Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Nemandi stunginn í Arizona State háskólanum: „Fann mig knúinn til að gera eitthvað“

Nemandi stunginn í Arizona State háskólanum: „Fann mig knúinn til að gera eitthvað“

Nemandi í Arizona State háskól­anum hefur verið lögð inn á sjúkra­hús eftir að hún var sögð hafa verið stungin „nokkrum sinnum“ af jafn­aldra sínum þegar hún gekk inn í kennslu­stofu.

Samkvæmt Fox News hand­tók lög­reglan í Maricopa-sýslu og ákærði Kaci Lenise-Charlie Sloan, 19 ára, grun­aða um fyrstu gráðu morð­til­raun, alvar­lega lík­ams­árás með ban­vænu vopni, afskipti af mennta­stofnun og óeðli­lega hegðun, fyrir að stinga bekkj­ar­systur sína, Mara Daffron, en árásin átti sér stað 19. sept­em­ber á háskóla­svæði ASU í West Valley.

Eins og fram kemur í lýs­ingu fyrir GoFundMe fjár­öflun, sem hefur verið sett upp af nágrönnum Daffron, var hún „stungin nokkrum sinnum, en sem betur fer hefur hún tekið miklum fram­förum og er á bata­vegi.“

„Við viljum að sam­fé­lagið okkar komi saman og styðji Daffron fjöl­skyld­una á þessum erf­iða tíma. Þessir fjár­munir munu renna í allt sem fjöl­skyldan gæti þurft,“ héldu skila­boðin á GoFundMe áfram.  „Við vitum að Mara mun koma sterk­ari út úr þess­ari ólýs­an­legu árás en nokkru sinni fyrr. Við þökkum öllum sem geta lagt sitt af mörkum! Við munum deila fleiri upp­færslum eftir því sem við fáum þær frá fjöl­skyldu hennar.“

Tilviljunarkennd árás

Samkvæmt yfir­lýs­ingu sem Fox News varð sér út um, sagði lög­reglan að Sloan hafi stungið Daffron „án ögrunar og án nokk­urra orða“.

Talið er að á annan tug vitna hafi séð árás­ina og deildu vitn­is­burði sínum um atburð­inn með yfir­völdum.

Eins og fram kemur í skýrslum sagði lög­reglan að eitt vitn­anna hafi náð að „afvopna sak­born­ing­inn með því að draga hníf­inn frá hægri hendi ákærða og kastað honum í burtu,“ á meðan annar nem­andi „spark­aði hnífnum aftar í kennslu­stof­una.“

„Annað vitni lýsti því að ger­and­inn hafi setið í kennslu­stof­unni við skrif­borð sitt og hafi staðið skyndi­lega upp og hlaupið að fórn­ar­lamb­inu þegar það kom inn í skóla­stof­una og stungið hana margoft,“ skrif­uðu yfir­völd í yfir­lýs­ing­unni.

Lög­reglan hefur einnig upp­götvað miða í bak­poka Sloan, þar sem hún er sögð hafa skrifað um það sem hún var „að fara að fremja“. Hins vegar er sagt að á hand­skrif­aða minnismið­anum væri „ekki sér­stak­lega til­greint hvað hún var að vísa til“.

Játaði strax

Samkvæmt skýrsl­unni ját­aði Sloan fyrir rann­sókn­ar­lög­reglu­mönnum að hafa skipu­lagt árás­ina kvöldið áður.

„Ger­and­inn við­ur­kenndi að hún kom í kennslu­stund­ina til að meiða ein­hvern og hafði skipu­lagt árás­ina kvöldið áður,“ sagði í yfir­lýs­ing­unni, sam­kvæmt KPNX. „Þessi skipu­lagn­ing fól í sér að setja hníf­inn sem not­aður var við árás­ina í bak­poka hennar til að koma með í skól­ann. Sak­born­ing­ur­inn sagði rann­sókn­ar­lög­reglu­mönnum að hún vissi for­nafn fórn­ar­lambs­ins en vissi ekk­ert annað um hana. Hún þekkti fórn­ar­lambið úr fyrri kennslu­tímum og deildi kennslu­tíma með henni á þess­ari önn.“

Lög­reglan sagði einnig að Sloan hafi sagt þeim að hún hafi valið að ráð­ast á Daffron vegna þess að hún „taldi að fórn­ar­lambið væri auð­veld­ara skot­mark“ en hinn aðil­inn sem hún var að sögn að íhuga að ráð­ast á.

Hetjan tjáir sig

Nem­and­inn sem sagður var hafa ​​afvopnað Sloan, rifj­aði atvikið upp í við­tali við Fox 10 Phoenix.

Matthew McCormick sagð­ist hafa verið að búa sig undir kennslu­tím­ann þegar hann heyrði Daffron öskra vegna þess að hún var stungin.

„Á því augna­bliki fór eig­in­lega engin hugsun í gegnum haus­inn á mér, ég vissi bara að ég fann mig knú­inn til að gera eitt­hvað,“ sagði McCormick.

Samkvæmt upp­lýs­ingum frá lög­regl­unni hafði Sloan þegar stungið Daffron tvisvar áður en McCormick fékk tæki­færi til að stíga inn í.

„Þegar hún var að fara að stinga í þriðja skiptið gat ég gripið um úln­lið hennar og haldið henni áður hún gat ollið meiri skaða,“ rifjar hann upp.

Samkvæmt Fox 10 Phoenix var Daffron flutt á Banner Thund­er­bird sjúkra­húsið þar sem hún gekkst undir aðgerð vegna sára á þrí­höfða hennar og rif­bein þar sem hníf­ur­inn hafði skorið í milta hennar. Sloan er sögð enn á bak­við lás og slá.

Í yfir­lýs­ingu sagði ASU við Fox News:

„Kaci Sloan var strax hand­tekin, grunuð um fyrstu gráðu morð­til­raun, alvar­lega lík­ams­árás með ban­vænu vopni, afskipti af mennta­stofnun og óeðli­lega hegðun,“ sagði full­trúi háskól­ans í sam­tali við Fox News. „Henni er haldið á 250.000 dala trygg­ingu.“

„ASU og allt ASU West Valley sam­fé­lagið er mjög sorg­mætt yfir því sem gerð­ist. ASU West Valley er náið háskóla­svæði nem­enda, kenn­ara og starfs­fólks. Ráð­gjaf­ar­stuðn­ingur stendur öllum til boða,“ segir að lokum í yfir­lýs­ing­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco