Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Þyrluáhöfn Landhelgisgæslunnar bjargaði níu skipsbrotsmönnum: „Ólýsanleg tilfinning“

Þyrluáhöfn Landhelgisgæslunnar bjargaði níu skipsbrotsmönnum: „Ólýsanleg tilfinning“
Barðinn á strand­stað Mynd: Trausti Hafsteinsson

Þyrlu­á­höfn Land­helg­is­gæsl­unnar vann þrekraun í mars 1987 þegar henni tókst að bjarga níu skips­brots­mönnum frá drukknun er skip þeirra, Barðinn GK 475 frá Sand­gerði strand­aði nærri Dritvík á Snæ­fells­nesi.

Snemma á laug­ar­dags­morgun 14. mars árið 1987 sendi Slysa­varn­ar­fé­lag Íslands út boð um bát sem væri í vænd­ræðum norður af Dritvík á Snæ­fells­nesi en þar hafði Barðinn GK 475 frá Sand­gerði siglt í strand. Hafði bát­ur­inn skorð­ast fastur við kletta á meðan sjór gekk yfir hann með látum. Ljóst var að bregð­ast skjótt við ef ekki átti að fara illa fyrir skip­verj­unum níu um borð. Björg­un­ar­menn í landi gátu ekk­ert gert, þó stutt væri í bát­inn og var því þyrla frá Land­helg­is­gæsl­unni send á strand­stað.

Þyrlu­á­höfnin vann sann­kallað þrek­virki og tókst að bjarga öllum níu skip­verj­unum um borð, sem flestir voru klæða­litlir og kaldir. Skip­stjóri báts­ins flaug með þyrl­unni á Borg­ar­spít­al­ann í Fossvogi en hann var fljótur að ná sér af volk­inu. Aðrir skip­verjar voru fluttir á heilsu­gæsl­una í Ólafsvík til aðhlynn­ingar.

Hér fyrir neðan má lesa frá­sögn Tímans um þetta fræki­lega afreka Land­helg­is­gæsl­unnar:

Þyrlu­á­höfn Land­helg­is­gæsl­unnar bjarg­aði níu skip­brots­mönnum:

Snör hand­tök urðu til mann­bjargar í hild­ar­leik

„Við höfðum örlítið lof­t­rúm þegar sjór reið yfir,“ segir báts­verji

Það var klukkan 7:00 á laug­ar­dags­morg­un­inn að Slysa­varna­fé­lag Íslands sendi út boð um að bátur væri í hafs­nauð norður af Dritvík á Snæ­fells­nesi. Barðinn GK 475 frá Sand­gerði hafði siglt í strand og barð­ist utan í klettana, þar sem hann hafði skorð­ast fastur, meðan sjór gekk yfir hann af offorsi. Brotsjór sem reið yfir skipið haml­aði að björg­un­ar­menn í landi gætu nokkuð aðhafst, þótt aðeins væru fáeinir metrar út í bát­inn, enda urðu þeir ekki varir lífs­marks í fyrstu. Skipinu hall­aði á stjórn­borða og sjór steypt­ist í gegn um stýr­is­húsið. Þyrla Land­helg­is­gæsl­unnar kom á vett­vang laust eftir klukkan 8.00 og komu menn þar um borð auga á skip­brots­menn, sem höfð­ust við inni í kor­ta­klefa Barðans og reyndu að vekja athygli á sér. Þeir voru níu tals­ins og tókst þyrlu­mönnum að koma til þeirra tóg­vír og draga hvern á fætur öðrum úr bátnum. Búist var við að bát­ur­inn myndi lið­ast í sundur á hverri stundu.

Öldurnar lægðar með olíu

Frétta­rit­ara Tímans, sem tók þátt í björg­un­inni með björg­un­ar­sveit­inni Björg, seg­ist svo frá, að á leið á strand­stað hafi verið haft tal­stöðv­ar­sam­band við aðra báta, sem lágu úti fyrir slys­stað. Þeir höfðu myndað ein­falda röð og dældu olíu í sjó­inn til að lægja öld­urnar sem riðu yfir Barðann. „Báðu þeir okkur að flýta okkur sem mest við gátum, þar sem þeim sýnd­ist að skip­brots­menn lægju í klett­unum fyrir ofan strand­aða bát­inn. Það reynd­ust seinna vera lóða­belgir og stakkar en ekki menn. Um borð í einum þess­ara báta var bát­verji mjög kunn­ugur þessu svæði, sem leið­beindi björg­un­ar­sveitum á strand­stað. Það varð til þess að spar­að­ist mik­il­vægur tími.“

Aðeins örlítið lof­t­rúm

Björg­un­ar­sveitin kom á slys­stað þegar vant­aði stund­ar­fjórð­ung í átta og var ekk­ert lífs­mark að sjá úr landi. Hófst þá mikil leit í klett­unum í kring. Þyrla Land­helg­is­gæsl­unnar kom skömmu síðar á vett­vang og það var ekki fyrr, sem varð vart manna um borð í Barðanum. Hvert ólagið á fætur öðru færði skipið í kaf, svo aðeins möstur sáust. Þurfti að sæta lagi við að koma vír til skip­brots­manna og draga þá út um dyrnar að kor­ta­klef­anum. Þar höfð­ust skip­brots­menn­irnir níu við og stóðu í sjó að mitti. „Við höfðum aðeins örlítið lof­t­rúm í her­berg­inu þegar sjór­inn reið yfir,“ er haft eftir einum skip­verja. Verulega var farið að draga af mönnum, en lík­ams­hiti skip­stjór­ans var kom­inn niður í 32 gráður. Tókst að ná fimm mönnum upp í fyrstu atrennu, en vegna smæðar þyrl­unnar varð að skila þeim fyrst í land, þar sem beið þeirra læknir Land­helg­is­gæsl­unnar, og fara aðra ferð út í Barðann til að sækja þá sem eftir urðu.

„Ólýs­an­leg til­finn­ing“

„Þökk sé aðstæðum þarna. kom smæð þyrl­unnar ekki að sök að þessu sinni,“ sagði Páll Hall­dórs­son, flug­stjóri þyrl­unnar, í sam­tali við Tímann eftir björg­un­ara­frekið. „Það er ólýs­an­leg til­finn­ing sem greip okkur um borð í þyrl­unni þegar okkur tókst að bjarga allri skips­höfn­inni.“ Hlúð var að skip­brots­mönnum í bílum í landi, en þyrlan flutti skip­stjór­ann með sér á Borg­ar­spít­al­ann í Reykja­vík. Hann var þó fljótur að ná sér og er kom­inn heim til sín. Aðrir voru fluttir í heilsu­gæslu­húsið í Ólafsvík. Flestir Voru klæða­litlir og því kaldir. „Það tók um þrjá stund­ar­fjórð­unga að bjarga áhöfn­inni. Frammi­staða áhafnar þyrlu Land­helg­is­gæsl­unnar er til mik­ils sóma. Snör hand­tök, full­komið öryggi og nákvæmni varð til þess að allir úr áhöfn Barða GK 475 komust lífs af úr þessum hild­ar­leik,“ sagði frétta­rit­ari Tímans, Sigurður Snæfell Sig­urðs­son.

Björg­un­ar­menn fóru um borð

Sigurður Snæfell fór út í strand­aða skipið ásamt vara­for­manni Bjargar, Þór Aðal­steins­syni, um leið og fallið hafði út. Stýr­is­húsið var illa útleikið. Nánast allt hafði hreins­ast úr brúnni en á borði í korta­geymsl­unni lá neyð­ar­tal­stöð og neyð­ar­blys, sem fært var í land. Einnig fannst úrið, sem með­fylgj­andi mynd er af, og getur eig­and­inn vitjað um það hjá Tímanum, þar sem það nú er niður komið. Unnið er að því að bjarga úr skip­inu því sem bjargað verður áður en það brotnar í klett­unum. Auk Páls Hall­dórs­sonar, flug­stjóra, voru í áhöfn þyrl­unnar Hermann Sig­urðs­son, flug­maður, Sigurður Steinar Ket­ils­son, stýri­maður, Kristján Þ. Jónsson, sig­maður, og Guð­mundur Björns­son, læknir. Ekki er Ijóst hvað olli strand­inu en sjó­próf munu hefj­ast hjá bæj­ar­fó­get­anum í Keflavík í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni