Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Ungur stýrimaður stökk á eftir háseta sem féll í sjóinn: „Hreint björgunarafrek hjá mínum manni“

Ungur stýrimaður stökk á eftir háseta sem féll í sjóinn: „Hreint björgunarafrek hjá mínum manni“
Hásetinn á sjúkra­húsi. Mynd: Morgunblaðið/Kristinn

Ungur sjó­maður drýgði sann­kall­aða hetju­dáð þegar hann stökk í sjó­inn eftir að skips­fé­lagi hans féll útbyrðis í í febr­úar 1996.

Sveinn Arnarson stýri­maður, var aðeins 22 ára gam­all þegar hann bjarg­aði lífi skips­fé­lagasíns á Þorseti GK fyrir tæp­lega 30 árum síðan.

Hetjan

Skips­fé­lagi Sveins, háset­inn Sig­ur­geir Þor­steinn flækt­ist í færi, ökkla­brotn­aði og féll loks fyrir borð 25. febr­úar 1996. Atvikið gerð­ist verið var að leggja netin við Krýsur­vík­ur­berg en Sig­ur­geir fékk færi utan um vinstri fót­inn og ökkla­brotn­aði illa áður en hann kastað­ist frá borði. Sveinn, fyrsti stýri­maður skips­ins var ekki lengi að bregð­ast við, heldur dreif hann sig í flot­galla og stökk á eftir Sig­ur­geiri. Þegar í sjó­inn var komið tók við hið erf­iða verk­efni að losa háset­ann úr fær­inu en það gekk ekk­ert sér­lega vel til að byrja með enda fékk Sveinn bit­lausan hníf til að skera á færið. Allt gekk þó vel að lokum og náði Sveinn að bjarga lífi Sig­ur­geirs.

DV sagði frá hetju­dáð­inni á sínum tíma:

Háseti á Þor­steini GK flækt­ist í færi, fót­brotn­aði og kastað­ist fyrir borð:

Fann að hann þjáð­ist mikið þarna í sjónum

– segir Sveinn Arnarson stýri­maður sem stökk í sjó­inn og bjarg­aði skips­fé­laga sínum með snar­ræði

„Ég fann að hann þjáð­ist mikið þarna í sjónum. Sárs­auk­inn kom í hviðum og það varð að hafa hraðar hendur við að losa hann,“ segir Sveinn Arnarson, fyrsti stýri­maður á neta­bátnum Þor­steini GK 16, í sam­tali við DV. Sveinn bjarg­aði í gær skips­fé­laga sínum, Sig­ur­geiri Bjama­syni háseta, frá drukknun eftir alvar­legt slys um borð í bátnum þegar verið var að leggja netin við Krýsu­vík­ur­berg um klukkan þrjú í gær. Sig­ur­geir fékk færi um vinstri fót­inn og brotn­aði illa við ökla áður en hann kastað­ist í sjó­inn.

Fót­brotn­aði sam­stundis „Við hugs­uðum fyrst um að missa mann­inn ekki útbyrðis og reyndum að streit­ast á móti. Það er auð­vitað umdeil­an­legt og á end­anum urðum við að gef­ast upp og hann fór fyrir borð,“ segir Sveinn. Verið var að renna út seinna fær­inu þegar óhappið varð. Var færið komið á enda þegar Sig­ur­geir flækt­ist í því alveg upp við bauju. Sveinn telur að Sig­ur­geir hafi brotnað um leið og færið kippti undan honum fót­unum. Tölu­verður skriður var á bátnum þegar óhappið varð, eða fimm til sex mílur. Varð því að hafa snör hand­tök við að koma Sig­ur­geiri til bjargar. Sveinn stökk upp í brú og fór þar í flot­galla sem ávallt er þar til taks. „Ég rétt náði að renna rennilásnum upp áður en ég henti mér í sjó­inn. Ég var hins vegar vett­linga­laus og varð fljótt ansi kalt á hönd­unum,“ segir Sveinn. Meðan Sveinn var að búa sig reyndu skip­verjarnir á Þor­steini að losa Sig­ur­geir af fær­inu en tókst ekki. Festu þeir þá baujuna um borð meðan skip­stjór­inn bakk­aði rólega í átt­ina að Sig­ur­geiri.

Fékk bit­lausan hníf „Ég fékk fyrst alveg bit­lausan hníf til að skera færið. Það gekk ekk­ert að hjakka færið í sundur með honum en sem betur fer fundu þeir um borð annan betri hníf og þá gaf færið sig,“ segir Sveinn. Eftir að Sig­ur­geir var laus var honum komið í Mark­úsa­met og svo hífður um borð. Hann var með með­vit­und allan tím­ann en mikið kval­inn. Þegar var kallað á björg­un­ar­sveit­ina Þorbjöm og komu menn frá henni oé læknir til móts við Þorstein á björg­un­ar­bát. Voru þeir komnir um borð um klukku­stund eftir að slysið varð. Hálftíma síðar var Þor­steinn GK kom­inn til hafnar í Grinda­vík með Sig­ur­geir og var hann fluttur á Sjúkra­hús Reykja­víkur. Þar fór hann þegar í aðgerð. í gær­kvöld var líðan hans eftir atvikum góð en fót­ur­inn er illa far­inn. „Ég gerði ekki annað en það sem okkur er kennt í Björg­un­ar­skóla Slysa­varna­fé­lag­isns. Það skiptir virki­lega máli sem kennt er þar,“ sagði Sveinn sem er 22 ára gam­all og byrj­aði sem stýri­maður á Þor­steini í haust.

DV sagði einnig frá við­brögðum skip­stjór­ans á Þor­steini GK en hann var ein­stak­lega ánægður með hinn unga stýri­mann eins og lesa má í umfjöllun DV:

Ásgeir Magn­ús­son, skip­stjóri á Þor­steini GK:

Björg­un­ara­frek

„Þetta var snar­ræði og auð­vitað hreint björg­un­ara­frek hjá mínum manni. Þetta er sprækur strákur og hann hik­aði ekki við að kasta sér í sjó­inn,“ segir Ásgeir Magn­ús­son, skip­stjóri á Þor­steini GK 16, í sam­tali við DV. Hann er að tala um Svein Amarson, fyrsta stýri­mann, sem í gær bjarg­aði Sig­ur­geiri Bjama­syni háseta frá drukknun þegar verið var að leggja netin út af Krýsu­vík­ur­bergi í gær. Ásgeir segir að veður hafi verið gott en sjór mjög kaldur eftir norð­an­hret síð­ustu daga. Því hafi þurft bæði kjark og snar­ræði til að stökkva fyrir borð. „Ég var ekki hræddur um að Sig­ur­geir myndi sökkva því hann var í end­anum á fær­inu. Hins vegar þola menn ekki langa dvöl í köldum sjónum og nán­ast hver sek­únda skiptir máli,“ segir Ásgeir. Hann sagð­ist hafa ótt­ast að Sig­ur­geir og Sveinn lentu í skrúfu báts­ins meðan hann var að bakka að þeim og taka slak­ann af fær­inu. Báturinn hefði snú­ist í átt­ina að þeim félögum. „Þetta gekk þó allt og ég held að Sig­ur­geir hafi vart verið meira en fimm mín­útur í sjónum áður en búið var að ná honum um borð aftur,“ segir Ásgeir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni