Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Segir Sigmund nota „viðkvæma stöðu trans fólks til að skora pólitísk stig hjá þeim fordómafyllstu“

Segir Sigmund nota „viðkvæma stöðu trans fólks til að skora pólitísk stig hjá þeim fordómafyllstu“
Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son.

Íslensku­fræð­ing­ur­inn Hákon Darri Egilsson skrifar grein sem ber yfir­skrift­ina:

Ís­lensku­fræð­ing­ur­inn Sig­mundur Davíð

Hákon Darri Egilsson.

„Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son hefur farið mik­inn á sam­fé­lags­miðl­inum X und­an­farna daga þar sem hann amast við kyn­hlut­lausu máli og vitnar m.a. í grein sína „Pólitísk skemmd­ar­verk á íslenskri tungu,“ sem birt­ist fyrst í Morg­un­blað­inu 16. maí síð­ast­lið­inn.

Hann vitnar í aug­lýs­ingar frá Sjálf­stæð­is­flokknum og Fram­sókn­ar­flokknum í þessu sam­hengi þar sem stendur m.a. „öll vel­komin“ og „far­sæld fyrir öll“. Þetta kallar hann mein­lega „woke“-afbökun íslensk­unnar.

Í áður­nefndri grein fjallar hann líka um nýyrði á borð við leg­hafa og þung­un­ar­rof og ég held það komi fáum á óvart, að Sigmundi Davíð finnst lítið varið í þau orð.

Íslenska er indó-evr­ópskt tungu­mál og eitt meg­in­ein­kenna indó-evr­ópskra tungu­mála er mál­fræði­legt kyn. Iðulega er talið að kynin í indó-evr­ópsku hafi verið tvö, annað yfir lif­andi verur og hitt yfir dauða hluti. Íslenska karl­kynið er í raun fram­hald af „lif­andi kyn­inu“ (e. Animate gender) í indó-evr­ópsku. Þetta er mál­sögu­lega skýr­ingin á því, hvers vegna hefð hefur verið fyrir því að nota karl­kyn yfir óskil­greindan hóp fólks af öllum kynjum í íslensku.

Tungumál þró­ast og þau taka breyt­ingum, það er eðli tungu­mála að þró­ast og þau gera það mis­hratt og mis­mikið í einu. Íslenska er dæmi um tungu­mál sem almennt er talið að hafi tekið litlum breyt­ingum frá land­námi Íslands, eða hvað?

Ef Sig­mundur Davíð ætti tíma­vél og ferð­að­ist til tíma Snorra Sturlu­sonar, myndu þeir að öllum lík­indum ekki skilja hvor annan. Það eru til fjöl­mörg dæmi í íslensku, þar sem ekki aðeins ein­staka orðum, heldur sagn­beyg­ingum og nafn­orða­beyg­ingum (mál­fræði!), hefur vís­vit­andi verið breytt til fyrra horfs í póli­tískum til­gangi.

Til­gang­ur­inn var að auka þjóð­ern­is­kennd meðal Íslend­inga og efla sjálf­stæð­is­bar­átt­una.

Fyrir u.þ.b. tveimur öldum þótti eðli­legt að segja „hann er hjá læknir“ og „sjáðu hellir­inn!“ Það var með­vituð ákvörðun tekin um að breyta beyg­ing­ar­end­inum í karl­kyns­orðum sem enda á -ir í nefni­falli á þann veg að þær sam­ræmd­ust fornri beyg­ingu.

Ég nefni annað dæmi. Í íslensku enda sagn­orð í ger­mynd í öllum háttum og tíðum í 1. per­sónu fleir­tölu á -um: við förum, við fórum, þóvið­færum o.s.frv. Í nútíma­máli á þetta ekki við um mið­mynd sagn­orða sbr. við förumst, við fórumst, þó við færumst. Hins vegar var sú mál­breyt­ing gengin í garð, að -um end­ingin hafði færst aftan við mið­mynd­ar­end­ing­una og í íslensku eru enn merki um þetta, t.d. í kveðj­unum sjáustum og heyrustum, sem heyr­ist aðal­lega hjá eldra fólki.

Það var tekin með­vituð, póli­tísk ákvörðun um að vinda ofan af þessu til þess að færa íslensk­una nær íslensk­unni sem var töluð um land­nám. Tungumál þró­ast nefni­lega, en þau þró­ast ekki bara „nátt­úru­lega“.

Í þessu sam­hengi langar mig að tala um fær­eysku. Færeyska er það tungu­mál sem er lík­ast íslensku nútíma­máli og Íslend­ingar eiga í litlum vand­ræðum með að lesa fær­eysku, þó svo að tal­málið hafi breyst tölu­vert mikið. Það að Íslend­ingar eigi auð­velt með að lesa fær­eysku skýrist að miklu leyti af því að fær­eyskt rit­mál er byggt á til­lögum Jóns Sig­urðs­sonar for­seta (já, þeim eina sanna) og séra Hammers­haimb um það hvernig ætti að rita fær­eysku. Fær­ey­ingar skrifa t.a.m. ð en bera það ekki fram, voru það póli­tísk skemmd­ar­verk? Fær­ey­ingar eru a.m.k. ekki á eitt sáttir um ð-ið.

Í fær­eysku er óákveðna hvor­ug­kyns­for­nafnið øll notað yfir bland­aðan hóp fólks af öllum kynjum. Það er langt síðan þessi breyt­ing gekk í garð og ég spyr því, voru 17. aldar Fær­ey­ingar „woke“?

Það er mik­il­vægt að tala um stað­reyndir og stað­reynd­irnar eru þessar:

a) Það tungu­mál sem er næst íslensk­unni notar hvor­ug­kyns­fornöfn um bland­aðan hóp fólks, øll. Þetta er breyt­ing frá forn­máli.

b) Í íslensku hefur mál­fræði verið breytt vís­vit­andi og í póli­tískum til­gangi. Auðvitað er kyn­hlut­laust mál póli­tísk deilu­efni, en ekki hvað?

Í dag eru því miður til íslenskir stjórn­mála­menn sem sjá svart þegar rétt­indi kvenna og hinsegin fólks eru rædd og tala með þeim hætti, að þeim finn­ist það hálf kjána­legt að þessir hópar séu að „ybba gogg“ (sbr. nýyrði Sig­mundar Davíðs ybbar).

Hvort sem Sigmundi Davíð líkar það betur eða verr tengjum við oft mál­fræði­legt karl­kyn við karla, með­vitað eða ómeð­vitað. Það er þess vegna sem mörgum konum og kvárum finnst að þau séu skilin út undan þegar fólk talar um „alla“ og „menn“. Ég bendi á að Eiríkur Rögn­valds­son hefur skrifað margar góðar greinar um akkúrat þetta, en ég vil halda mig við efni þess­arar greinar, sem er póli­tíkin í tungu­mál­inu.

Til­gangur kyn­hlut­lauss máls er að sýna það með orðum, að maður stendur með jafn­rétt­is­bar­áttu kvenna og hinsegin fólks, það er ekki mikið flókn­ara en það. Fólk getur svo deilt um það hvort það sé raun­veru­legur árangur fólgin í því. En það hvort fólk til­einkar sér kyn­hlut­laust mál eða ekki hefur mér að vit­andi ekki gert það að verkum, að fólk gagn­rýni þau sem hafa ekki til­einkað sér það.

Það er ekk­ert laun­ung­ar­mál að það er rík hefð í íslensku fyrir því að nota karl­kynið yfir bland­aðan hóp fólks og ég hef ekki enn þá séð það gagn­rýnt, kjósi fólk að halda því áfram. Það eru, enn sem komið er, bara tveir stjórn­mála­menn sem hafa nefnt kyn­hlut­laust mál í sinni kosn­inga­bar­áttu, Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son og Bjarni Bene­dikts­son.

Ætli til­gang­inum með kyn­hlut­lausu máli sé þá ekki að hluta til náð, að stuða kalla­kalla í stjórn­málum?

En hvað sem fólki finnst um það, þá er það ofurein­földun að tala um póli­tísk skemmd­ar­verk eða afbökun, þegar tungu­málið þró­ast í takt við sam­fé­lagið.

Hvort sem Sigmundi Davíð líkar það betur eða verr eru til karlar og kvár með leg á Íslandi.

Á Íslandi eru lög um kyn­rænt sjálf­ræði sem tryggir trans fólki þann rétt, að ráða yfir eigin kyn­skrán­ingu. Orðið leg­hafi er íðorð, notað í laga­textum og í lækn­is­fræði­legum til­gangi t.d. til að tryggja það, að karlar og kvár með leg njóti þeirra rétt­inda sem laga­bálk­ur­inn segir til um til jafns við konur. Það er ekki nokkur mann­eskja sem heldur því fram, að orðið leg­hafi eigi að koma í stað orðs­ins kona, það er bull. Sig­mundur Davíð veit þetta alveg.

Það er þess vegna ótrú­legt að horfa upp á það, að hann skuli nota við­kvæma stöðu trans fólks til að skora póli­tísk stig hjá þeim allra for­dóma­fyllstu.

Tungu­málið er mik­il­vægt tól, sér­stak­lega í opin­berri umræðu á sviði stjórn­mál­anna og það hvernig við beitum því mun alltaf lit­ast af því hvaða skoð­anir við höfum.

Tungu­málið er nefni­lega besta vopnið sem við eigum og það er ekki aðför gegn tungu­mál­inu að sníða það að póli­tískum hugð­ar­efnum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ