Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Íslendingur myrtur í Kanada og á höfði hans voru átta djúpar rispur: „Höfuðkúpa Jóhanns brotnaði“

Íslendingur myrtur í Kanada og á höfði hans voru átta djúpar rispur: „Höfuðkúpa Jóhanns brotnaði“

Tveir kanadískir her­menn ákváðu að fara í smá göngutúr enda ekk­ert gaman að hanga á Fort Osborne bæki­stöð­inni í Winnipeg og bíða eftir að kom­ast í frí sem var á næsta leyti.

Það var ísköld súld og því fínt að ganga sér til hita.

Þegar þeir höfðu gengið eftir Kenaston breið­stræti í um kíló­metra suður af bæki­stöð­inni tóku þeir eftir dökk­bláum leigu­bíl, Chrystler, sem virt­ist fastur í aur. Við nán­ari athugun tóku þeir eftir karl­manni sem lá á jörð­inni um fimm metrum frá bílnum. Á höfði hans voru átta djúpar rispur. Hann var lát­inn.

Eft­ir­far­andi texti er frá Vísi þann 8. maí, 1946 og fjallar um morðið á Jóhanni Johnson, leigu­bíl­stjóra sem flutti vestur um haf árið 1922. Árið 1937 stofn­aði hann sitt eigið leigu­bíla­fyr­ir­tæki.

Vestur – Íslendingur myrtur

Í síð­ustu blöðum Lögbergs og Heimskringlu er borizt hafa hingað, er skýrt frá því, að Islend­ing­ur­inn Jóhann Johnson, bif­reið­ar­stjóri í Winnipeg, hafi verið myrtur nýlega,
Ók Jóhann heit­inn bif­reið hjá United Taxi-félag­inu, en hann var einn af eig­endum
þess.

Þann 31. marz s. 1. leigðu tveir menn bif­reið Jóhanns. Er þeir voru kom­fiir skammt
út fyrir borg­ina, réð­ust þeir á hann og lömdu hann til bana. Höf­uð­kúpa Jóhanns
brotn­aði og lézt hann sam­stundis.

Jóhann heit­inn var 45 ára að aldri, fæddur hér i Reykja­vík. Hann átti sex systk­ini. Eru tvö þeirra búsett vestan hafs, tvö í Danmörku og loks tvær systur hans hér á Islandi.

Er sið­ast frétt­ist, var ekki búið að hafa hendur í hári til­ræð­is­mann­anna.

En þar með var sagan ekki sögð, hún var rétt að byrja.

Í brjóst­vasa Jóhanns fannst veski sem inni­hélt svo­lít­inn pen­ing en ódæð­is­mað­ur­inn eða menn­irnir virð­ast hafa snúið báðum vös­unum á buxum Jóhanns á röng­una, sjálf­sagt í leit að pen­ing. Svo virt­ist sem líkið hefði verið dregið út úr bílnum og til­raun gerð til að aka bílnum á brott. Hann hafi hins vegar verið fastur í leðj­unni. Þá fund­ust dekkja­för eftir stóran bíl, senni­lega vöru­bíl sem einnig virt­ist hafa fest sig en náð að losa sig með herkjum. Kven­manns­fót­spor fund­ust skammt frá lík­inu og svo aftur á öðrum stað en það virt­ist sem kona hafi hlaupið í burtu frá morð­staðnum, aðeins klædd í annan skó­inn. Þá fannst morð­vopnið vafið í dag­blað og bundið fyrir en það reynd­ist 45 senti­metra langur bolti, not­aður til brú­ar­smíða.

Dregur til tíðinda

Skóförin lágu í átt að nokkrum mjólk­ur­búum í nágrenn­inu þannig að eftir að lög­reglan ræddi við mjólku­bænd­urna sem þar bjuggu, tókst þeim að hafa hendur í hári kon­unnar sem átti sporin. Var hún hand­tekin og látin dúsa í fang­elsi í mánuð en vitn­is­burður hennar átti eftir að verða til þess að karl­maður var hand­tek­inn og dæmdur fyrir morðið.

Morðið á Jóhann vakti mikla athygli í Kanada en þetta var eitt af þó nokkrum morðum á leigu­bíl­stjórum sem höfðu komið upp und­an­farið í Kanada. Á meðan á rann­sókn­inni stóð á morði Jóhanns neit­uðu margir leigu­bíl­stjórar að vinna kvöld og næt­ur­vaktir og þeir sem gerður það, vopn­uðu sig. Eftir að mað­ur­inn sem konan dul­ar­fulla benti á, var hand­tek­inn róuð­ust leigu­bíl­stjór­arnið nokkuð.

Samkvæmt vitn­is­burði skó­lausu kon­unnar hafði hún haldið partý heima hjá sér, nótt­ina sem Jóhann var myrtur. Í partý­inu drakk hún ótæpi­lega og lenti í rifr­ildum við eig­in­mann sinn, áður en hún storm­aði út úr hús­inu ein­hvern­tíman fyrir þrjú um nótt­ina. Sá grun­aði var í partý­inu en fór úr því stuttu á eftir kon­unni.

Konan sagði að hún hafi hitt þann grun­aði sam­kvæmt sam­komu­lagi, stutta vega­lengd frá húsi hennar. Saman stopp­uðu þau leigu­bíl, í þeim til­gangi að fara heim til manns­ins. Sagði hún að þau hafi hins vegar lent í rifr­ildum og að hún hefði stoppað leigu­bíl­inn og ákveðið að ganga heim, frá þeim stað sem fyrstu skó­förin fund­ust. Lýsing hennar á leigu­bílnum og bíl­stjóra hans pass­aði ekki við Jóhann og Chrystlerinn hans.

Misvísandi vitnisburður

Í kjöl­farið á þessum vitn­is­burði gaf hún slatta af sífellt flókn­ari og mis­vísandi full­yrð­ingum en ein þeirra inn­sigl­aði örlög hins grun­aða. Hún sagði að hann hefði komið aftur með leigu­bílnum, fáeinum mín­útum eftir að hafa hleypt henni út og þegar hún nálg­að­ist bíl­inn hafi hún fyrst séð morð­vopnið á gólf­inu, svo séð þann grun­aða reiða vinsti hend­inga til höggs fyrir aftan öku­mann­inn. Að lokum hafi hún séð bíl­stjóran liggja yfir fram­sætið. Á þessu augna­bliki sagð­ist hún hafa hlaupið af vett­vangi og við það misst annan skó­inn.

Seinna gaf konan nýjan vitn­is­burð þar sem hún hélt því fram að mað­ur­inn sem var aftur í leigu­bílnum hafi ekki verið sá grun­aði, heldur ókunn­ugur maður með hatt. Sjálfur neit­aði sá grun­aði að hafa deilt leigu­bíl með kon­unni, hann hafi neitað að deila leigu­bíl með kon­unni, hanni hafi farið einn í leigu­bíl og farið heim til sín strax eftir partýið.

Var mað­ur­inn dæmdur sekur fyrir rétti en hann áfrýj­aði en var svo aftur dæmdur sekur, þrátt fyrir fáar sann­anir.

Þau tvö ár sem mað­ur­inn sat inni og beið örlaga sinna, breytt­ist almanna­á­litið umtals­vert, mann­inum í hag. Hann hafði aldrei áður brotið af sér og var stríðs­hetja, hafði særst í átökum í Evrópu. Nefnd sem meðal ann­arra hafði lög­fræð­inga inn­an­borðs, safn­aði yfir 10.000 und­ir­skriftum þar sem dóm­stólar voru hvattir til að ógilda dóm­inn, vegna skorts á sönn­un­ar­gögnum. Á það var ekki hlustað og var mað­ur­inn hengdur tveimur árum eftir morðið á Jóhanni.

Heimild: http://www.taxi-library.org/canada/johnson-jo.htm

Bak­sýn­is­speg­ill þessi birt­ist fyrst þann 13 maí 2022.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ