Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Anna um leikinn gegn Grænhöfðaeyjum: „Ég er enn í vafa með hverjum ég mun halda“

Anna um leikinn gegn Grænhöfðaeyjum: „Ég er enn í vafa með hverjum ég mun halda“
Alls ekk­ert slor! Mynd: Trausti Hafsteinsson

Strák­arnir okkar í íslenska hand­boltalands­lið­inu mæta Græn­höfða­eyjum á HM í hand­bolta á morgun. Íslend­ingar verða eflaust flestir límdir fastir við skjá­inn og hvetja sína menn áfram. Anna Krist­jáns­dóttir er þó ekki enn búin að ákveða með hvoru lið­inu hún mun halda.

Í nýj­ustu dag­bók­ar­færslu sinni skrifar vél­stjór­inn og húmorist­inn Anna Krist­jáns­dóttir um Græn­höfða­eyjar. Segir hún að það hljóti að vera gott að vera, þar sem með­al­hit­inn sé fjórum gráðum meiri þar en á Tenerife, þar sem Anna hefur búið síð­ustu árin.

„Dagur 1982 – Græn­höfða­eyjar.

Ég skil ekki af hverju Íslend­ingar eru að tala niður til íbúa Græn­höfða­eyja vegna getu þeirra í íþróttum. Ég hefi vissu­lega aldrei komið þangað, en ég get ekki ímyndað mér annað en að þar sé gott að vera.Bara svo því sé haldið til haga, þá eru þær á ca14°N eða nokkurn veg­inn mitt á milli Kanarí­eyja og mið­baugs. Fyrir bragðið er ekki eins kalt þar og á Kanarí­eyjum, ein­hver nefndi að þar væri með­al­hit­inn um fjórum gráðum hærri en á Tenerife sem hlýtur að telj­ast hreinn lúxus fyrir okkur kulda­skræf­urnar sem þolum ekki kulda sem er neðan við 23°C.“

Anna segir einnig að í raun verði átta Íslend­ingar á vell­inum á móti sex.

„Svo eru íbú­arnir alveg ynd­is­legir að sögn og sagt að þeir séu hreint afbragð heim að sækja.

Á morgun ætla Íslend­ingar að vinna þá í hand­bolta­keppni. Það verður auð­veldur sigur. Þar ber að nefna að einn Íslend­ingur er í liði Græn­höfð­ingja svo það verða eig­in­lega átta Íslend­ingar á móti sex Græn­höfð­ingjum á vell­inum í einu, en á móti kemur að Græn­höfð­ingjar eru van­ari hlýjum leikja­höllum en Íslend­ingar sem búa rétt undir frost­marki stóran hluta árs­ins.“

Þá kemur Anna með yfir­lýs­ingu sem sjálf­sagt mun reita ein­hverja þjóð­ern­is­sinna til reiði.

„Ég er enn í vafa með hverjum ég mun halda í leiknum. Þegar haft er í huga að ég held með hetj­unum okkar í Fót­bolta­sam­vinnu­fé­lagi Hali­fax­hrepps í fót­bolta, en þær spila í fimmtu deild í enska bolt­anum, er óþarfi að búast við miklum árangri í hand­bolta­mótum og eru sumir Íslend­ingar enn í fýlu út í mig síðan ég veif­aði sænska vega­bréf­inu og sagði, „strák­arnir okkar unnu“ þegar Svíar unnu Íslend­inga í hand­boltalands­leikjum í lok síð­ustu aldar. En þetta var einn af kostum þess að vera með tvö­falt rík­is­fang auk þess að vera með í Evr­ópu­sam­band­inu.“

Að lokum segir hún frá því hvað komi í veg fyrir að hún flytji til Græn­höfða­eyja.

„Það er bara einn galli við Græn­höfða­eyjar sem koma í veg fyrir flutn­ing minn þangað. Græn­höfða­eyjar eru ekki í Evr­ópu­sam­band­inu frekar en Ísland og því langar mig ekk­ert að flytja þangað þótt þar sé ekki eins nístandi kalt og var á Tenerife í nótt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Menning

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar