Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Sárasótt endanlega staðfest á Skriðuklaustri – Elsta dæmi um sjúkdóminn á Íslandi

Sárasótt endanlega staðfest á Skriðuklaustri – Elsta dæmi um sjúkdóminn á Íslandi
Ein af beina­grind­unum sem grafnar voru upp á Skriðuklaustri. Mynd: Björgvin Gunnarsson

All­nokkrir sjúk­lingar á Skriðuklaustri á 16. öld þjáð­ust af sára­sótt. Þetta hefur nú verið stað­fest með nýjum grein­ingum á beina­grindum sem grafnar voru upp á árunum 2002 til 2012.

Kenn­ingar um það að þó nokkrir sjúk­lingar á Skriðuklaustri í Fljóts­dals, hafi þjáðst af sára­sótt höfðu áður verið viðr­aðar eftir venju­bundnar manna­beina­grein­ingar frá klaustr­inu en voru þær nið­ur­stöður dregnar í efa vegna þess að talið var að sjúk­dóm­ur­inn hafi ekki borist til Íslands þegar klaustrið var í rekstri, snemma á sext­ándu öld. Aust­ur­frétt segir frá hinni merki­legu upp­götvun.

Frá upp­greftrinum á Skriðuklaustri sum­arið 2008.

Nýjar grein­ingar for­efða­fræði­tækn­innar [fornDNA] sýna fram á að sára­sótt hafi sann­ar­lega borist til Íslands svo snemma en ekki fékk aðeins stað­fest­ing á sjúk­dóm­inum í beinum sjúk­ling­anna, heldur er einnig um að ræða elstu dæmi um sára­sótt á Íslandi.

Steinunn J. Krist­jáns­dóttir, pró­fessor í for­leifa­fræði kynnti hinar merku nið­ur­stöður á Lækna­þingi í vetur en hún stjórn­aði upp­greftri og rann­sóknum á rústum Skriðuklaust­urs frá 2002 til 2012.

Í umfjöllun Aust­ur­fréttar segir að ekki sé mikið mál að ráða við sára­sótt­ina í dag en á mið­öldum var raunin önnur. Kvika­silfur var þá helsta með­alið gegn sjúk­dóm­inum og var sú með­ferð notuð á sjúk­lingum Skriðuklaust­urs.

Ein af beina­grind­unum sem grafin var upp á Skriðuklaustri árið 2008.

Í heild­ina greind­ist merki um sára­sótt í 21 beina­grind í kirkju­garði klaust­urs­ins, bæði áunna og með­fædda, af þeim 300 beina­grindum sem grafnar voru þar. Af þeim fjölda voru 150 grafir sjúk­linga og er því, töl­fræði­lega, um að ræða frekar stóran hluta af sjúk­lingum með sótt­ina, eða 14 pró­sent. Samkvæmt rann­sóknum Stein­unnar var eng­inn þeirra sjúk­linga sem þjáð­ust af sára­sótt­inni, jarð­aður í kistu, af ein­hverjum ástæðum.

Steinn­unn á Lækna­þing­inu: „Aðal­at­riðið er að búið er að stað­festa með fornDNA grein­ingum að sjúk­lingar í Skriðuklaustri voru með sára­sótt. Það var á meðan klaustrið var í rekstri á fyrri hluta 16. aldar. Búið var að greina sára­sótt­ina með hefð­bundnum manna­beina­grein­ingum en margir efuð­ust um að grein­ingin væri rétt, því venju­lega er talið að sára­sótt hafi ekki borist til Íslands fyrr en á síð­ari tímum. Nú er sem sé búið að stað­festa þetta með fornDNA grein­ingu. Grein­ing­arnar hafa sömu­leiðis sýnt að það voru Íslend­ingar sem voru jarð­aðir við klaustrið. Engin dæmi eru um bein þaðan sem til­heyrðu mann­eskju af erlendum upp­runa.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Landið

Landið

Límdu yfir hraða­mynda­vél lög­reglu

„Það er svo sannarlega þörf á hraðamælingum“
Landið

Forbes vekur athygli á nýju ferða­manna­gjaldi á Íslandi

Landið

Breskur stór­mið­ill velur fimm stór­kost­leg­ustu fossa Íslands

Landið

Vilja vernda nátt­úruperlu í Skriðdal

Landið

Skortur á leik­skóla­plássum tefur end­ur­komu starfs­fólks HSA

Landið

Björg­un­ar­bún­aður og bætt öryggi til skoð­unar við Stuðla­gil