Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Hermína ósátt með framgöngu skattstjóra: „Leggja kvenfélög sérstaklega í einelti“

Hermína ósátt með framgöngu skattstjóra: „Leggja kvenfélög sérstaklega í einelti“
Skatt­ur­inn – Mynd: Skatturinn

Hermína Gunn­ars­dóttir var gíf­ur­lega ósátt með vinnu­brögð skatt­stjóra árið 1996.

„Ég get ekki séð annað en þetta sé her­ferð skatts­ins gegn kven­fé­lögum. Það er erfitt að túlka þetta með öðrum hætti. Þá er hætt við því að áhugi fyrir því að vinna að góð­gerð­ar­störfum minnki við þetta. Maður spyr sig hvort um sé að ræða átak gegn kven­fé­lög­unum í land­inu eða hvort um sé að ræða aðeins ein­stök félög. Okkur er þetta alveg óskilj­an­legt,“ segir Hermína Gunn­ars­dóttir, for­maður Kven­fé­lags­ins Bjarkar á Hvamms­tanga, í sam­tali við DV árið 1996 um málið. „Hér eru íslenskar gæsalappir“

Forsaga máls­ins var sú að kven­fé­lagið fékk bréf frá skatt­stjóra þar sem gerð var krafa á að félagið greini frá starfi sínu og virð­is­auka­skatti. Í bréf­inu var félag­inu gef­inn kostur á að skýra mál sitt innan fárra daga eða sæta við­ur­lögum. Hermína sagði við DV að félagið haldi köku­basara, skemmt­anir og selji bækur með eigin upp­skriftum og að bréf skatt­stjóra hafi ekki verið vin­sælt innan félags­ins. 

„Þetta leggst illa í félags­menn. Öll þessi vinna sem að baki er og unnin er í ann­arra þágu. Starf­semi okkar er ein­göngu hugsuð sem góð­gerð­ar­starf­semi. Eins og önnur kven­fé­lög sem ég þekki til byggir starfið á því að líkna þeim sem erfitt eiga og vinna að verk­efnum sem koma sam­fé­lagi okkar til góða. Það er frá­leitt að hér sé um gróða­starf­semi að ræða. Oft á tíðum lætur maður heim­ilið og börnin sitja á hak­anum en þá fer maður að hugsa að rétt væri að hætta þessu. Þá kemur upp í hug­ann að maður sé þó að láta gott af sér leiða og heldur áfram. Þetta er gíf­ur­leg vinna sem lendir á félags­mönnum og oft lítið upp úr þessu að hafa. Það veldur mér miklum áhyggjum að það muni koma niður á félags­starf­inu ef farið verður að skatt­leggja þetta. Fólk muni ekki nenna að standa í þessu,“ sagði Hermína.

Hún tók fram að félagið styrki ýmiss konar fólk sem eigi um sárt að binda og gefi börnum bibl­íur og hjálma. Þá hafi félagið styrkt bygg­ingu kapellu á sjúkra­húsi.

„Við höfum gefið Krabba­meins­fé­lag­inu, Vímu­lausri æsku og ýmsum öðrum sem eru að vinna sam­fé­lags­leg störf. Það eina sem félags­konur veita sér á vegum félags­ins eru nám­skeið sem við höldum fyrir okkur sjálfar. Að lang­mestu leyti fer því fjár­öflun okkar til góð­gerð­ar­mála. Það er á hreinu að við getum ekki staðið undir því fjár­hags­lega að halda flókið bók­hald. Þetta er hug­sjóna­starf sem ekki má við miklum trufl­unum,“ segir Hermína

Bogi Sig­ur­björns­son, skatt­stjóri Norð­ur­lands vestra, gaf lítið fyrir gagn­rýni Hermínu í DV.

„Ég vil alfarið hafna því að verið sé að leggja kven­fé­lög sér­stak­lega í ein­elti. Okkar hlut­verk er að fylgj­ast með hvers konar málum, þar á meðal því hvað hvers konar félög, hvort sem það eru ung­menna­fé­lög, íþrótta­fé­lög eða önnur félög, eru að gera. Að baki liggja m.a. sam­keppn­is­sjón­ar­mið. Ef við fylgd­umst ekki með þessum málum þá stæðum við okkur ein­fald­lega ekki í starfi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni