Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Minnist eineltisins og hatursins: „Þessi 29 ár hafa bæði verið góð og slæm þó aðallega góð“

Minnist eineltisins og hatursins: „Þessi 29 ár hafa bæði verið góð og slæm þó aðallega góð“
Anna Krist­jáns­dóttir

Í dag eru liðin 29 ár frá því að Anna Krist­jáns­dóttir fór í kyn­leið­rétt­inga­að­gerð í Svíþjóð. Anna minn­ist þess í dag­bók­ar­færslu dags­ins.

Vél­stjór­inn og húmorist­inn Anna Krist­jáns­dóttir rifjar upp eft­ir­mála þess er hún lét leið­rétt kyn sitt í Stokk­hólmi 24. apríl árið 1995 en næstu ár á eftir reynd­ust henni erfið.

„Dagur 1716 – Merk­is­dagur.

Ég gleymi aldrei þeim merk­is­degi, 24. apríl 1995 er ég vakn­aði eldsnemma að morgni á Kar­ólínska sjúkra­hús­inu í Solna (Stokk­hólmi) og var síðan keyrð í sjúkra­rúmi niður á skurð­að­gerð­ar­svið þar sem ég fékk sprautu og sofn­aði, kannski ekki að eilífu, en til nýs lífs.Síðan þá eru liðin 29 ár. Þessi 29 ár hafa bæði verið góð og slæm þó aðal­lega góð. Fyrstu árin voru þó erfið.“ Þannig hefst dag­bók­ar­færsla Önnu sem hún birti á Facebook í morgun.

Því næst útskýrir hún af hverju fyrstu árin voru erfið:

„Ég hafði gert mér vonir um að íslenska þjóðin væri orðin sæmi­lega upp­lýst um til­veru trans­fólks og því átti ég von á góðri mót­töku er ég flytti til Íslands ári eftir aðgerð­ina mína, en það var öðru nær. Ef ekki hefði verið fyrir stuðn­ing innsta vina­hóps­ins hefði ég flust aftur til Sví­þjóðar innan þriggja mán­aða, en ein­hvern­veg­inn tókst mér að þrauka af fyrstu mán­uð­ina og síðan árin, kannski fyrst og fremst fyrir stuðn­ing örfárra ein­stak­linga á borð við Jónínu Leós­dóttur og síðan Emils Thoraren­sen þáver­andi útgerð­ar­stjóra hjá Alla ríka á Eski­firði og síðar Skúla Waldorffs starfs­manna­stjóra Hita­veitu Reykja­víkur er ég hóf þar störf haustið 1996 sem og fleiri aðila sem reynd­ust mér mjög vel.“

Segir hún að árin hafi svo liðið og áskor­anir hafi mætt henni sem í dag yrðu flokkuð sem ein­elti og ofbeldi.

„Árin liðu og ég þurfti að standa bein gagn­vart allskyns áskor­unum sem í dag yrðu flokkuð sem ein­elti, fyr­ir­litn­ing og hatur, jafn­vel lík­am­legt ofbeldi en um leið hitti ég fjölda fólks sem stóð með mér og studdi. Það breytti ekki því að um tíu ára skeið var ég nán­ast útmáluð sem „The only Trans in the Village“ svo vitnað sé í bresku gam­an­þætt­ina Little Britain.“ En svo breytt­ist allt:

„Árið 2006, tíu árum eftir að ég flutti til Íslands, breytt­ist allt. Þá komu fleiri trans­mann­eskjur fram í dags­ljósið og þar með missti ég tit­il­inn „The only Trans in the Village“ og við voru orðin hópur. Við höfðum vissu­lega verið það allan tím­ann, en þessi fyrstu tíu erf­iðu ár var ég nán­ast ein um að þurfa að tjá mig opin­ber­lega um mál­efni trans­fólks á Íslandi.“

Anna segir að þeir ein­stak­lingar sem hafi sýnt henni hvað mesta hat­rið séu fyrir löngu búin að sjá að sér.„Fólkið sem sýndi mér fyr­ir­litn­ingu fyrir nærri þremur ára­tugum síðan er löngu búið að sjá að sér og hefur lang­flest skipt um skoðun gagn­vart mér og eru sum þeirra góðir vinir mínir í dag, Vissu­lega þurftum við að mæt­ast á miðri leið í ein­hverjum til­fellum, en við náðum saman á end­anum og erum vinir í dag.“

Að lokum seg­ist Anna vera löngu hætta að berj­ast og farin að njóta lífs­ins á sól­ar­strönd.

„Í dag er ég löngu hætt að berj­ast fyrir til­veru okkar og nýt dag­anna á sól­ar­strönd. Um leið horfi ég til baka og þakka fyrir alla þá daga sem ég var ekki lamin, þeir voru samt nokkrir. Nú hefur yngra fólkið tekið við hlut­verk­inu og ég er komin í hlut­verk stein­ald­ar­trans­kon­unnar, þeirrar sem var en er varla lengur nema sem bar­átta gam­alla tíma, nán­ast eins og forn­ald­ar­mann­eskja.Það er stundum erfitt að vera fyrst til að koma fram opin­ber­lega, en ein­hver þurfti að taka það að sér og því miður lenti það á mér. Sem betur fer er ég enn á lífi með bros á vör í sól­inni suður undan ströndum Afríku.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ