: „Hann var kletturinn minn og hversdagsleikinn“

Unnustan minnist Lúðvíks Péturssonar: „Hann var kletturinn minn og hversdagsleikinn“
Unnur og Lúðvík á ætt­ar­móti á Minni­borg í Gríms­nesi með fjöl­skyldu Lúðvíks

Unnusta Lúðvíks Pét­urs­sonar minn­ist hans í Facebook-færslu.

Minn­ing­ar­at­höfn um Lúðvík Pét­urs­son var haldin í Lang­holts­kirkju í dag, föstu­dag­inn 9. febr­úar, en hann týnd­ist í Grinda­vík 10. jan­úar sl. þegar hann var að vinna við að fylla sprungur fyrir Nátt­úru­ham­fara­trygg­ingar Íslands.

Unnur og Lúðvík á ætt­ar­móti á Minni­borg í Gríms­nesi með fjöl­skyldu Lúðvíks

Lúðvík var alinn upp á Kjal­ar­nesi og gekk þar í grunn­skóla allt þar til hann fór í gagn­fræði­skól­ann í Mos­fellsbæ. Hann lærði vél­stjórn í Vélskóla Íslands og vann fjöl­breytt störf, meðal ann­ars starf­aði hann á sjó, við grjót­hleðslu, keyrði vöru­bíl og vann á gröfu. Síðustu árin vann hann hjá Krana­þjón­ustu Rúnars sem vinnu­véla­stjóri og var þekktur fyrir fag­mennsku, verkvit og traust í sínum störfum. Þá var hann vel liðin af vinnu­fé­lögum sínum og eft­ir­sóttur í verk­efni. Lúðvík var faðir fjög­urra barna og tveggja stjúp­barna unn­ustu sinnar og barna­börnin voru tvö.

Fjöl­skyldan i fimm­tugs­af­mæl­is­ferð á Tenerife

Unnur B. Árna­dóttir unnusta Lúðvíks, sem ávallt var kall­aður Lúlli, minn­ist hans sem dug­leg­asta og mest dríf­andi mann­eskju sem hún hefur kynnst, traustum fjöl­skyldu­manni og mat­gæð­ingi sem naut lífs­ins í gegnum fjöl­breytta úti­vist og sam­veru, svo spillti ekki fyrir að hann var líka fynd­inn og skemmti­legur. „Það er óbæri­legur sárs­auki sem fylgir því að missa maka og besta vin í blóma lífs­ins á þennan hátt. Hann var okkur í fjöl­skyld­unni svo mik­il­vægur og ég mun aldrei koma því í orð hversu mik­ill sökn­uð­ur­inn er. Hann var klett­ur­inn minn og hvers­dags­leik­inn,“ segir Unnur í minn­ing­ar­orðum sínum sem hún heim­ilar birt­ingu á til að heiðra minn­ingu Lúðvíks.

Fyrstu kynnin

Unnur og Lúðvík hitt­ust fyrst í Herjólfi á leið til Eyja árið 2020, á leið­inni að keppa í Puffin run hlaup­inu en hún vissi frá fyrstu stundu að þeim var ætlað að vera saman. Það sem heill­aði hana strax við Lúðvík var hans sterka sjálfs­mynd og sjálfs­mat og hvað hann hafði góða nær­veru. Hann tal­aði fal­lega um börnin sín, barna­barnið og aðra fjöl­skyldu­með­limi. Áhugamál þeirra rím­uðu mjög vel en þau höfðu áhuga á úti­vist og hreyf­ingu og líf þeirra sner­ist um að gera sem mest af skemmti­legum hlutum, tvö ein eða með fjöl­skyldu og vinum. „Við upp­lifðum og gerðum margt saman enda varst þú dug­leg­asta og mest dríf­andi mann­eskja sem ég hef kynnst. Þú varst alltaf til í að skipu­leggja og upp­lifa eitt­hvað nýtt og það eru ómet­an­legar minn­ing­arnar þegar við skipt­umst á að skipu­leggja óvissu­ferðir fyrir hvort annað í sum­ar­fr­íum og fórum þá eitt­hvað sem okkur hafði lengi langað til að fara en kannski ekki gert áður eins og til dæmis að fara á kajak, hjóla að Háa fossi, sjó­sund upp á skaga, svo eitt­hvað sé nefnt,“ segir Unnur í minn­ing­ar­orð­unum.

Hlaupa­hóp­ur­inn ,,Mat­ar­klúbb­ur­inn“ í Kirkju­hlaupi með for­seta Íslands á annan í jólum síð­ast­lið­inn. Á mynd­inni eru Sigrún Svein­björns­dóttir, Lúðvík, Örnólfur Valdi­mars­son, Arna Torfa­dóttir, Guðni Th. Jóhann­es­son, for­seti Íslands, Unnur, Ingi­björg Hrönn Pálma­dóttir og Ragn­heiður Stef­áns­dóttir.

Besti ferða­fé­lag­inn

Þau Unnur og Lúðvík ferð­uð­ust víða um landið, ýmist í hefð­bundin ferða­lög með fjöl­skyld­unni eða í úti­vi­star­ferðir. Þau hlupu og hjól­uðu meðal ann­ars Lauga­veg­inn sem er 55 kíló­metra löng leið milli Land­manna­lauga og Þórs­merkur. Allar ferðir sem þau fóru voru með eitt­hvað extra og var metn­aði hans engin tak­mörk sett. Sem dæmi þá bar nestið sem hann útbjó þess skýr merki þegar þau ferð­uð­ust. „Á ferða­lögum stopp­uðum við oft með prímus­inn og hann útbjó mál­tíð, því þegar Lúlli var ann­ars­vegar, þá var ekk­ert venju­legt nesti, það voru alvöru mál­tíðir eins og risa­rækjur og hvít­lauks­brauð með parmesan og pestói. Heiðmörk var okkar upp­á­halds­staður, við hlupum ófáa rík­is­hringi og við fórum líka reglu­lega upp á okkar upp­á­halds fjall, Esjuna. Þetta voru okkar staðir og þér leið vel í nátt­úr­unni. Það var skemmti­leg hefð sem við höfðum skapað okkur að ganga með íslenska fán­ann upp að steini á 17. júní. Það er sárt að hugsa til þess að ferð­irnar verði ekki fleiri með þér,“ segir Unnur í minn­ing­ar­orðum.

Unnur og Lúlli á Kajak á Stokks­eyri

Lúðvík og Unnur ferð­uð­ust víða erlendis og oftar en ekki voru það hreyfit­engdar ferðir, en hann stefndi á að klára heilan járn­karl næsta sumar, eftir að hafa klárað hálfan járn­karl á Ítalíu. Þá hlupu þau mara­þon í Danmörku, fóru í hjóla­ferð á Ítalíu og svo mætti áfram telja. „Upp­á­halds­ferðin okkar var til Hawaii þar sem við hlupum mara­þon sem þú skipu­lagðir fyrir okkur á Maui í tölu­vert heit­ara lofts­lagi en við erum vön. Þú lést draum þinn um að læra á brim­bretti ræt­ast á Hawaii þar sem höfr­ungar og risa­skjald­bökur syntu í kringum brettið,“ segir Unnur enn­fremur.

Lúðvík og Unnur buðu hvort öðru í óvissu­ferðir í sum­ar­fr­íum sínum og hjól­uðu m.a. að Háafossi nálægt Heklu.

„Mér þótti svo vænt um hvað þú tókst börnum mínum vel, Ásu Karen, Árna Fannari og tengda­dótt­ur­inni Söru, svo ekki sé minnst á auga­steinn­inn okkar hann Unnstein Orra. Þú varst í miklu upp­á­haldi hjá honum og hann hjá þér. Eins og börnin mín orð­uðu það um dag­inn: „Það var alltaf svo þægi­legt að vera í kringum þig, þú varst orð­hepp­inn, fynd­inn og skemmti­legur og ein­stak­lega fljótur til svars“.“

Unnur og Lúðvík í sigl­ingu á Hawaii í fyrra.

Unnur og börnin hans eru öll sam­mála því að Lúðvík var besti ferða­fé­lagi sem þau höfðu kynnst og heilögu föstudagspizzukvöldin verða aldrei söm. „Þig lang­aði til að ég kynni að prjóna og varst óþreyt­andi við að biðja mig um lopa­peysu handa þér en ég er engin handa­vinnu­kona. Hins­vegar ákvað ég að prjóna mína fyrstu lopa­peysu sem ég gaf þér í jóla­gjöf síð­ustu jól. Þú varst svo ánægður með peys­una og ert í henni núna,“ segir Unnur að lokum í minn­ing­ar­orð­unum.

Unnur vill koma á fram­færi inni­legu þakk­læti til allra við­bragðs­að­ila og sér­stakar þakkir til þeirra sem sigu ofan í sprung­una í leit að Lúðvík og til áfallateymis Rauða kross­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ