Þórður Helgi Þórðarson eða Doddi litli eins og hann er yfirleitt kallaður er að jafna sig eftir bráðaaðgerð og segist ekki mæta til vinnu á næstunni.
Doddi litli er með vinsælustu útvarpsmönnum þjóðarinnar en hann hefur um árabil starfað á Rás 2 við gríðarlegar vinsældir. En hann hefur ekki heyrst í útvarpinu í nokkrar vikur en ástæðan er sannarlega skiljanleg. Í gær skrifaði Doddi færslu á Facebook þar sem hann skýrir fjarveru sína. Um Verslunarmannahelgina þurfti hann nefnilega að gangast undir stærðarinnar skurðaðgerð.
„Á ekkert að mæta í vinnu aftur?
Nei, ekki á næstunni.Komið þið sæl, ég ætlaði ekkert að ræða þessi mál hér en vegna allra fyrirspurnanna um hvort ég ætli ekki að fara að mæta í útvarpið held ég að ég verði að segja ykkur aðeins af mínum málum.
Um verslunarmannahelgina var gerð stór skurðaðgerð á mér vegna bráðrar ósæðarflysjunar við hjarta . Þetta er sjúkdómur þar sem 50% sjúklinga deyja áður en þau komast í aðgerð og 20% þeirra lifa aðgerðina ekki af.“
Segir Doddi vera einn af þeim heppnu.
„Ég var einn af þeim heppnu og var að koma heim eftir legu á LSH í tæpar 3 vikur og vil ég þakka starfsfólki kærlega fyrir allt.Nú tekur við endurhæfing í einhverja mánuði svo nei…. ég er ekki á leið í loftið alveg á næstunni.Ég þakka stuð-ninginnBestu kveðjur“































Athugasemdir