Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Sigurður Kári fordæmir mannréttindabrot á Gaza: „Það stríð sem þú nefnir er hörmulegt“

Sigurður Kári fordæmir mannréttindabrot á Gaza: „Það stríð sem þú nefnir er hörmulegt“
Sigurður Kári Krist­jáns­son lög­maður.

Sigurður Kári Krist­jáns­son for­dæmir mann­rétt­inda­brot sem framin hafa verið á Gaza.

Nýskip­aður for­maður Mann­rétt­inda­stofn­unar Íslands og fyrr­ver­andi kjör­ræð­is­maður Ísraels segir stríðið á Gaza hörmu­legt og for­dæmir mann­rétt­inda­brotin sem þar eru framin.

Mannlíf hafði sam­band við Sigurð Kára Krist­jáns­son, sem fyrir tveimur mán­uðum lét af störfum sem kjör­ræð­is­maður Ísraels eftir tveggja ára vinnu, tók í gær við sem for­maður Mann­rétt­inda­stofn­unar Íslands. Fjöl­mið­ill­inn spurði Sigurð Kára út í per­sónu­legar skoð­anir sínar um það sem er í gangi á Gazaströnd Palest­ínu og þá stað­reynd að Sam­ein­uðu þjóð­irnar hafa sagt að sterkar vís­bend­ingar séu um að Ísraelar séu að stunda þjóð­ar­morð á Palest­ínu­mönnum. Þá hefur Alþjóða­glæpa­dóm­stóll­inn einnig sagt í bráða­birgða­nið­ur­stöðum sínum að vís­bend­ingar séu um þjóð­ar­morð á Gaza. Enn­fremur var Sigurður Kári spurður hvort hann myndi beita sér fyrir því að Mann­rétt­inda­stofnun Íslands hvetji til, stuðli að og taki þátt í rann­sóknum, fræðslu og opin­berri umræðu um mann­rétt­indi Gazabúa, en þá er verið að vitna í 2.gr. lið f í lögum um hlut­verk Mann­rétt­inda­stofn­unar Íslands.

Í skrif­legu svari Sigurðar Kára bendir hann á að stjórn stofn­un­ar­innar hafi verið kjörin í gær og að stjórnin hafi ekki komið saman síða þá. Nefnir hann nokkur atriði sem stjórn stofn­un­ar­innar er gert að ein­blína á:

„Stjórn Mann­rétt­inda­stofn­unar Íslands var kjörin á Alþingi í gær.

Eðli máls­ins sam­kvæmt hefur stjórnin ekki komið saman síðan þá og stjórn­ar­menn raunar ekki enn fengið skip­un­ar­bréf í hendur frá Alþingi, eftir því sem ég best veit.  Skipan stjórn­ar­innar er ein­ungis fyrsta skrefið af mörgum sem þarf að stíga við að koma þess­ari stofnun á fót, en meðal þeirra er að ráða fram­kvæmda­stjóra og skipa ráð­gjafa­nefnd hags­muna­að­ila, sbr. 4. og 6. gr. laga um Mann­rétt­inda­stofnun Íslands nr. 88/2024.

Af því leiðir að stjórnin á eftir að koma saman til þess að fara yfir þau verk­efni sem stofn­un­inni er ætlað að fjalla um lögum sam­kvæmt og móta starf­semi hennar.  Samkvæmt 1. gr. laga um hana er meg­in­hlut­verk hennar „að efla og vernda mann­rétt­indi á Íslandi, eins og þau eru skil­greind í stjórn­ar­skrá, lögum, alþjóða­samn­ingum og öðrum alþjóð­legum skuld­bind­ingum“.  Hlutverk hennar er síðan nánar skil­greint og afmarkað í 2. gr. lag­anna.  Þá er sér­stök áhersla í 9. gr. á rétt­indi og rétt­ar­stöðu fatl­aðs fólks.

Þetta eru verk­efnin sem Alþingi fól okkur. Yfir þau þurfum við að fara og ræða á vett­vangi stjórn­ar­innar og munum gera það þar.“

Sigurður Kári svar­aði að lokum um sína per­sónu­legu skoðun á því sem gengur á fyrir botni Mið­jarð­ar­hafs, á Gaza en hann sagð­ist for­dæma öll mann­rétt­inda­brot:

„Að því sögðu, og með vísan til þeirra spurn­inga sem þú spyrð mig, þá er ég þeirrar skoð­unar að það stríð sem þú nefnir sé hörmu­legt, eins og öll önnur stríð, og ég for­dæmi eins og aðrir öll mann­rétt­inda­brot.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ