Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Ár liðið frá hrottafengnu morði Ísraelshers á hinni fimm ára Hind Rajab: „Gerðu það, náðu í mig“

Í gær var akkurat ár frá því að ísra­elskir her­menn drápu hina fimm ára gömlu Hind Rajab, þar sem hún leit­aði skjóls innan um myrta ætt­ingja sínum í bif­reið frænda síns. Margir hafa minnst hennar á sam­fé­lags­miðl­unum af til­efn­inu.

„Ég er svo hrædd, gerðu það komdu. Gerðu það, hringdu í ein­hvern til að koma og sækja mig.“

Í gær var ár liðið frá því að beiðni hinnar fimm ára gömlu Hind Rajab um hjálp nokkrum klukku­stundum áður en hún var myrt af ísra­elska hernum sjokker­aði heim­inn.

Sjá einnig: Lík Hindar litlu fundið í bif­reið frænda hennar: „Komdu og sæktu mig“

Palest­ínska barnið var að flýja árás Ísraela á Tel al-Hawa, suður af Gaza-borg, ásamt fjöl­skyldu sinni þegar bif­reið þeirra varð fyrir skotárás ísra­el­skra her­manna sem komu á vett­vang í skrið­dreka.

Þann 10. febr­úar 2024 fannst Hind Rajab látin eftir að hún hafði verið föst í bif­reið í tæpar tvær vikur með lát­inni fjöl­skyldu sinni á meðan hún var umkringd ísra­elskum her­sveitum sem skutu í átt hennar.

Tveir sjúkra­flutn­inga­menn frá Palest­ínska Rauða hálf­mán­anum (PRCS), Yousef Zeino og Ahmed al-Madhoun, sem voru að lokum sendir til að bjarga Rajab eftir að hún hringdi og bað um hjálp innan úr bílnum, fund­ust einnig myrtir.

Síðar gaf PRCS út hljóð­upp­töku af síð­asta sím­tal­inu við Hind þann 29. jan­úar, þar sem síð­asta hróp hennar um hjálp heyr­ist innan um skot­hríð.

„Gerðu það, náðu í mig,“ má heyra Rajab segja margoft.

Ári eftir morðið á henni birtu not­endur sam­fé­lags­miðla um allan heim myndir af Hind til að heiðra minn­ingu hennar og krefj­ast rétt­lætis og ábyrgðar á dauða hennar og ann­arra Palest­ínu­manna.

„Hind Rajab. Eitt ár síðan hún og fjöl­skylda hennar voru myrt á hörmu­legan hátt af her sem kallar sig þann sið­ferði­leg­asta,“ skrif­aði einn not­andi á X, áður Twitter.

„Minning Hind Rajab mun lifa að eilífu – rétt eins og andi Palest­ínu mun aldrei slökkna,“ birti Jewish Voice for Peace, banda­rísk sam­tök gegn Zíonisma ásamt ljós­mynd af Hind með text­anum: „Arfleifð Hinds mun lifa að eilífu.“

„Hind, og öll börn á hennar aldri, ættu að geta eytt tíma sínum í að hlæja og leika með vinum, umkringd ást – ekki verða vitni að ólýs­an­legum harm­leik, aðeins til að verða fórn­ar­lömb þess.“

Nokkrar færslur hvöttu les­endur til að „gleyma aldrei“ Hind og „segja sögu hennar“. Þá minnt­ust þó nokkrir not­endur einnig á umfjöllun vest­rænna fjöl­miðla um morðið á Rajab og lögðu áherslu á það sem þeir sögðu vera hlut­drægt orða­lag sem notað var til að hylja aðstæð­urnar í kringum dauða hennar.

„BBC nennti ekki einu sinni að upp­færa þessa skammar­legu fyr­ir­sögn,“ skrif­aði rit­höf­und­ur­inn og sér­fræð­ing­ur­inn í sögu Mið­aust­ur­landa, Assal Rad á X-inu og vís­aði í frétta­fyr­ir­sögn BBC sem sagði að Hind hafi „fund­ist látin á Gaza“.

Enn Aðrir not­endur lögðu áherslu á fjöl­miðla­fréttir á sínum tíma sem „full­orðn­uðu“ Rajab, vís­uðu til barns­ins sem „konu“ og „ungrar dömu“, tungu­mál sem þeir sögðu vera notað „til að vernda ímynd Ísraels“.

Vaka í minn­ingu hennar fór svo fram í New York-borg í gær­kvöldi.

Tákn fyrir andspyrnu Palestínumanna

Rannsókn á vegum Forensic Architecture, Al Jazeera’s Fault Lines og félaga­sam­tök­unum Earshot leiddi síðar í ljós að bíll­inn sem Rajab lést í hafði orðið fyrir 335 byssu­kúlum, þar sem flestar þeirra lentu á hægri hlið öku­tæk­is­ins.

Rann­sóknin leiddi einnig í ljós að ísra­elski skrið­drek­ann sem skaut á far­ar­tækið sem Rajab var föst inni í hlýtur að hafa verið stað­settur í innan við 13 til 23 metra fjar­lægð þegar hann drap Layan, 15 ára frænku Rajab.

„Það er ekki trú­legt að skot­mað­ur­inn hafi ekki séð að bíll­inn var fullur af almennum borg­urum, þar á meðal börnum,“ sagði í rann­sókn­inni að lokum.

Dauði hennar varð tákn­mynd fyrir mót­mæl­endur sem styðja Palest­ínu um allan heim.

Við Columbia háskól­ann í New York-borg tóku mót­mæl­endur úr röðum nem­enda sig til og hertóku bygg­ingu á háskóla­svæð­inu og nefndu hana „Hind’s Hall“ til heið­urs Rajab.

Lagið Hind’s Hall eftir banda­ríska rapp­ar­ann ​​Macklemore, sem síðan hefur orðið bar­áttu­lagi fyrir Palest­ínu, er til­vísun í bygg­ing­una. Síðar kom einnig út lagið Hind´s Hall 2 með sama rapp­ara.

Veggmynd í Dublin, höf­uð­borg Írlands, var máluð til minn­ingar um and­lát hennar.

Líbanski stjórn­mála­aktí­vist­inn og rit­höf­und­ur­inn Dyab Abou Jahjah stofn­aði Hind Rajab Foundation, hags­muna- og ábyrgð­ar­sam­tök „til að heiðra minn­ingu hennar með því að berj­ast fyrir rétt­læti og ábyrgð fórn­ar­lamba eins og hana“.

„Þegar Hind Rajab var myrt fyrir nákvæm­lega ári síðan í dag, olli það mér djúpum harmi. Sem faðir stúlku á hennar aldri gat ég varla þolað hryll­ing­inn sem hún mátti þola, eða ólýs­an­lega sárs­auka sem for­eldrar hennar hljóta að hafa fundið fyrir,“ sagði Jahjah.

„Í dag berg­málar nafn hennar um allan heim, nær­vera sem ásækir morð­inga hennar. Hind litla er öfl­ugri en þeir höfðu nokkurn tíma ímyndað sér. Hvíl í friði, litli eng­ill, þú munt aldrei gleym­ast.“

Fréttin er unnin upp úr frétt middleeasteye.net.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco