Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Löggan kom klukkutíma eftir að Auður fann „lífvana“ dreng á götunni:„Aðstæðurnar voru stjórnlausar“

Löggan kom klukkutíma eftir að Auður fann „lífvana“ dreng á götunni:„Aðstæðurnar voru stjórnlausar“
Myndin teng­ist frétt­inni ekki beint

Auður Jóns­dóttir rit­höf­undur kom að með­vit­und­ar­lausum dreng í hádeg­inu en hann hafði verið að dimmitera. Afar erf­ið­lega gekk að fá við­bragðs­að­ila á vett­vang.

Auður Jóns­dóttir

Rit­höf­und­ur­inn Auður Jóns­dóttir sagði frá sjokker­andi reynslu sinni frá því í hádeg­inu, á Facebook en hún kom að með­vit­und­ar­lausum dreng sem lá á göt­unni en hann hafði verið að dimmitera með félögum sínum.

„Lífvana drengur lá á göt­unni fyrir utan Subway upp úr hádegi. Erfitt að greina lífs­mark og augun lukt aftur til hálfs. Inni voru félagar í bún­ingum að dimmitera. Þegar var engin leið að ná til hans hringdi ég á sjúkra­bíl en þá voru nokkrir drukknir ung­lingar komnir út.“ Á þessum orðum hefst frá­sögn Auðar.

Segist Auður hafa verið sagt að hún gæti ekki fengið sjúkra­bíl þar sem lög­reglan þyrfti fyrst að mæta á vett­vang. Aðstæð­urnar urðu brátt „stjórn­lausar“:

„Mér var tjáð að ég gæti ekki fengið sjúkra­bíl, fyrst þyrfti löggan að koma og meta aðstæður. Svo mér var beint að lögg­unni og bað um bíl. Smá lífs­mark bær­ist með drengnum og vin­irnir byrja að hnoð­ast með hann sem var stærri en þau flest og höfuð hans flengd­ist fram og aftur. Skít­hrædd reyndi ég að fá þau til að fara ekki að drösl­ast með hann með flökt­andi með­vit­und en aðstæð­urnar voru stjórn­lausar. Þau flest mjög drukkin að reyna að bera hann áfram og næstum missa, þar til þau skelltu honum á bekk við Prikið. Þar ælir hann og ælir, milli þess sem hann missir með­vit­und, krakk­arnir remb­ast við að halda honum meðan sum reyna að reka mig í burtu og önnur að reyna að hjálpa.“

Auður seg­ist hafa hringt aftur í neyð­ar­lín­una en er gefið sam­band við lög­regl­una. Rit­höf­und­ur­inn seg­ist hafa verið orðin mjög hvöss þegar þarna var komið við sögu. Þrátt fyrir það þurfti Auður að bíða enn um stund eftir aðstoð.

„Þarna er liðin löng stund og ég hringi aftur í 112 og fæ aftur sam­band lögg­una. Þá vita þeir ekki hvenær bíll­inn kemur. Ég var þarna orðin ansi hvöss og það ágerð­ist þegar ég var spurð af lögg­unni hvernig ætti að senda bíl ef eng­inn væri laus. Aftur er strák­ur­inn eins og líf­vana, en tveir vinir ná að halda honum með herkjum svo höfuð hans hend­ist ekki í vegg eða stétt­ina. Hann var of stór til að ég treysti mér til að leggja hann slysa­laust á göt­una með aðstoð drukk­inna ung­linga. Starfs­fólk á Prikinu hafðu þá fyrir ein­hverri stundu sagst ætla að hringja á hjálp, sem þau hafa lík­lega gert en ekk­ert bólaði á lögg­unni. Þá hringdi ég mjög hvöss aftur í 112 og ítrek­aðu beiðni um sjúkra­bíl ef eng­inn löggu­bíll væri laus. Þá var sagt við mig að því miður væru svo margir að slasa sig í augna­blik­inu að það þyrfti að for­gangs­raða. Þau bara hefðu ekki bíla! Þarna var lík­lega farið að slaga upp undir klukku­tíma síðan ég hringdi, vinir stráks­ins líka orðnir hissa á bið­inni og strák­ur­inn ennþá með­vit­und­ar­laus en átak fyrir þá að halda honum svo hann myndi ekki skella fram fyrir sig.“

Að lokum kom þó lög­reglan og Auður hélt för sinni áfram.

„Svo loks kom löggan. Man ekki hvort ég var búin að hringja einu sinni enn. Og þeir byrja að pota í strák­inn sem rankar aðeins við sér og gubbar smá vatni og meira veit ég ekki því mín var ekki þörf lengur. En svona getur verið stór­hættu­legt og eig­in­lega ætti að vera sér­stök gæsla í mið­bænum þegar krakkar eru að dimmitera.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ