Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Kynferðisleg auglýsing KSÍ um kvennalandsliðið umdeild: „Mér finnst þetta sorglegt“

Kynferðisleg auglýsing KSÍ um kvennalandsliðið umdeild: „Mér finnst þetta sorglegt“
Leik­ur­inn fór fram á Laug­ar­dals­velli – Mynd: KSI.is

Árið 2001 ákvað KSÍ að aug­lýsa lands­leik hjá íslenska kvenna­lands­lið­inu á nokkuð umdeildan máta en Morg­un­blaðið fjall­aði um málið á sínum.

Aug­lýs­ing umdeilda birt­ist dag­inn fyrir lands­leik kvenna­lands­liðs­ins við Ítalíu en leik­ur­inn fór fram á Laug­ar­dals­velli. Í aug­lýs­ing­unni sátu leik­menn liðs­ins fyrir létt­klæddar og stóð undir mynd­inni „Stelpu­slagur.“ Aug­lýs­ing vakti mikla athygli og þótti umdeild í sam­fé­lag­inu á þeim tíma og töldu sumir hana vera kyn­ferð­is­lega.

Val­gerður Bjarna­dóttir, fram­kvæmda­stýra Jafn­rétt­is­stofu, sagði við Morg­un­blaðið aug­lýs­ing­una vera sorg­lega. „Mér finnst þessar stelpur, sem ég ber heil­mikla virð­ingu fyrir, vera að gefa eftir fyrir mark­aðs­öfl­unum og segja að ekk­ert sé neins virði nema það sé ofbeldi í því og ein­hver kyn­lífs­sala,“ sagði Val­gerður. „Þegar orðið „stelpu­slagur“ og íþrótta­stelpur í bik­iníi, sem teng­ist þeirra íþrótt ekki á neinn hátt, fer saman í aug­lýs­ingu er leðju­slagur það fyrsta sem kemur upp í hug­ann, ekki bara hjá mér heldur fleirum, stelpur að slást, æsandi og spenn­andi. Mér finnst þetta sorg­legt, ég vildi að þær gætu bara staðið fyrir það sem þær eru að gera með fullri virð­ingu og fengið athygli út á það, krefj­ast þess að fá athygli út á það, en ekki það sem heim­ur­inn veitir sjálf­krafa athygli.“

Hún tók þó fram að ef orðið „stelpu­slagur“ hefði verið tekið út hefði það breytt miklu.

„Þær eru ekki kyn­tákn á vell­inum, þar eru þær konur sem eru að brjóta múra dálítið, að krefj­ast þess að fá að stunda sín áhuga­mál sem kunna að vera dálítið óhefð­bundin enn þá. Það tekur tíma að vinna sér virð­ingu þegar við erum að fara inn á óhefð­bundin svið.“

Lands­liðið fékk hug­mynd­ina

Ást­hildur Helga­dóttir, þáver­andi fyr­ir­liði, sagði stelp­urnar í lið­inu hafi fengið hug­mynd­ina að aug­lýs­ing­unni en starfs­maður aug­lýs­inga­stofu hafi stungið upp á orð­inu „stelpu­slagur.“

„Það var ágæt­is­hug­mynd og vakti eig­in­lega meiri athygli á þessu,“ sagði Ást­hildur. „Ég held að það sé bara allt í lagi að vekja þetta umtal, það var eig­in­lega það sem við vorum að sækj­ast eftir. Það hefur oft verið í umræð­unni að stelpur verði bara feitar, með feit læri og stóran rass af að vera í fót­bolta. Við vildum kannski líka sýna að við erum í góðu formi og æfum vel. Það virð­ist vera raunin að það þurfi að gera eitt­hvað rót­tækt, sér­stak­lega við stelp­urnar.“

Ekki dóna­leg

Eggert Magn­ús­son, þáver­andi for­maður KSÍ, var ósam­mála þeirri gagn­rýni sem aug­lýs­ingin fékk og fannst hún ekk­ert dóna­leg.

„Mér finnst dóna­skapur við stúlk­urnar hvað mæta fáir á völl­inn, þær hafa staðið sig mjög vel og verið með mjög góðan árangur og eiga það hrein­lega skilið að fólk styðji við bakið á þeim. Stundum er verið að fjalla um það í ræðu og riti að það sé ekki nóg gert í kvennaknatt­spyrn­unni, það ágæta fólk sem heldur því fram á að minnsta kosti að sýna þá stór­mennsku að mæta á völl­inn.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni