Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Hjóla í formann Fjölskylduhjálparinnar: „Eins og skoðanir rasistans séu bláköld staðreynd“

Hjóla í formann Fjölskylduhjálparinnar: „Eins og skoðanir rasistans séu bláköld staðreynd“
Ásgerður Jóna Flosa­dóttir

Bragi Páll Sig­urð­ar­son hjólar í Ásgerði Jónu Flosa­dóttur, for­mann Fjöl­skyldu­hjálpar Íslands og blaða­mann Vísis vegna fréttar þar sem Ásgerður seg­ist vera með sér­daga fyrir Íslend­inga þegar hún útdeilir mat­ar­gjöfum, vegna hót­ana og yfir­gangs erlendra aðila. Lögmaður tekur undir orð rit­höf­und­ar­ins.

Rit­höf­und­ur­inn Bragi Páll Sig­urð­ar­son lætur for­mann Fjöl­skyldu­hjálpar Íslands og Vísi heyra það í nýrri Facebook-færslu sem hann skrif­aði við frétt Vísis þar sem vitnað er í við­tal við Ásgerði Jónu Flosa­dóttur.

„Lands­frægur ras­isti er ein­hverra hluta vegna feng­inn í við­tal á útvarps­stöð. Segir þar rasískt kjaftæði og elur á for­dómum gagn­vart fólki í brjál­æð­is­lega við­kvæmri stöðu. Fúskari skrifar frétt eins og skoð­anir ras­ist­ans séu bláköld stað­reynd og viti menn, allir hávær­ustu ras­istar lands­ins droppa við í kommenta­kerf­inu og frussa út hræddum og illa upp­lýstum skoð­unum.“ Þannig hefst harð­orð færsla Braga Páls og heldur svo áfram:

„Mikil er ábyrgð fjöl­miðla­fólks að ala ekki á for­dómum. Mikil er ábyrgð rit­stjóra að krefj­ast vand­aðra vinnu­bragða. Sumt fólk er ein­fald­lega búið að stimpla sig út sem mark­tækir við­mæl­endur. Gefum ótt­anum ekki sviðið.“

Að lokum segir Bragi Páll að vanda­málið sé ekki „brún fólk að flýja stríð“.

„Þær fjöl­skyldur sem þurfa á fjöl­skyldu­hjálp að halda eru fórn­ar­lömb kap­ít­al­ism­ans. Mis­skipt­ingin, græðgin og óheft, sívax­andi stétta­skipt­ing eru vanda­málin. Ekki brúnt fólk að flýja stríð. Það er til skítnóg af seðlum en þeir fara í fáa vasa. Restin af ykkur eru launa­þrælar. Mill­arnir eru rótin. Beinið reiði ykkar að þeim sem skapa vand­ann, ekki að fórn­ar­lömbunum.“

Undir færsl­una tekur lög­mað­ur­inn Oddur Ást­ráðs­son en hann segir að hat­ur­orð­ræða sé orðin meira áber­andi hjá æðstu ráða­mönnum þjóð­ar­innar og að for­maður Fjöl­skyldu­hjálpar „höggvi í sama knérunn“. Hér fyrir neðan má sjá athuga­semd Odds í heild sinni:

„Í til­mælum ráð­herra­ráðs Evr­ópu­ráðs­ins er hat­urs­orð­ræða skil­greind sem: „öll tján­ing sem dreifir, hvetur til, stuðlar að eða rétt­lætir kyn­þátta­hatur, útlend­inga­hatur, gyð­inga­hatur eða ann­ars konar hatur sem bygg­ist á umburð­ar­leysi, þar á meðal umburð­ar­leysi sem er tjáð með her­skárri/óvæg­inni þjóð­rækn­is­stefnu/þjóð­ern­is­hyggju eða þjóð­hverfum sjón­ar­miðum, mis­munun og fjand­skap gegn minni­hluta­hópum, far­and­verka­fólki og fólki af erlendum upp­runa.“Einn æðsti hand­hafi ákæru­valds í íslenskri stjórn­sýslu tjáði sig í frétta­við­tali á Vísi í vik­unni um dóm yfir manni sem hafði áreitt hann og fjöl­skyldu hans um ára­bil og við­haft alvar­legar hót­anir. Vita­skuld á eng­inn að þurfa að þola slíka fram­komu eða ástand.Í grein Vísis er haft eftir ákær­and­anum að „við séum í stórum stíl að flytja inn kúltur sem er í mörgu frá­brugð­inn því sem við þekkjum“ og „að það blasi við að menn­ing sumra þess­ara sam­fé­laga stang­ist illi­lega á við okkar gildi og sam­fé­lags­sátt­mála“.Það að heim­færa glæp­sam­lega hátt­semi eins manns upp á hóp fólks, sem hefur ekk­ert til saka unnið, og kenna menn­ingu óskil­greinds hóps fólks af erlendum upp­runa um sömu glæpi er ekk­ert annað en hat­urs­orð­ræða. Það að maður sem gegnir mik­il­vægri trún­að­ar­stöðu innan rétt­ar­vörslu­kerf­is­ins við­hafi slíka orð­ræðu er stóral­var­legt og miklu frekar til þess fallið að spilla okkar sam­fé­lagi en að hingað flytj­ist fólk úr ólíkum menn­ing­ar­heimum.Fjöl­skyldu­hjálp­ar­konan heggur hér í sama knérunn.Það er verið að normalísera svona orð­ræðu – með því að meg­in­straums­fjöl­miðlar hleypa henni ósíað að og með því að fólk í áhrifa- og valda­stöðum leyfir sér að við­hafa hana óáreitt. Skríll­inn eltir svo.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ