Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Ríkið vill eignast Skrúð – Gerir kröfur til tuga eyja og skerja úti fyrir Austfjörðum

Ríkið vill eignast Skrúð – Gerir kröfur til tuga eyja og skerja úti fyrir Austfjörðum
Ein fal­leg­asta eyja Íslands Mynd: east.is

Íslenska ríkið vill eign­ast Skrúð, auk tuga ann­arra eyja og skerja úti fyrir Aust­fjörðum.

Samkvæmt Aust­ur­frétt hefur íslenska ríkið gert kröfur í tuga eyja og skerja úti fyrir Aust­fjörðum. Þekkt­ustu svæðin eru Skrúður, Bjarn­arey og Hafn­ar­hólmi en Papey er eina eyjan á svæð­inu sem kröf­urnar ná ekki til.

Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra leggur fram kröf­urnar fyrir hönd íslenska rík­is­ins en óbyggða­nefnd, sem er sjálf­stæður rann­sókn­ar­að­ili, fer yfir kröf­urnar og aflar heim­ilda um eign­ar­hald og úrskurðar um það. Nefndin hefur nú opin­ber­lega aug­lýst eftir gagn­kröfum en frestur til að senda þær inn er til 15. maí næst­kom­andi.

Fram kemur hjá Aust­ur­frétt að kröfur rík­is­ins byggi á því að land­svæðin hafi verið utan land­náms, það er að segja að sam­kvæmt frá­sögnum Landámu, hafi land­námið ekki náð til svæð­anna, auk þess að ekki liggi fyrir heim­ildir um að seinna hafi stofn­ast til beins eigna­réttar að svæð­unum.

Rökstuðningur ríkisins

Samkvæmt rök­stuðn­ingi rík­is­ins fyrir kröf­unum segir að um sé að ræða eyjar, sker og aðrar land­fræði­legar ein­ingar sem hafi ekki þótt ábú­an­legar, þó að í nokkrum atvikum hafi verið hægt að hafa af þeim ýmsar nytjar. Þá segir einnig í rök­stuðn­ingnum að þó að til­teknar jarðir eða aðilar hafi í gegnum tíð­ina gert ákall til þess­ara lands­svæða, bendi heim­ildir ekki til að til­kallið grund­vall­ist á beinum eigna­rétti, fyrir utan það að óljóst sé með hvaða hætti umræddir aðilar hafi öðl­ast rétt­indin.

Fram að þessu hefur ríkið ein­ungis gert kröfur í land á meg­in­land­inu en nú er sem sagt farið í svæði innan land­helg­innar sem eru ofan­sjávar á stór­straums­fjöru, eins og það er orðað í Aust­ur­frétt. Líklegt þykir að þetta verði loka­verk­efni Óbyggða­nefndar.

Einungis ein eyja við Aust­firði er und­an­skilin kröf­unn en það er Papey. Ástæðan er sú að hún var byggð í ára­tugi eftir að lög um hefð tóku gildi árið 1905. Þó er lýst kröfum í sker í kringum eyj­una. Fyrir utan nafn­greindar eyjar og sker úti fyrir Aust­fjörðum, eru gerðar kröfur í ónafn­greind sker sem standa upp úr á stór­staums­fjöru. Þá áskilur ríkið sér rétt til að bæta við svæðum á rann­sókn­ar­tím­anum.

Hér má svo sjá lista Aust­ur­fréttar af helstu eyjum og skerjum sem ríkið vill eign­ast á Aust­fjörðum:

Álfta­fjörður: Vigur, Skarfa­kambar, Ílsker, Skipa­manna­hólmi, Óseyjar, Marksker, Lyng­hólmi, Brim­ils­nes, Þrúða, Skelja­teigur, Nesbjörg, Skjöldur, Hró­mundsey, Kambur, Þvott­ár­eyjar, Hval­bakur
Beru­fjörður og Ham­ars­fjörður: Búlandseyjar, Sandey, Beru­fjarð­ar­eyjar
Breið­dalur: Breið­dals­eyjar, Axarsker, Stampi, Selvogur
Fáskrúðs­fjörður: Æðarsker og Andey, Skrúður
Reyð­ar­fjörður: Hólma­hólmar, Seley
Borg­ar­fjörður: Hafn­ar­hólmi
Vopna­fjörður: Bjarn­arey, Skip­hólmi og Miðhólmi, Leið­ar­hafn­ar­hólmi

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Landið

Landið

Límdu yfir hraða­mynda­vél lög­reglu

„Það er svo sannarlega þörf á hraðamælingum“
Landið

Forbes vekur athygli á nýju ferða­manna­gjaldi á Íslandi

Landið

Breskur stór­mið­ill velur fimm stór­kost­leg­ustu fossa Íslands

Landið

Vilja vernda nátt­úruperlu í Skriðdal

Landið

Skortur á leik­skóla­plássum tefur end­ur­komu starfs­fólks HSA

Landið

Björg­un­ar­bún­aður og bætt öryggi til skoð­unar við Stuðla­gil