Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Skotið á Guðjón á rjúpnaveiðum: „Ég skalf og nötraði eftir þessa lífsreynslu“

Skotið á Guðjón á rjúpnaveiðum: „Ég skalf og nötraði eftir þessa lífsreynslu“
Guðjón var að reyna veiða rjúpu – Mynd: Wikipedia

„Ég var að klöngr­ast upp í brekk­una og klifra þarna í haft­inu þegar ég fann allt í einu þyt við höfuð mér. Ég sneri mér við og leit um öxl og sá þá mann í jeppa á veg­inum um 150 metra frá mér. Ég hugs­aði með mér í skelf­ingu hvort það gæti verið að hann væri að skjóta á mig,“ sagði Guðjón Björns­son rjúpna­skytta í við­tali við DV árið 1996 en atvikið átti sér stað í landi Hrauns í Fljótum, rúmum 20 kíló­metrum frá Siglu­firði. Guðjón var ásamt félaga sínum að veiða rjúpur þegar atvikið gerð­ist.

„Hann ók í burtu þegar hann sá að ég veitti honum eft­ir­tekt. Síðan sneri hann við og þrus­aði tveimur eða þremur hagla­skotum. Þar með vissi ég að hann var að fæla okkur úr fjall­inu. Ég var alveg skít­hræddur og öskr­aði á hann hvort hann væri orð­inn brjál­aður. Síðan skaut ég með minni byssu upp í bergið og þá var eins og hann rank­aði við sér og að því búnu fór hann í burtu,“ sagði Guðjón og tók fram að honum liði mjög illa eftir þetta atvik.

„Ég skalf og nötr­aði eftir þessa lífs­reynslu og við fórum heim. Ég lagði mig og vakn­aði með martröð, kóf­sveittur. Svo fór ég á lög­reglu­stöð­ina og gaf skýrslu um atburð­inn,“ sagði veiði­mað­ur­inn.

Samkvæmt heim­ildum DV var mað­ur­inn sem skaut í átt Guðjóns ekki land­eig­andi stað­ar­ins en hann sé sjálfur með leyfi til að veiða á svæð­inu. 

„Spum­ingin er hvort hann skaut úr rifflii fyrst eða hvort mér mis­heyrð­ist. Það liggur fyrir að hann skaut hagla­skot­unum og ég hirti skot­hylkin af veg­inum. Ég vil ekk­ert segja um sekt hans en krafa mín er sú að málið verði rann­sakað,“ hélt Guðjón áfram. „Ég ætla ekki að halda því fram að ég hafi haft leyfi til að veiða þarna. Það er heldur ekki málið og það sem ég vil er að rann­sakað verði hvað mann­inum gekk til. Það er óþol­andi að eiga yfir höfði sér slíka atburði. Ég hef enn ekki fengið botn í það hvað mann­inum gekk til,“ sagði Guðjón lokum.

Samkvæmt DV neit­aði hinn meinti árás­armaður öllum ásök­unum og lagði fram gagnkæru á hendur Guðjón en ekki kom fram hvers vegna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni