Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Stuðmenn héldu stofutónleika fyrir hópi kvenna – Nær máttlausar af hrifningu

Stuðmenn héldu stofutónleika fyrir hópi kvenna – Nær máttlausar af hrifningu

Hópur hepp­ina vin­kvenna datt í lukku­pott­inn árið 1975 er þau unnu einkatón­leika Stuð­manna, heima í stofu.

Árið 1975 kom út fyrsta hljóm­plata Stuð­manna en bar hún nafnið Sumar á Sýrlandi. Í eitt plötu­umslagið hafði hljóm­sveitin sett verð­launa­miða en átti sá er fékk mið­ann að fá Stuðmenn inn á stofu hjá sér þar sem þeir myndu spila lög af plöt­unni.

Nú-tím­inn, partur af blað­inu Tíminn, skrif­aði væg­ast sagt skemmti­lega grein um þennan und­an­fara Hafn­firsku tón­leika­há­tíð­ar­innar Heima. Ljós­mynd­irnar sem fylgdu grein­inni eru ómet­an­legar.

„Það var stór hópur kvenna sem var stál­hepp­inn um dag­inn, er Stuðmenn léku í stof­unni heima hjá þeim,“ segir í byrjun grein­ar­innar. Haft var eftir einum Stuð­mann­anna að kon­urnar hefðu hringt í þá og til­kynnt um vinn­ing­inn. „Já, það var þannig, að kon­urnar hringdu í við­tals­tíma Stuð­manna (milli 5-7 á föstu­dögum) og sögðu að þær hefðu þennan miða undir höndum, en síma­númer okkar var ritað á mið­ann með Stuð­manna­stöfum.“

Það var svo á þriðju­dags­morgni að Stuðmenn komu heim til kvenn­anna, án þess að gera boð á undan sér. „Okkur þykir það gott, að miða­hafar skuli vera stór hópur kvenna, því okkur verður vel til kvenna,“ sagði einn Stuð­mann­anna er þeir mættu á svæðið.

Samkvæmt grein Nú-tím­ans voru kon­urnar mjög hrifnar af „fág­aðri fram­komu“ Stuð­manna en þeir dvöldu í stofu þeirra í þrjá klukku­tíma og spil­uðu léku öll lög plötu sinnar tvisvar sinnum og b-hlið næstu plötu einu sinni. Þá segir einnig að kon­urnar hafi verið mjög ánægðar með heim­sók­ina. „Urðu kon­urnar nær mátt­lausar af hrifn­ingu enda stigu Stuðmenn dans við þær. Og höfðu kon­urnar á orði, að jafn fölskvalausu lát­bragði hefðu þær aldrei kynnzt.“

Stuðmenn sögð­ust hafa verið stress­aðir að spila í fyrsta skipti heima í stofu hjá ein­hverjum. „En ósvikin hrifn­ing kvenn­anna svo og svo þessi útlenzki hljóm­burður hérna, gerði það að verkum að tauga­ó­styrk­ur­inn hvarf eins og Stuð­manna­plata úr hljómplötuverzlunum!“

Eftir tón­leik­ana kíktu Stuðmenn út á götu hvar voru fyrir nokkur börn. En þegar íbúar hverf­is­ins birt­ust fylktu liði í skrúð­göngu, með lár­við­ar­sveig, létu Stuðmenn sig hverfa. Samkvæmt Nú-tíma­grein­inni.

Á þessum tíma komu Stuðmenn aldrei fram nema með furðu­legar og allt að því óhugn­an­legar grímur. Mynd­irnar sem fylgja frétt­inni og teknar af Gunna ljós, eru stór­kost­legar og eins og segir í upp­runa­legu grein­inni, mynd­irnar skýra sig eflaust sjálfar.


Bak­sýn­is­speg­ill þessi birt­ist upp­haf­lega 1. októ­ber 2021.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni