Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Páll Valur sækist eftir forystusæti í Suðurkjördæmi: „Þetta er lítið samfélag sem á að blómstra“

Páll Valur sækist eftir forystusæti í Suðurkjördæmi: „Þetta er lítið samfélag sem á að blómstra“
Páll Valur Björns­son Mynd: Aðsend

Páll Valur Björns­son ætlar að bjóða sig fram til for­ystu Sam­fylk­ing­ar­innar í Suð­ur­kjör­dæmi í kom­andi kosn­ingum.

Sam­fé­lags­rýn­ir­inn naski, Björn Birg­is­son upp­ljóstr­aði á Facebook í dag að Páll Valur Björns­son, fyrr­ver­andi þing­maður Bjartrar fram­tíðar og vara­þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, hyggð­ist bjóða sig fram til for­ystu Sam­fylk­ing­ar­innar í Suð­ur­kjör­dæmi fyrir kosn­ing­arnar sem verða í lok nóv­em­ber.

Mannlíf heyrði í Páli Val sem stað­festi fregn­irnar. „Já, ég get stað­fest það. En ég var svo sem ekk­ert að hugsa um póli­tík þannig séð en svo hef ég verið að fá hvatn­ingu frá fólki um að bjóða mig fram. En svo fer það bara eins og það fer, þetta er upp­still­ing. Síðast gerði ég þetta líka, þá sótt­ist ég eftir for­ystu­sæti en þeir vildu hafa mig neðar á lista þannig að ég tók ekki þátt í því.“

Páll Valur segir að fólkið sem hvatt hafi hann til fram­boðs und­an­farið komi víða úr kjör­dæm­inu. „Það vill endi­lega fá mig aftur á þing. Þeim fannst ég hafa staðið mig ágæt­lega með Bjartri fram­tíð,“ segir Páll Valur og seg­ist vera búinn að til­kynna upp­still­inga­nefnd um áform sín.

Ánægður með Kristrúnu

Aðspurður hvaða mál Páll Valur hyggst leggja áherslur á verði hann kos­inn á þing svarar hann: „Ég ætla bara að leggja áherslu á jafn­að­ar­stefn­una og þau stefnu­mál sem Sam­fylk­ingin er að leggja fram. Kristrún hefur staðið sig alveg gríð­ar­lega vel í því að fara út um allt og hitta fólk“. Bætir hann við að nátt­úru­ham­far­irnar í Grinda­vík hafi alveg sett hann „út af lag­inu“ og að hann sé fyrst núna að ná áttum. „En ég mun sem sagt leggja áherslu á þess­ari jafn­að­ar­stefnu en við þurfum nátt­úru­lega að byggja upp mann­væn­legt og gott sam­fé­lag. Við þurfum að ná skikki á hús­næð­is­málum og efna­hags­legum stöð­ug­leika, sem hinir eru alltaf að tala um en aldrei stemmir. Og kannski er kom­inn tími á að aðrir kom­ist að völdum til að prófa það.“ Segist hann telja að Sam­fylk­ing­ar­fólk hafi þær lausnir sem þjóðin þarf og að vel sé tekið undir með Kristrúnu þegar hún og hennar fólk hafi verið að fara um landið. „Það sem hún er að leggja áherslu á er bara nákvæm­lega það sem fólk er að hugsa um.“

Talsmaður barna

Málefni barna og ung­menna er Páli Val einnig hug­leikið en hann hefur verið fram­halds­skóla­kenn­ari síð­ast­liðin sjö ár. „Þegar ég var á þingi þá lét ég mál­efni barna mér mjög mikið varða. Ég kom bara mál­efnum barna á dag­skrá á Alþingi. Ég segi það bara fullum fetum.“ Páll Valur var einn af þeim sem til­nefndir voru sem tals­menn bara árið 2014. „Og ég fór með þetta alla leið. Þetta er auð­vitað mik­il­vægt mál­efni. En svo tók Ásmundur við en mér finnst nú lítið hafa þok­ast. Biðlist­arnir stytt­ast ekki og þung­lyndi og kvíði barna og annað í skólum er auð­vitað ævin­týra­legt. Ég hef miklar skoð­anir á því hvernig við getum breytt því, er búinn að vera kenn­ari hjá Fisk­tækni­skól­anum í Grinda­vík, nú Sand­gerði síð­ustu sjö ár.“ Blaða­maður skaut inn í sam­talið fregnum af auknu ofbeldi barna og ung­menna og Páll Valur svar­aði: „Já, það er eins og það sé eitt­hvað sið­rof í sam­fé­lag­inu og mér finnst stjórn­völd ekk­ert hafa tekið á því. Við þurfum að keyra miklu meira á sam­vinn­una og sam­ráðið og sam­líð­an­ina. Þetta er lítið sam­fé­lag sem á að blómstra en hér er allt að fara til fjand­ans. Hver hendin er uppi á móti annarri og þetta bitnar auð­vitað á börnum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ