Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Hjónaband Bjarna

Hjónaband Bjarna
Bjarni Bene­dikts­son

Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, var í mis­miklu stuði þegar blað­skellandi Sindri Sindra­son, sjón­varps­maður á stöð 2, heim­sótti hann í morg­unsárið í lið­inni viku. Bjarni á það til að kjökra undan einu og öðru þegar hann er með storm­inn í fangið eins og nú ger­ist. Eftir að hafa gant­ast við Sindra um eggja­skort og hlut­verk sitt á heim­il­inu færð­ist alvöru­svipur yfir and­lit Bjarna og hann ræddi um aðför að sér og að það hafi verið „gengið nærri hjóna­bandi sínu“.

„Það hefur ýmis­legt verið grafið upp með stolnum gögnum og þetta allt saman túlkað á versta veg en ég hef kom­ist í gengum það allt saman,“ segir Bjarni.

Sindri gekk ekki eftir svörum um það hvað Bjarni væri að fara með orðum sínum en for­mað­ur­inn komst á sínum tíma í fréttir þegar upp­lýst var um við­komu hans á fram­hjá­halds­síð­unni Ashley Madisson þar sem hann kall­aði sig  Icehot1. Hakkarar brut­ust inn á síð­una og birtu nöfn þeirra sem stóðu í brasi þar. Eftir að málið hafði mallað um hríð í fjöl­miðlum steig kona hans, Þóra Bald­vins­dóttir, fram og sagði þau hjónin hafa, fyrir for­vitni sakir, verið saman á síð­unni án þess þó að vera virk.

Bjarni virt­ist afskap­lega ein­lægur þegar hann nefndi rang­túlk­anir og stolin gögn í sam­hengi við hjóna­band sitt. Hann hefur áður komið fram í sjón­varpi og spilað á strengi sam­úðar þjóð­ar­innar. Þá sætti hann aðför Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur sem daðr­aði við þá hug­mynd að verða for­maður flokks­ins. Bjarni beygði af í sjón­varps­við­tali og stóðst áhlaupið en Hanna Birna hrökkl­að­ist út úr póli­tík. Óljóst er hvort Bjarni nái að húkka atkvæði út á þetta útspil sitt …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Slúður