Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

„Guð hlýtur að vera mikill húmoristi“ – Nærmynd af Halldóri Bragasyni

„Guð hlýtur að vera mikill húmoristi“ – Nærmynd af Halldóri Bragasyni

Blús­goð­sögnin Halldór Bragason lét lífið er eldur kom upp á heim­ili hans við Amt­manns­stíg í Reykja­vík þann 13.ágúst síð­ast­lið­inn.

Halldór – mun betur þekktur sem Dóri – var á meðal lyk­il­manna í blús­tón­list­ar­sen­unni á Íslandi ára­tugum saman. Til að mynda var hann heiðr­aður fyrir ell­efu árum er hann var kjör­inn heið­urs­fé­lagi Blús­há­tíðar í Reykja­vík. Dóri var á meðal stofn­enda Blús­fé­lags Reykja­vík­ur fyrir tutt­ugu árum; er efndi til Blús­hátíðar Reykja­vík­ur í fjölda­mörg ár.

Dóri hét fullu nafni Halldór Snorri Bragason; hann fædd­ist þann 6. nóv­em­ber árið 1956 i Reykja­vík; ólst upp í Hlíðunum; for­eldr­ar hans voru Stein­unn Snorra­dótt­ir og Bragi Krist­jáns­son. Hann á tvö eldri systk­ini, Helga og Bertu. Dóri átti tvo syni, Braga og Andra Frey; Bragi lést árið 2005 aðeins tví­tug­ur að aldri. Andri Freyr á eina dótt­ur, Ásdísi Freyju, með Töru Gunn­ars­dótt­ur.

Dóri kynnt­ist tón­list­inni ung­ur að árum; fékk gít­ar í ferm­ing­ar­gjöf og var snemma far­inn að spila með hljóm­sveit­um. Hin goð­sagna­kennda hljóm­sveit Vin­ir Dóra lék fyrst op­in­ber­lega árið 1989; kom fram á gríð­ar­legum fjölda tón­leika hér á landi sem og á blús­hátíðum er­lend­is. Og til að mynda átti Dóri og vinir hans gott sam­starf við hinn heims­þekkta blús­ara, Chicago Beau; bjó Dóri um tíma í Montreal í Kan­ada.

Dóri var einn af bestu gít­ar­leik­urum lands­ins; goð­sögn í blús­sen­unni hér­lendis. Hljóm­sveit hans, Vinir Dóra, var þar í far­ar­broddi – en sveitin – sem gaf út fjöl­margar hljóm­plötur á ferli sínum – fædd­ist er Dóra og vinum hans bauðst það tæki­færi að hita upp fyrir tón­leika breska blús- og rokk­goðs­ins John Mayall árið 1989; eftir það tengd­ist Dóri inn í blús­sen­una í Chicago í Banda­ríkj­unum – á upp­hafs­árum hljóm­sveit­ar­innar Vina Dóra – og mynd­að­ist tón­list­ar­loft­brú yfir Atl­ants­hafið um langt ára­bil; þökk sé Dóra: Þar sem íslenskir og banda­rískir blús­lista­menn spil­uðu á tón­leikum og hátíðum hvors ann­ars; sömdu og gáfu út tón­list.

Dóri var lærður raf­einda­virki og vann hann til dæmis á kvik­mynda­deild Sjón­varps­ins í nokk­ur ár; var um tíma starfs­maður í tölvu­deild BYKO, og starf­aði sem áfeng­is­ráð­gjafi á Vogi.

Pinetop Perkins.

Dóri spil­aði á gítar og söng líka; hann kom fram reglu­lega á tón­leikum bæði hér heima og erlendis og árið 2009 spil­aði Dóri á blús­há­tíð í Arkansas í Banda­ríkj­unum; þá með allsvaka­legum stjörnum á borð við Pinetop Perkins – Willi Big Eyes – Bob Margolin sem og Bob Stroger: „Það var rosa­legur heiður að fá að gera þetta,“ sagði Dóri eitt sinn í við­tali við Frétta­blaðið.

Á síð­ustu tveimur árum háði Dóri erf­iða en hetju­lega bar­áttu við krabba­mein; hann sótti styrk hjá Ljósinu, end­ur­hæf­ingar- og stuðn­ings­mið­stöð fyrir krabba­meins­greinda og aðstand­endur. Mun fjöl­skylda og vinir Dóra hlaupa til styrktar Ljósinu í Reykja­vík­ur­mara­þon­inu.

Dóri sagði frá lífi sinu og list í við­tali við Morg­un­blaðið á því herr­ans ári 2006. Í við­tal­inu lýsti hann því hvernig hann týndi næstum lífi sínu er hann lenti í flug­slysi með Ómari Ragn­ars­syni og nokkrum fleirum árið 1987, við Mývatn, þar sem unnið var að sjón­varps­verk­efni. Dóri varð fyrir slæmum meiðslum á hálsi í slys­inu; meiðsl er háðu honum alla tíð.

Óhætt er að segja að Dóri hafi reynt ýmis­legt í líf­inu sem hann sagði frá í áður­nefndu við­tali við Morg­un­blaðið – við­tali er tekið var einu ári eftir frá­fall Braga sonar hans:

„Það er merki­legt hvað mann­skepnan getur risið hátt – verið nán­ast eins og guð­leg vera – og hvað hún getur lagst lágt. Það er hinn eilífi tvö­fald­leiki lífs­ins. Hið góða og hið jákvæða er mér þó jafnan ofar í huga. Það er val að vera jákvæður og koma auga á mögu­leik­ana. Það er mik­il­vægt að gera sér grein fyrir þessu vali. Maður getur valið kvöl­ina og eymd­ina en líka gleð­ina og jákvæðn­ina. Mín til­finn­ing er sú að ljóstíran sé alltaf til staðar. Húmorinn er mann­inum líka nauð­syn­legur. Án hans væri lífið bara tára­dalur. Ef þú horfir bara á okkur, mann­kynið, þá blasir við að Guð hlýtur að vera mik­ill húmoristi.“

Svan­hildur Kon­ráðs­dóttir.

Fjöl­margir hafa minnst Dóra og á meðal þeirra er Svan­hildur Kon­ráðs­dóttir, sem sagði þetta:

„Dóri var heið­urs­maður, frum­kvöð­ull og ekki bara besti vinur – heldur blúspabbi Íslands. Við þekkt­ust frá því ég var rúm­lega tví­tug – flutt í bæinn og farin að þræða þá fáu staði þar sem lif­andi blús var í boði.  Og þar var Dóri. Síðar hélt ég þétt með Blús­há­tíð í Reykja­vík og reyndi eftir megni að tryggja þeim stuðn­ing frá borg­inni. Þeir félagar komu reglu­lega fram í Hörpu á Menn­ing­arnótt á umliðnum árum og færðu allt of sjald­séðan bláan blæ í húsið. Dóra verður minnst með virð­ingu, sökn­uði og hlýju af öllum sem eru tón­list­ar­megin í til­ver­unni – að ég tali nú ekki um á þeim hjarta­hrær­andi bláu nót­unum sem hann kunni svo vel að galdra fram. Ég votta ást­vinum hans og sam­ferða­fólki öllu inni­lega samúð.“

Helga Möller á milli þeirra Eiríks Hauks­sonar og Pálma Gunn­ars­sonar árið 1986.

Söng­konan Helga Möller segir að „við vorum bæði tón­list­ar­menn í ólíkum tón­list­ar­stíl. Hann var frá­bær blu­esspil­ari og ég var í diskó­inu og dæg­ur­tón­list­inni en við vorum góðir vinir þrátt fyrir það og bæði mikið áhuga­fólk um golf og spil­uðum stundum golf saman á Nes­vell­inum innan um Kríj­urnar. Dóri varð mjög góður golfari og ég reyndi að fylgja honum eftir sem tókst nú sjaldn­ast. En hann var sann­gjarn golfari og gaman að spila með honum. Ég hætti síðan í Nesklúbbnum og sá Dóra ekki mikið eftir það. Mikið myndi mig langa til að taka með þér hring á Nesinu en það verður bara í Himna­ríki, þegar við hitt­umst næst. Þú verður að sjá til þess að það séu golf­kúlur í Himna­ríki Dóri minn. Góða ferð elsku vinur og sjá­umst þegar minn tími kemur elsku kall­inn.“Guð blessi minn­ingu þína elsku vinur og inni­legar sam­úð­ar­kveðjur til fólks­ins þíns. Kær­leiks­kveðja, Helga Möller.“️

Arnar Eggert Thorodd­sen.

Arnar Eggert Thorodd­sen blaða­maður minn­ist Dóra með eft­ir­far­andi orðum:

„Þetta er harma­fregn. Ég kynnt­ist Dóra fyrst og síð­ast í gegnum Morg­un­blaðið en ég átti við hann fjöl­mörg við­töl vegna Blús­há­tíðar. Elju­samur skipu­leggj­ari með afbrigðum og ég ræddi við a.m.k. þrjá blús­ara fyrir hans til­stilli; Chicago Beau, Magic Slim og Marquise Knox. Sá síð­ar­nefndi var rétt um tví­tugt þegar hann kom, 2011, og urðum við Fjas­bók­ar­vinir í kjöl­farið. Blúsinn er langt í frá í mínu DNA en ein­hvern veg­inn klór­aði ég mig í gegnum 1500 orða við­tal við Magic Slim sem var svo birt í Lesbók! Beau var með fyrstu við­töl­unum sem ég tók fyrir Moggann, hitti hann á Vega­mótum heitnum og vinur minn Kristinn Ingv­ars­son smellti af honum sígildri mynd. Það var gott að ræða við Dóra og fyr­ir­sagn­irnar voru t.d. „Með blús­inn í blóð­inu“, „Blús­á­halda­bylt­ingin“, „Dóri segir á blús­inn bæt­andi“ og „Með blús í hjarta“. Viðtöl vegna Blús­há­tíðar voru svo gott sem árlegur við­burður hjá menn­ing­ar­blaða­mann­inum þegar ég var á gólf­inu, 2000 – 2012, og mér þótti vænt um þessi verk­efni. Hald­reipi nokk­urs konar og djúp, sef­andi rödd Dóra þar mið­læg. Ég votta aðstand­endum samúð og sendi yl inn í brans­ann því að risi er fall­inn, það er ljóst.“

Baldur Her­manns­son.

Baldur Her­manns­son minn­ist vinar síns:

„Dóri Braga er allur svo ekki segir hann mér til oftar á golf­pöll­unum. Hann var lands­frægur fyrir tón­list en ég þekkti hann mest af golf­völl­unum, þar var hann bráð­fl­inkur eins og í öðru sem hann tókst á hendur. Hann hafði gaman af því að leið­beina okkur sem lak­ari vorum. Það er mik­ill sjón­ar­sviptir að Dóra. Hann skóp sinn ævi­feril af eigin ramm­leik. Hann brá sér­stökum lit­blæ yfir til­ver­una, hvar sem hann kom. Og sam­fé­lagið er snauð­ara þegar hann er far­inn. Haf þú heila þökk fyrir far­sæl kynni, Halldór Bragason.“

Blessuð sé minn­ing Halldórs Braga­sonar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ