Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Morðingi Rachel Morin er hinn 23 ára Victor Hernandez: „Geðheilsa mín hefur snarbatnað“

Morðingi Rachel Morin er hinn 23 ára Victor Hernandez: „Geðheilsa mín hefur snarbatnað“
Morin og Hernandez Mynd: Trausti Hafsteinsson

Fjöl­skyldu­með­limir Rachel Morin segj­ast „loks­ins“ vera að ná rétt­læti fyrir morðið á hinni fimm barna móður en meintur morð­ingi hefur nú verið hand­tek­inn, 10 mán­uðum eftir hið hrotta­lega morð. Hinn meinti morð­ingi er einnig grun­aður um morð í El Salvador.

Rachel (37), sem bjó í Maryland í Banda­ríkj­unum, var nauðgað og myrt eftir að hafa farið út að hlaupa í ágúst 2023. Meintur morð­ingi hennar er Victor Martinez Hernandez (23), óskráður inn­flytj­andi frá El Salvador.

Yfirvöld fundu líf­sýni á vett­vangi morðs­ins sem pössuðu við líf­sýni frá glæpa­vett­vangi í Los Angeles, þar sem brot­ist hafði verið inn á heim­ili níu ára stúlku og á hana ráð­ist. Mynd­skeið náð­ist af árá­sár­mann­inum en ekki sást þó í and­lit hans. Lög­reglan birti svo teikn­ingu af honum, sem gerð var eftir lýs­ingum stúlkunnar.

Það var þó ekki fyrr en 14. júní sem lög­reglan hand­tók Hernandez á bar í Tulsa. Verður hann ákærður fyrir nauðgun af fyrstu gráðu sem og morð af fyrstu gráðu. Hernandez verður fram­seldur til Maryland fyrir rétt­ar­höldin.

Systir Rachelar, Erin Morin Layman, og fyrrum kær­asti og faðir elsta barns hennar, Matt McMahom, stigu fram í Court TV fyrir viku til að ræða nýj­ustu fram­vind­un­ina í mál­inu.

„Þetta eru búnir að vera langir tíu mán­uðir,“ sagði Erin. Sagði hún hand­tök­una vera jákvæða þróun í mál­inu. „Við erum þakk­lát og okkur léttir, að hann sé loks­ins kom­inn af göt­unni, að hann geti ekki gert þetta við nokkurn annan og að rétt­læt­inu náist fyrir Rachel.“

McMahom sagði að hand­takan hafi einnig verið léttir fyrir sig.

„Þegar maður átt­aði sig á að það sé búið að hand­taka hann, var næstum því eins og maður hafi verið skyndi­lega frels­aður,“ sagði McMahom og bætti við: „Ég get farið að hugsa um aðra hluti og geð­heilsa mín hefur snar­batnað.“

Að hans sögn hafa síð­ustu tíu mán­uðir verið ansi erf­iðið fyrir börnin hennar Rachel.

„Þó að hann hafi náðst, og það eru góðar fréttir, þá minnir það samt á það trauma sem þau hafa gengið í gegnum síð­ustu tíu mán­uð­ina. Þannig að þetta er líka mjög sárs­auka­fullur tími fyrir þau. Þetta hrærir upp svo margar til­finn­ingar og hugs­anir og sökn­uð­inn.“

Systir Rachel tjáði sig um það hvernig hún hafi hjálpað börn­unum fimm vegna miss­is­ins. „Ég hef ekki áhyggjur af mér. Ég hef áhyggjur af börn­unum hennar Rachel og ein­blíni bara á þau, eyði tíma með þeim, elska þau, er bara allt fyrir þau sem þau gætu mögu­lega þurft á að halda í líf­inu.“

Þá lýsti hún óánægju sinni með að mann­inum hafi verið hleypt inn í landið ólög­lega:

„Mér finnst eins og það sé of mikið frelsi við landa­mærin og þau þurfa að vera örugg. Og það er bara sárs­auka­fullt afð fólk sem við þekkjum ekki, glæpa­menn komi inn í landið, koma með fíkni­efni, mann­sal, þú veist, það er bara svo mikið af glæpum sem koma yfir landa­mærin.“

Gefið hefur verið út að Rachel hafi hlotið 10 til 15 höf­uð­á­verka en hafi verið kyrkt, eftir nauðg­un­ina. Hernadez er einnig grun­aður um morð í El Salvador. Hinn 23 ára meinti morð­ingi er faðir þriggja ára stúlku.

Fréttin er unnin upp úr fréttum Newsweek og CBS News.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco