Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Starfsmaður Sorpu öskraði á tvo drengi: „Þetta eru orðnir bara einhverjir vesalingar í dag“

Starfsmaður Sorpu öskraði á tvo drengi: „Þetta eru orðnir bara einhverjir vesalingar í dag“
Eldur og Arnþór Mynd: Trausti Hafsteinsson

Tveir ungir vinir lentu í leið­in­legri reynslu í sept­em­ber árið 1991. Þeir Eldur og Arnþór sögðu frá því í DV er þeir hjól­uðu fram­hjá Sorpu við Sléttu­veg og hugð­ust henda sitt­hvorri kókó­mjólk­ur­fernum í gám inni á gáma­stöð Sorpu. Ekki var starfs­maður Sorpu ánægður með heim­sókn drengj­anna og veitt­ist að þeim með blóts­yrðum og dóna­skap. Tók hann svo fast í upp­hand­legg ann­ars þeirra og sagði þeim svo að hypja sig.

Starfs­mað­ur­inn hafði aðeins öðru­vísi sögu að segja þegar blaða­maður DV ræddi við hann og sagði dreng­ina hafa verið að hanga inni á svæð­inu sem sé hættu­legt börnum vegna bíla­um­ferð­ar­innar þar. Við­ur­kenndi hann þó að hafa öskrað á þá og að hafa gripið í upp­hand­legg ann­ars þeirra og taldi það lítið mál og sagði ung­linga vera orðna svo mikla ves­al­inga.

Hér fyrir neðan má lesa frétt DV frá 13. sept­em­ber árið 1991.

Starfs­maður á gáma­stöð Sorpu:



Brást illa við er tveir piltar hentu rusli

– voru að hangsa, segir starfs­mað­ur­inn

„Við áttum leið fram­hjá gáma­stöð Sorpu við Sléttu­veg og ætl­uðum að henda sinn hvorri kókó­mjólk­ur­fern­unni í gám. Við sáum vörð­inn þegar við hjól­uðum inn á svæðið en héldum bara áfram og hentum fern­unum í gám­inn,“ sagði Eldar Ást­þórs­son en hann og vinur hans urðu fyrir heldur óskemmti­legri reynslu í vik­unni. „Þegar við höfðum hent fern­unum í gám­inn kemur vörð­ur­inn og byrjar strax að öskra á okkur. Hann blót­aði heil­mikið og sagði okkur að hypja okkur á brott. Við höfðum ekki sagt orð en þegar vinur minn spurði hvers vegna hann væri að reka okkur hélt mað­ur­inn bara áfram að öskra,“ sagði Eldar. Eldar sagði að vinur sinn hefði þá farið út af svæð­inu og að sjálfur hefði hann verið á leið­inni í burtu þegar starfs­mað­ur­inn vatt sér að honum. „Hann tók helj­ar­innar fast í hand­legg­inn á mér, ég er enn aumur, og hélt mér. Ég veit ekki hvort hann ætl­aði að ráð­ast á mig en hann var kom­inn mjög nálægt mér. Ég sagði honum þá að hann gæti ekki ráð­ist á mig og þá sleppti hann tak­inu en hélt áfram að öskra á okkur, sagði að þetta væri ekki staður fyrir okkur og að við skyldum hypja okkur. Við vorum farnir þaðan út innan fimm mín­útna og við vorum ekk­ert að rífa kjaft. Það eina sem við spurðum var hvers vegna hann væri að reka okkur. Hann hefur kannski vonda reynslu af ung­lingum, ég veit það ekki,“ sagði Eldar.

Starfs­mað­ur­inn, sem hér á í hlut, Ingimar Urban, lítur öðrum augum á málið: „Þeir voru ekki að henda neinu á meðan ég sá til þeirra og ég var búinn að horfa á þá hérna úr skúrnum í þónokkra stund. Þeir voru bara að þvæl­ast hjá gámunum. Hér er alltaf fullt af börnum að þvæl­ast inni á svæð­inu og við erum að reyna að halda þessu í burtu því þau hafa ekk­ert hér að gera á reið­hjólum. Hér er bull­andi umferð inn á plönin allan dag­inn og ef það verður slys, hvað þá? Er þá ekki farið í blöðin og spurt af hverju við rekum börnin ekki út?“ sagði Ingimar. Aðspurður hvort drengirnir hefðu gert eitt­hvað af sér sagði Ingimar svo ekki vera. „Þeir gerðu ekk­ert af sér annað en það að vera að þvæl­ast hér inni á svæð­inu. Ég var bara búinn að fá nóg af börnum hér inni á svæöinu um morg­un­inn, þetta er ekki opið svæði. Ég bara rak þá út. Ég tók í upp­hand­legg­inn á öðrum og bað hann um að fara og þeir virt­ust ekki ætla að ansa því. Hafi ég meitt hann, ja ég veit það ekki, þetta eru orðnir bara ein­hverjir ves­al­ingar í dag. Þó ég taki í upp­hand­legg­inn á drengnum. Sá eitt­hvað á honum? Er hann með lækn­is­vott­orð?“ Ingimar sagði að þegar hann hefði reynt að fá dreng­ina til að fara út af svæð­inu hefðu þeir ekki ansað því neinu, eins og stráka væri vani í dag. „Þeir voru bara með stífni og sögðu að mér kæmi þetta ekki við. Þá tók ég í hand­legg­inn á stráknum og bað hann að fara út af. Ef ég hefði átt að fara að strjúka honum og gera eitt­hvað fyrir hann til þess að fá hann til þess að fara út af þá nenni ég ekki að standa í því. Krakkar eiga bara að gegna.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ