Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fjórar íslenskar konur sviknar af frystihúsi í Noregi: „Það er ekki einu sinni rúm til staðar“

Fjórar íslenskar konur sviknar af frystihúsi í Noregi: „Það er ekki einu sinni rúm til staðar“
Kiberg – Mynd: magnethy

Fjórar íslenskar töldu sig illa sviknar af norsku fyr­ir­tæki árið 1995.

Forsaga máls­ins er sú að frysti­húsið Mathisen fiskeindustri aug­lýsti eftir starfs­fólki til að starfa við fisk­vinnslu í Kilberg í Norður-Noregi, stutt frá landa­mærum Rúss­lands, og var það gert í gegnum íslenska fyr­ir­tækið Ingvarco.

„Þeir sögðu okkur öllum það sama: Að við fengjum greitt farið út og frítt hús­næði. Nú er komið í ljós að þetta eru hrein og klár svik og fyr­ir­tækið neitar að borga fyrir okkur farið hingað og ég þarf að greiða sem nemur 20 þús­undum íslenskra króna í leigu á mán­uði,“ sagði Rósa Svav­ars­dóttir við DV um málið en hún seldi íbúð sína og búslóð á Íslandi áður en hún flutti til Noregs. Rósa sagði að launin sem hafi verið greidd hafi verið langt undir því sem lofað var.

Ískaldar að bíða við síma

„Við erum búnar að berj­ast í því að fá þetta lag­fært en ekk­ert gengur. Við höfum ítrekað haft sam­band við fyr­ir­tækið í Reykja­vík og þeir lofa alltaf að bjarga mál­unum en ekk­ert ger­ist,“ sagði Rósa. „Nú síð­ast lof­uðu þeir að hafa sam­band við okkur í almenn­ings­síma á til­settum tíma. Við biðum eftir sím­tal­inu, ískaldar, við sím­klef­ann en þeir hringdu ekki. Loksins gáf­umst við upp að bíða og ég hringdi í þá. Sá sem varð fyrir svörum þótt­ist þá ekk­ert vita hvað tím­anum liði og spurði hvort við gætum verið við síma­klef­ann eftir klukku­tíma og þá átti allt að vera komið á hreint. Ég sam­þykkti það en það var sama sagan og þeir hringdu ekki. Þegar ég hringdi aftur þá kom bara sím­svari. Þeir eru greini­lega hættir að vilja tala við okkur.“

Þá hafi þá hafi ástandið íbúð­inni sem Rósa fékk verið mjög slæmt og ekk­ert verið hægt að hvíl­ast.

„Það er ekki einu sinni rúm til staðar þarna. Við höfum ein­hvern bedda sem klambrað hefur verið saman á staðnum og er með 5 sentí­metra þykka dýnu. Maður er alltaf að vakna upp á nótt­unni þegar maður þarf að snúa sér við af kvölum. Við vinnum 11 tíma á sól­ar­hring og auð­vitað vantar mikið upp á að það sé ein­hver hvíld í þessu. Mér sýn­ist sökin öll liggja hjá fyr­ir­tæk­inu á Íslandi og fram­kvæmda­stjór­inn hérna segir okkur að hún hafi aldrei lofað að greiða far­gjaldið eða útvega frítt hús­næði. Mér skilst að þeir hafi fengið greiddar 50 þús­und krónur fyrir hvern starfs­mann sem þeir útveg­uðu.“

Benda á hvort annað

Þor­leifur Ólafsson hjá Ingvarco sagði í sam­tali við DV að fyr­ir­tækið væri að vinna að því að koma öllu í lag. „Því var lofað af fyr­ir­tæk­inu úti að farið yrði greitt en þetta er allt að sjatl­ast núna. Við erum nýbúnir að tala við fram­kvæmda­stjór­ann og hún ætlar að bæta úr því hvað varðar hús­næðið og far­gjaldið. Ég bíð nú eftir að fá fax að utan með stað­fest­ingu þess að þetta verði lagað,“ sagði Þor­leifur „Það voru 180 umsækj­endur og það er frá­leitt að ætla að við höfum þurft að lofa ein­hverju til að trekkja að. Fyr­ir­tækið hafði sam­band við okkur og bað okkur að ráða fólk þarna út. Við áttum að fá greitt fyrir það en höfum enn ekki fengið þá pen­inga. Hún hefur ekki staðið við sitt og við erum að gera okkar besta til að leysa þetta.“

Gerd Solveig Mathisen, fram­kvæmda­stjóri frysti­húss­ins Mathisen fiskeindustri, hafn­aði öllum ásök­unum kvenn­anna. „Ég get ekki borið ábyrgð á því sem umboðs­að­il­inn kann að hafa mis­skilið í mínum skila­boðum. Ég veit sjálf hvað ég hef skrifað og ég hef staðið við það allt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni