Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Stefán og Faðirvorið

Stefán og Faðirvorið
Kristín Helga Gunn­ars­dóttir. Mynd: Facebook.

Stefán E. Stef­áns­son, blaða­maður Moggans, hefur lagt upp í her­ferð gegn öllum þeim sem tengja saman starf hans og störf eig­in­konu hans, Söru Lindar Guð­bergs­dóttir, settan orku­mál­stjóra. Alkunna er að Mogginn birti upp­lýs­ingar úr bók­haldi Orku­stofn­n­unar sem áttu að sýna fram á spill­ingu og vina­væð­ingu for­seta­fram­bjóð­and­ans  Höllu Hrundar Loga­dóttur.

Kristín Helga Gunn­ars­dóttir rit­höf­undur náði að espa blaða­mann­inn svo um munar með því að tengja saman þau hjón vegna umfjöll­unar Moggans um Höllu Hrund sem hún kenndi að hluta við ósið­lega lægð í íslenskri blaða­mennsku. Stefán hjólar í Kristínu, sem nýtur virð­ingar og aðdá­unar fyrir bækur sínar, og bendir á að hún sé að hluta til á fram­færi skatt­greið­anda.

„Rétt og sið­legt finnst henni að blanda kon­unni minni inn í málið og níða af henni skó­inn – bara svona í kaup­bæti. Þetta er mann­eskja sem gefur sig út fyrir að skrifa og gefa út barna- og ung­linga­bækur. Reyndar á minn kostnað og ann­arra skatt­greið­enda sem fáum ekk­ert að segja um þann fjár­austur sem engu skilar til sam­fé­lags­ins,“ segir Stefán í færslu sinni á Facebook.

Blaða­mað­ur­inn gleymir í glósu sinni að hann er sjálfur á fram­færi skatt­borg­ara sem leggja fjöl­miðli hans til rúm­lega 70 millj­ónir króna á ári í fjöl­miðla­styrk. Þannig standa skatt­borg­arar undir launum hans ekki síður en launum rit­höf­unda. Þess utan er Stefán á fram­færi Guð­bjargar Matth­í­as­dóttur, umdeildrar auð­konu í Vest­manna­eyjum, sem hefur haldið Mogganum í botn­lausu tapi á floti með fram­lögum sem telj­ast í millj­örðum króna.

Kvein­stafir Stefáns lýsa í besta falli tvö­földu sið­ferði. Fað­ir­vor­inu snúið upp á  skratt­ann, enn og aftur …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Slúður