Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Friðrik segir söguna vera að endurtaka sig: „Ekki segja mér að hafa ekki áhyggjur“

Friðrik segir söguna vera að endurtaka sig: „Ekki segja mér að hafa ekki áhyggjur“
Friðrik Agni Árnason. Mynd: Aðsend.

Friðrik Agni Árnason seg­ist vera sorg­mæddur yfir þró­un­inni í heim­inum hvað varðar kyn­þátta­hatur en hann á móður sem er ind­versk.

„Ég veit ekki af hverju, en ég er bara svoldið sorg­mæddur. Um jólin og nú í byrjun árs hef ég verið að lesa mikið í mann­kyns­sögu,“ skrifar Friðrik Agni Árnason, dans­þjálf­ari, skáld og tauga­túlk­un­ar­þjálf­ari í færslu sem hann birti á Facebook í gær. Og hann heldur áfram:

„Það kannski segir allt sem segja þarf. Við búum ekki í þeim heimi í dag þar sem að vera brúnn á hör­und er æski­legt. (höfum svo sem ekki gert það lengi í sögu­legu sam­hengi) Semsagt ekki æski­legt til þess að lifa áhyggju­lausu lífi. Áhyggjur af því að vera tal­inn öðru­vísi, hættu­legur eða ógn gagn­vart öðru fólki. Nú um helg­ina er ég að fara ferð­ast einn. Og ég get ekki hætt að hugsa um augna­blikið þegar ég lendi í Ung­verja­landi og geng í gegnum toll­inn og verð stöðv­aður af toll­vörð­unum. Nið­ur­læg­ingin, þreytan, upp­gjöfin gagn­vart því að sífellt vera tal­inn vera eitt­hvað sem ég er ekki (grun­sam­legur/hættu­legur/með illt í hyggju) bara út af ein­hverju sem ég get með engu móti breytt. Húð­litnum mínum.“

Segist Friðrik vilja geta búið í heimi þar sem hann getur til að mynda ferð­ast án þess að kvíða fyrir því vegna húð­litar síns en hann spáir því að næstu fjögur ár verði erf­ið­ari:

„Ég væri svo til að geta búið í heimi þar sem ég get t.d. ferð­ast án kvíða yfir ein­hverju svona. En nei, við búum ekki í þannig heimi. Og eitt­hvað segir mér að á næstu fjórum árum munum við sjá enn skýr­ari afstöðu, ákvarð­anir og afleið­ingar ákvarð­anna nokk­urra ríkra, gam­alla, mis vitra, hvítra karla – sem gull­tryggja enn­frekar að við sem brún erum munum eiga erfitt með að lifa og ferð­ast áhyggju­laus.“

Í næstu orðum segir Friðrik að þetta sé veru­leik hans og ann­arra „sem erum svona“.

„Ekki segja mér að hafa ekki áhyggjur.

Þetta er veru­leiki minn og okkar. Okkar sem erum svona.
Og veru­leik­inn sem blasir nú við okkur er sá að maður sem hefur ein mest mót­andi áhrif á heims­sam­fé­lagið nærir þessa trú og hugsun um; við og þið, við og hin, betri og verri, æðri og óðæðri.“

Friðrik Agni segir enn­fremur að þessi þróun sé ekki ný af nál­inni:

„Þetta er ekk­ert nýtt í sög­unni okkar. Upp­lýs­inga­flæði og mennt­un­ar­stig okkar breytir því ekki að við búum í kap­ít­al­ísku hag­kerfi þar sem pen­ingum fylgja tæki­færi, vald og áhrif. En fjár­hagur fólks hefur því miður ekk­ert að gera með vits­muni þess, hvað þá sið­ferði og sam­kennd.“

Segir Friðrik einnig að þegnar í lýð­ræð­is­ríkjum beri ábyrgð á að verja hags­muni okkar allra:

„En út frá þessu ræðst það hvernig sam­fé­lagið okkar mót­ast að miklu leyti.
Við berum ábyrgð sem þegnar í lýð­ræð­is­ríki. Ábyrgð á að standa vörð um hags­muni okkar allra sem búum saman og þurfum að vera vak­andi fyrir því hvernig ytra heims­sam­fé­lagið hefur áhrif á okkar hugs­anir, hegðun og þ.a.l. menn­ingu okkar.“

Að lokum segir Friðrik Agni að fólk verði nú að spyrna við þessar þróun og spyrja sig í hvernig sam­fé­lagi það vilji búa í.

„Þetta er nú þegar að ger­ast. Við getum ekki farið til baka. En við þurfum að spyrna við, spyrja okkur stöðugt í gegnum allar kosn­ingar, laga­setn­ingum og ákvarð­ana­tökum: Í hvernig sam­fé­lagi viljum við búa í? Í sam­fé­lagi þar sem öllum líður vel og eru öruggir (getur verið mark­mið) eða í sam­fé­lagi þar sem bara MÉR og þeir sem eru EINS OG ég líður vel og öruggum?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ