Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Dularfullt hvarf Seyðfirðings í Aberdeen – Sást síðast á spjalli við bílstjóra fyrir utan hótel

Dularfullt hvarf Seyðfirðings í Aberdeen – Sást síðast á spjalli við bílstjóra fyrir utan hótel
Aberdeen í denn.

Þrír skip­verjar af vél­skip­inu Víkingi frá Seyð­is­firði sátu að snæð­ingi inni á Stanley hót­el­inu í Aberdeen í Skotlandi, mánu­dags­kvöldið 26. febr­úar 1951. Menn­irnir þrír höfðu ekki hug­mynd um að einn þeirra væri að borða sína síð­ustu mál­tíð.

Fjöl­margir Íslend­ingar hafa horfið spor­laust í útlöndum í gegnum ald­irnar en hvörfin eru mis­dul­ar­full. Í mörgum til­fellum er um að ræða sjó­menn sem dottið hafa lík­lega milli stafs og bryggju og drukknað en það á þó senni­lega ekki við um alla sjó­menn­ina sem týnst hafa. Hvarf Hjartar Bjarna­sonar er eitt af þeim dul­ar­fyllstu.

Hjörtur Bjarna­son

Eftir að Hjörtur (49 ára) hafði snætt kvöld­verð á Stanley hót­el­inu í Aberdeen ásamt Þorgeiri Jónssyni og Birni Ein­ars­syni, sem unnu með Hirti um borð í Víkingi. Eftir mat­inn gerðu þre­menn­ing­arnir sig til­búna til að ganga aftur að skip­inu en Hjörtur tók þá eftir bif­reið sem lagt var fyrir utan hót­elið og stakk upp á að þeir myndu fá skutl að bátnum. Þorgeiri leist ekki á það og hóf að ganga í átt að bryggj­unni en er hann leit við sá hann að Hjörtur virt­ist eiga í sam­tali við öku­mann bif­reið­ar­innar. Það var svo ekki fyrr en morg­un­inn eftir að það upp­götv­að­ist að Hjörtur var horf­inn. Og það hefur hann verið frá hvarf­inu en skip­verjar Víkings töldu frá­leitt að hann hefði fallið milli skips og bryggju enda hafi bát­ur­inn legið þétt upp við bryggju.

Tíminn fjall­aði um hið dul­ar­fulla hvarf á sínum tíma:

Seyð­firð­ingur hverfur

í skozkum hafn­arbæ

Varð eftir af félaga sínum á tali við bif­reiða­stjóra í veit­inga­hús­dyrum

Mánu­dag­inn 26. febr­úar hvarf í Aberdeen í Skotlandi skip­verji af vél­skip­inu Víkingi frá Seyð­is­firði, maður um fimm­tugt, Hjörtur Bjarna­son að nafni, til heim­ilis í Seyð­is­firði. Veit eng­inn, hvað af honum hefir orðið.

Hjálmar Vil­hjálms­son, sýslu­maður í Seyð­is­firði, skýrði Tímanum svo frá þessum atburði: Víkingur kom til Aberdeen aðfara­nótt mánu­dags­ins, og var farm­ur­inn seldur á mánu­dag, olía tekin og gengið frá skip­inu í Vikt­or­íu­dokk þar í höfn­inni.


Sást síð­ast á tali við bíl­stjóra

Klukkan 6—7 um kvöldið fór Hjörtur við þriðja mann í Stan­ley­hótel, skammt frá höfn­inni, og snæddu þeir félagar þar. Voru með honum Þorgeir Jónsson, einnig Seyð­firð­ingur, og Björn Ein­ars­son, fyrsti vél­stjóri. Er þeir höfðu setið einn til tvo klukku­tíma í veit­inga­hús­inu, bjugg­ust Hjörtur og Þorgeir til brott­ferðar, en Björn var eftir. Þegar út kom, veitti Hjörtur athygli bif­reið, sem beið við veit­inga­húsið, og hafði orð á því við Þorgeir, að þeir fái sér bíl og aki niður að skip­inu. Þorgeir eyddi því og hélt áfram, en Hjörtur dok­aði við, og er Þorgeir leit um öxl, stóð hann við bíl­inn, að því er virt­ist í sam­ræðum við bíl­stjór­ann. Hélt Þorgeir þá áfram til skips og hátt­aði, en morg­un­inn eftir urðu skip­verjar þess varir, að Hjörtur var horf­inn, og spurð­ist ekki til hans eftir þetta.

Leitað til lög­regl­unnar

Skip­stjór­inn sneri sér þegar til lög­regl­unnar í Aberdeen og var skipið látið bíða í tvo daga, meðan hún rann­sak­aði málið. En ekki báru þessar eft­ir­grennsl­anir árangur. Skip­verjum í Víkingi þykir ósenni­legt, að Hjörtur hafi fallið í höfn­ina og drukknað, því að skipið lá fast við bryggju, svo að maður hefði varia komizt niður á milli borð­stokks og bryggju, og borð­stokkur skips­ins nam ekki hærra en bryggju­pall­ur­inn. — Sýslu­mað­ur­inn á Seyð­is­firði hefir snúið sér til stjórn­ar­ráðs­ins og óskað þess, að það hafi með­al­göngu um frek­ari eft­ir­grennsl­anir um það, hvað af Hirti hafi orðið. Hjörtur var sér­stakt prúð­menni í allri fram­göngu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ