Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

„Að drepa tugi þúsunda kvenna, barna, gamalmenna og særa enn fleiri er nýtt met í ómennsku“

„Að drepa tugi þúsunda kvenna, barna, gamalmenna og særa enn fleiri er nýtt met í ómennsku“
Ingólfur Steins­son.

Tón­list­ar­mað­ur­inn Ingólfur Steins­son ritar grein sem ber yfir­skrift­ina: Þjóðar­morð með vest­rænum vopnum.

Hefst á þessum orðum:

„Ég skrif­aði nokkrar greinar eftir að geð­veikin á Gaza hófst. Taldi mig hafa sagt mitt síð­asta orð í byrjun árs­ins. Maður hélt e-n veg­inn að þessu myndi brátt ljúka. Ann­að­hvort að tekið yrði fyrir fjöldamorðin af viti bornum Vest­ur­löndum eða að stríðs­að­ilar sæju sóma sinn í því að gera vopna­hlé og hætta fjöldamorðum á almenn­ingi.“

Bætir við:

„Nú hefur komið í ljós að hvor­ugt er á döf­inni. Allt síðan Ísra­els­ríki var svo ólán­lega fund­inn staður í Palest­ínu hefur það átt í fullu tré við nágranna sína. Frá upp­hafi, fyrir rúmum 75 árum, hafa Ísra­els­menn getað reitt sig á vest­rænan stuðn­ing. Að hluta er þessi saga með þeim ólík­indum sem holocaustið mark­aði henni.“

Ingólfur færir í tal að „andúð á gyð­ingum hafði verið land­læg í Evrópu og Banda­ríkj­unum á fjórða ára­tugnum og reyndar miklu lengur. Við þurfum ekki að leita lengra en til íslenskra stjórn­valda til sönn­unar á því. All­mörgum þýskum fjöl­skyldum gyð­inga hafði verið neitað hér um hæli og þær sendar til baka út í opinn dauð­ann. Því var það svo að hinn vest­ræni heimur, með bak­þanka sína, vildi taka þátt í að finna þess­ari sárt leiknu þjóð sama­stað til fram­búðar. Gyðingar höfðu tekið að setj­ast að í land­inu helga eða Síon, (eftir fjall­inu), á síð­ari hluta 19. aldar. Þaðan er orðið síon­ismi komið, hreyf­ing sem varð til á svip­uðum tíma. Frá upp­hafi var orðið notað um þá sem vildu stofna þjóð­ar­heim­ili gyð­inga í Palest­ínu.“

Hann ljær máls á því að „síon­istar voru almennt á þeirri langsóttu skoðun að þarna ætti þjóð­ar­heim­ilið að vera þar sem þeir höfðu búið fyrir næstum 2000 árum. (Svipað og ef við myndum krefj­ast lands í Noregi vegna búsetu for­feðr­anna þar.) Og þó að gyð­ing­dómur hafi að sönnu gefið kristn­inni ýmis­legt, hefur mér alltaf þótt hug­myndin um guðs útvalda þjóð fremur hjá­kát­leg að maður tali nú ekki um að vitna í helgi­sagnir eins og að hann/hún hafi gefið þeim landið.“

Ingólfur nefnir að við upp­haf „fyrra stríðs 1914 bjuggu í land­inu helga um 56 þús­und gyð­ingar og 700 þús­und arabar. Því að þessi hug­mynd um þjóð­ar­heim­ili gyð­inga í Palest­ínu hafði einn aug­ljósan galla. Það bjó fólk fyrir í land­inu. Fyrir seinna stríð áttu gyð­ingar u.þ.b. 5 % lands­ins en nú voru uppi hug­myndir um að þeir skyldu fá meira en helm­ing þess og það bestu rækt­ar­löndin. Þetta gátu arabar á svæð­inu ekki þolað og smám saman juk­ust skærur milli þess­ara aðila. Bretar sem höfðu stjórnað þarna drógu sig í hlé.“

Hann segir að „í stuttu máli var ríki gyð­inga stofnað í maí 1948. Arabar höfðu mót­mælt þessum hug­myndum frá upp­hafi og nú réð­ust þeir gegn hinu nýstofn­aða ríki. Gyðingar voru alltaf vel studdir af Vest­ur­löndum og miklu betur vopnum búnir. Vopn araba voru gömul og úr sér gengin. Til að gera langa sögu stutta voru háð all­mörg stríð á milli þess­ara aðila sem síon­istar unnu öll. Með síauk­inni aðstoð Vest­ur­landa (í seinni tíð aðal­lega USA) hafa átökin milli þeirra og Palest­ínu, sem þeir hafa her­setið frá 1967, líkst æ meira leiks katt­ar­ins að músinni.“

Ingólfur segir að árásin þann 7. októ­ber síð­ast­liðin hafi þess vegna ekki komið á óvart:

„Þetta var enn ein örvænt­ing­ar­full til­raun til þess að minna á vanda­mál Palest­ínu sem voru fallin í skugg­ann. Arabaríkin höfðu verið að frið­mæl­ast við Ísrael og nú var samn­ingur við Saudi-Arabíu nán­ast til­bú­inn. Árásin breytti stöð­unni full­kom­lega. Þó að ég sé ekki trú­aður á þau óhæfu­verk sem vest­rænir frétta­miðlar halda fram að Hamas hafi framið þá voru þetta óneit­an­lega vatna­skil í sam­skiptum þjóð­anna. Palest­ína hafði verið her­setin í tæp 60 ár og barist gegn her­nám­inu með ýmsum hætti en þetta var áreið­an­lega þyngsta höggið sem full­trúar þess fólks höfðu greitt Ísrael.“

Segir:

„Eftir ára­tuga her­nám hlýtur það að vera inn­gróið í hinn kúg­aða að berj­ast gegn her­náms­að­il­anum. Notaðar hafa verið ýmsar aðferðir til frels­is­bar­átt­unnar og þær ekki allar fal­legar. Eflaust var árásin á Ísrael ofbeld­is­fyllri og ljót­ari en áður hafði þekkst en þetta eru samt hinir und­ir­ok­uðu að krefj­ast frelsis frá aðila sem hefur öll þeirra ráð í hendi sér. Palest­ínu­mönnum hefur lengi verið haldið eins og fé innan girð­ingar; til að kom­ast út þarf oft að hafa alls konar leyfi og fara í gegnum eft­ir­lits­hlið þar sem hver aðili er mynd­aður. Ísrael ræður í stórum dráttum hvernig þetta fólk hreyfir sig. Her­náms­að­il­inn stjórnar öllu á Gaza: Aðgangi að raf­magni, vatni og öðrum lífs­ins gæðum. Gaza hefur verið kallað stærsta opna fang­elsi jarðar. Þar er kúg­unin enn meiri en á Vest­ur­bakk­anum.Og ef fólk fer ekki eftir regl­unum mætir her­inn með alvæpni.“

Ingólfur talar um land­rán:

„Land­ránið er svo sér kap­ít­uli og mest stundað á Vest­ur­bakk­anum þar sem land­ráns­byggðir hafa skotið upp koll­inum eins og gorkúlur síðan 1967 og ráns­menn fara nú um með sívax­andi ofbeldi. Að láta sér detta í hug að fremja því­líkt þjóð­ar­morð og nú hefur staðið í 10 mán­uði er nokkuð sem erfitt er að skilja. Að brjóta öll hugs­an­leg mann­rétt­indi, fremja enda­lausa stríðs­glæpi, þjóð­ern­is­hreins­anir, svelta fólkið og halda frá því vatni. Gazabúar eru nú svo hart leiknir að þeir eiga ekk­ert eftir, byggð­irnar hafa verið lagðar í rúst og fólkið hefst við innan um brakið, matar- og vatns­lítið meðan frá­rennsli hefur allt verið eyði­lagt, sorp hleðst upp og hvers kyns far­aldur er yfir­vof­andi. Allt er þetta í algjörri and­stöðu við þau mann­legu rétt­indi sem vest­rænar þjóðir hafa verið að reyna að koma sér saman um sl. 100 ár. Og yfir­skin allra þess­ara árása er að Ham­asliðar hafi verið á svæð­inu!“

Ingólfur segir að það „að drepa tugi þús­unda kvenna, barna, gam­al­menna og særa enn fleiri, á þessum for­sendum, er nýtt met í ómennsku. Auðvitað eru hægri fas­istar við völd í Ísrael. En eiga þeir að kom­ast upp með þetta? Sem betur fer hefur glæpa­dóm­stóll­inn í Haag sagt það sem blasir við öllum: Þetta er til­raun til þjóð­ar­morðs! Og fáeinar þjóðir hafa við­ur­kennt Palest­ínu sem ríki. En Banda­ríkin ráða því sem þau vilja ráða í krafti styrk­leika síns; þau eru með lið­leskj­una Blinken og hinn seníla Biden; þeir þykj­ast hafa verið að semja um vopna­hlé mán­uðum saman án þess að geta sýnt fram á nokkurn árangur; og svo er rauð­hærða fíflið á vappi við dyrnar, hróp­andi að þetta hefði aldrei gerst hefði hann verið aðal og síon­istar verði að fá að ljúka verk­inu, meðan allt sæmi­lega viti borið fólk veit að ekki er hægt að útrýma hug­mynda­fræði! Neisti frels­is­ins í brjósti hins kúg­aða verður ekki slökktur. Stað­reyndin er sú að USA hefur stutt þjóð­ar­morðið með enda­lausum vopna­send­ingum. Stuðn­ingur okkar við Ísrael er bjarg­fastur, segja þér og neita að setja síon­istum neinn stól fyrir nokkrar dyr.“

Að hans mati er eina mann­eskjan sem er með ráði og „rænu í þeirri for­ystu­sveit er Kamala Harris. Hún hefur and­æft stríðs­glæp­unum, neit­aði að taka þátt í fárán­legri hall­elú­ja­sam­komu Repúblík­ana í þing­hús­inu og sagði glæpa­mann­inum Bíbí til synd­anna. Hvort hún lypp­ast síðar niður við hlið Bidens verður tím­inn að leiða í ljós. Og svo halda þeir áfram að sprengja og drepa og eyði­leggja með vest­rænum vopnum meðan stjórn­völd Vest­ur­landa segja já og amen en almenn­ingur and­æfir. Og hvað eru þau mót­mæli kölluð af síon­istum og stjórn­völdum Bret­lands, USA og Þýska­lands? Jú, mót­mælin gegn slátrun á tug­þús­undum barna og kvenna eru kölluð gyð­inga­hatur!“

Segir að end­ingu:

„Og svo er farið með mön­tr­una um að Ísrael hafi rétt til að verja sig. En þegar síon­istar leggja heilt land í rúst og drepa tug­þús­undir þá er það móðgun við heil­brigða skyn­semi að nota hug­takið vörn eða að kalla andóf gegn slíku gyð­inga­hatur! Það er móðgun gegn þeim sem urðu fyrir raun­veru­legu gyð­inga­hatri og týndu lífi í holocaustinu; það er móðgun við gyð­inga víðs vegar um heim­inn sem hafa and­styggð á síon­istum og því hvernig þeir fara með Palest­ínu­menn, gyð­ing­dóm­inn, trúna og að þeir skuli dirfast að fremja þjóða­morð og kalla það vörn.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ