Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Íslendingur særðist alvarlega í banvænni skotárás í Osló – Var staddur í íbúðinni fyrir tilviljun

Íslendingur særðist alvarlega í banvænni skotárás í Osló – Var staddur í íbúðinni fyrir tilviljun
Höf­uð­borg Noregs, Osló. Myndin teng­ist Bak­sýn­is­spegl­inum óbeint.

Íslenskur nemi særð­ist alvar­lega í ágúst 1978 þegar sturl­aður maður réð­ist inn í íbúð og skaut fyrr­ver­andi eig­in­konu sína til bana og særði Íslend­ing­inn og tvö börn hennar alvar­lega áður en hann gerði til­raun til að fremja sjálfs­víg.

Í fyrstu fréttum af skotárásinni segir að 31 árs gam­all Íslend­ingur hafi særst alvar­lega þegar maður réð­ist inn í íbúð vopn­aður byssu og skaut fyrrum eig­in­konu sína til bana en þar var hún ásamt Íslend­ingnum og tveimur börnum hennar. Skaut mað­ur­inn þau öll áður en hann beindi byss­unni að sjálfum sér. Hann lifði hins vegar sjálfs­vígstil­raun­ina.

Hér má lesa fyrstu frétt Vísis um málið en neðar má lesa fleiri fréttir:

Skotárás í fjöl­býl­is­húsi í Osló:

Íslend­ingur alvar­lega særður

Kona myrt og tvö börn hennar sœrð skotsárum

Þrjátíu og eins árs gam­all Íslend­ingur særð­ist alvar­lega í skotárás í fjöl­býl­is­húsi í Osló á laug­ar­dag­inn. Hann liggur nú á sjúkra­húsi og hefur lög­reglan ekki fengið leyfi lækna til að yfir­heyra hann vegna þess hversu alvar­lega hann er særður. Í skotárásinni var ung norsk kona myrt og tvö börn hennar særð en árás­armað­ur­inn reyndi síðan að fremja sjálfs­morð, sem mistókst. Hann liggur einnig mikið særður á sjúkra­húsi. Visir fékk það stað­fest hjá lög­regl­unni i Osló í morgun, að ungi mað­ur­inn sem særð­ist alvar­lega i skotárásinni, væri Íslend­ingur, sem dvalið hefur í Noregi um hrið. Það var um hádeg­is­bilið á laug­ar­dag­inn sem árásin var gerð. Íslend­ing­ur­inn var þá í heim­sókn hjá frá­skil­inni norskri konu og tveimur börnum hennar í íbúð kon­unnar í fjöl­býl­is­húsi í borg­inni. Þá réð­ist fyrr­ver­andi eig­in­maður hennar, sem er 40 ára gam­all Norð­maður, inn í íbúð­ina vopn­aður byssu og hóf skotárás á þau fjögur, sem í íbúð­inni voru. Fyrr­ver­andi eig­in­konu sina skaut hann til bana, en særði Íslend­ing­inn alvar­lega og eins börnin tvö. Eftir það reyndi árás­armað­ur­inn síðan að fremja sjálfs­morð, en tókst ekki, en særði hins vegar sjálfan sig alvar­lega. Íslend­ingnum tókst að kom­ast út úr íbúð­inni og niður á götu. Þaðan komst hann inn í annað fjöl­býl­is­hús og lét kalla til lög­reglu. Íslend­ing­ur­inn, börnin tvö og árás­armað­ur­inn liggja öll á sjúkra­húsi í Osló. Íslend­ing­ur­inn er það alvar­lega særður, að læknar hafa meinað lög­regl­unni að yfir­heyra hann.

Í næstu frétt Vísis sem birt­ist dag­inn eftir, kom fram nafn Íslend­ings­ins en það var Eggert Lárusson en þá var hann úr lífs­hættu en þó var ekki enn hægt að yfir­heyra hann. Börn kon­unnar sem lést í árásinni, 18 og 10 ára voru einnig úr lífs­hættu. Var talið að árás­armað­ur­inn, sem stórslas­að­ist er hann skaut sjálfan sig í haus­inn, myndi missa sjón á báðum augum.

Eggert ur lífs­hœttu

en hefur ekki enn verið yfir­heyrður

Frá Jóni Einari Guð­jóns­syni, frétta­rit­ara Vísis í Osló. Læknar á Ulleval sjúkra­hús­inu í Osló hafa enn ekki gefið norsku lög­regl­unni leyfi til að yfir­heyra þá aðila, sem særð­ust í skotárásinni i Kongscentralen i Osló. Því er ástæðan fyrir árásinni enn ekki vituð eða hvers vegna Eggert Lárusson var staddur í íbúð­inni, þar sem árás­armað­ur­inn rudd­ist inn og skaut á fólkið með þeim afleið­ingum að hús­móð­irin lést. Börn hennar 18 ára og 10 ára og Íslend­ing­ur­inn Eggert Lárusson eru nú talin úr lífs­hættu. Árás­armað­ur­inn reyndi að stytta sér aldur eftir verkn­að­inn, en skot hans geig­aði og liggur hann því stórslas­aður á sjúkra­hús­inu. Talið er að hann missi jafn­vel sjón á báðum augum. Maður, sem staddur var í næstu íbúð, til­kynnti lög­regl­unni um skotárás­ina.

Í þriðju frétt Vísis kemur í ljós að Eggert væri kom­inn til með­vit­undar og hafi getað útskýrt af hverju hann hafi verið í íbúð­inni þegar hin ban­væna skotárás var gerð. Hann hafði verið við nám í hót­el­rekstri í Stavangri síð­ast­liðin tvö ár en hafi stefnt á fram­halds­nám í Lil­lehammer þá um haustið. Hann hafi búið heima hjá kunn­ingja sínum í Osló um sum­arið en sá kunn­ingi hafði leyft kon­unni sem lést í árásinni, að gista nótt­ina fyrir árás­ina þar sem hún ótt­að­ist fyrrum eig­in­mann sinn. Hún hafi síðan þurft að sækja nauð­synjar heim til sín og Íslend­ing­ur­inn boð­ist til að fara með henni þangað. Og því fór sem fór. Hér fyrir neðan má lesa frétt Vísis:

Íslend­ing­ur­inn kom­inn til með­vit­undar efftir skotárás­ina í Noregi

Var fyrir til­viljun staddur í íbúð­inni

Eig­in­kona Norð­manns­ins hafði leitað skjóls hjá kunn­ingjum sínum vegna ógn­ana manns­ins, en var að sækja muni sína í íbúð­ina, er árásin var gerð.

Frá Jóni Einari Guð­jóns­syni, frétta­rit­ara Visis í Osló í morgun: Eggert Lárusson, sem særð­ist í skotárásinni i Kongscentralen í Osló á dög­unum, er kom­inn til með­vit­undar, og eru hann og börn kon­unnar, sem lést, talin á bata­vegi. Norska lög­reglan hefur nú yfir­heyrt þau og fengið skýr­ingu á því, hvernig á því stóð, að Eggert var staddur í íbúð norsku kon­unnar, þegar fyrr­ver­andi eig­in­maður hennar rudd­ist inn og gerði skotárás­ina. Eggert hefur verið við nám í hót­el­rekstri í Stavangri und­an­farin tvö ár, og ætl­aði í haust til fram­halds­náms í Lil­lehammer. Í sumar hefur hann búið hjá kunn­ingjum sínum í Osló, Síð­ast­lið­inn föstu­dag kom þangað kona, sem var kunnug vinum Eggerts. Bað hún um að fá þar gist­ingu ásamt tveimur börnum sínum, vegna þess að fyrr­ver­andi eig­in­maður hennar hefði æ ofan í æ komið og ógnað henni á heim­ili hennar. Á laug­ar­dags­morg­un­inn vildi hún fara heim til að ná i ýmsa nauð­synja­muni. Eggert bauðst til að aka henni og börnum hennar til heim­il­is­ins til þess að ná í það, sem hún þurfti á að halda. Á meðan þau stöldr­uðu við í íbúð­inni réðst svo fyrr­ver­andi eig­in­maður kon­unnar vopn­aður inn í íbúð­ina, réð kon­unni bana og særði Eggert og börnin alvar­lega, eins og fram hefur komið i fréttum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni