Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Hjalti Úrsus segir sorgarsögu látins sonar síns: Árni Gils sat saklaus í varðhaldi í 277 daga

Hjalti Úrsus segir sorgarsögu látins sonar síns: Árni Gils sat saklaus í varðhaldi í 277 daga

Hjalti Úrsus talar við Hildi Maríu Sæv­ars­dóttur um mál sonar síns, Árna Gils Hjalta­sonar, sem sat sak­laus í fang­elsi á sínum tíma í 277 daga, en hann hafði verið dæmdur í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur til fjög­urra ára fang­els­is­vistar fyrir til­raun til mann­dráps árið 2017. Lands­réttur sýkn­aði svo Árni Gils í fyrra. Árni Gils lést dag­inn eftir að við­talið var tekið.

„Í byrjun var hann dæmdur fyrir morð­til­ræði og settur í ein­angrun á Litla-Hrauni. Hann var búinn að vera í neyslu og alls konar rugli, þannig að ég hugs­aði með mér að þarna væri kom­inn enda­punkt­ur­inn; nú gætum við kannski farið að byggja upp aftur,“ segir Hjalti Úrsus í við­tali við Hildi Maríu Sæv­ars­dóttur um son sinn, Árna Gils, sem var dæmdur til fjög­urra ára fang­els­is­vistar fyrir til­raun til mann­dráps árið 2017.

Það var ekk­ert blóð á vett­vangi og það var ekk­ert að mann­inum.

„Hann sagði mér strax í byrjun að hann hefði ekki komið með neinn hníf. Það var ekk­ert blóð á vett­vangi,“ segir Hjalti Úrsus og bætir við að sonur hans hefði sagt að hann hefði afvopnað mann sem réðst á hann, mann sem hann hafi ekk­ert vitað að hafi ætlað að hitta hann og hann hefði svo hent hnífnum í burtu. „Maðurinn stökk í burtu, hljóp í burtu, og tók hníf­inn með sér. Það var ekk­ert blóð á vett­vangi og það var ekk­ert að mann­inum. Og hann sagð­ist hafa verið edrú. Þeir sem eru búnir að vera í neyslu eru ekk­ert alltaf að segja satt,“ segir Hjalti Úrsus sem ákvað að skoða málið sjálfur.

Ansi ótrúverðugt

Árni hitti vin­konu sína og var þá maður með henni. Í frétt Vísis segir: „Árni var sak­felldur fyrir að hafa stungið annan mann með hnífi í höf­uðið í átökum á milli þeirra við Leifasjoppu í Breið­holti í mars 2017. Fékk mað­ur­inn gat í höf­uð­kúp­una. Árni hefur neitað sök í mál­inu frá upp­hafi og haldið því fram að hann hafi aðeins varist árás manns­ins sem hlaut stungusárið í höf­uðið. Til átak­anna kom þegar Árni kom að sjopp­unni til að skila þáver­andi vin­konu sinni bíl hennar og hundi sem hann var með. Maðurinn sem varð fyrir höf­uð­á­verk­anum hafði verið með kon­unni í sam­kvæmi í íbúð nærri sjopp­unni og fór með henni til móts við Árna.“ (https://www.visir.is/g/20191474817d) Frétta­blaðið er á meðal þeirra fjöl­miðla sem fjöll­uðu um málið og í frétt þar segir meðal ann­ars um atvikið: „Hún hafi lýst at­vikum þannig að brota­þoli hafi farið með henni út á bíla­planið þarna til að hitta Árna, því hún væri hrædd við hann þegar hann væri í svona annar­legu á­standi. Þegar þau hefðu komið til fund­ar­ins hafi Árni verið inni í bíl og þeir tveir eitt­hvað farið að ræða saman. Árni hefði svo skyndi­lega komið út úr bílnum, dregið fram hníf og stungið Aron í höf­uðið.“ (https://www.frettabladid.is/frettir/olikar-frasagnir-eg-thurfti-ad-verja-lif-mitt/) „Öll átökin voru sam­kvæmt vitn­inu far­þega megin við bíl­inn,“ segir Hjalti Úrsus. „Það var ekki einn blóð­dropi. Ekkert. Miðað við að hann kom á sjúkra­húsið og það flæddi niður auga­brýnnar. Blóð storknar á um 15 mín­útum og þá voru um 40 mín­útur síðan þetta gerð­ist. Engu að síður flæddi niður. Hann var svo vit­laus að taka sjálfur myndir af því. Ég fór að rann­saka þetta. Það var ekk­ert blóð. Það var rétt hjá honum. Maðurinn sagði fyrst þegar Árni var settur í varð­hald og ein­angrun, að Árni hefði komið með hníf og stungið hann. Síðan þegar hann kom síðar í Hér­aðs­dóm þá vissi hann að lög­reglan var búin að tala við öll vitnin sem sáu hann labba út með hníf­inn og þá breytt­ist sagan í það að hann hafi verið undir svo miklum áhrifum áfengis og eit­ur­lyfja að hann hefði gleymt því að hann tók með sér hníf­inn. Það er rétt. Líklega hefur hníf­ur­inn dottið í hend­urnar á Árna eða eitt­hvað.“ Og Árni var dæmdur.

Og hann féllst á það og sagði að þetta væri ansi ótrú­verð­ugt.

„Svo var hann búinn að vera þessa 277 daga í varð­haldi og þá kom líka annað upp. Ég tal­aði þá við Leif rann­sókn­ar­lög­reglu­mann og ég sagði: „Leifur, þú sérð hvað þetta er mikil vit­leysa: Hinn kom með hníf­inn og það er ekk­ert blóð“ og ég fór að segja honum hvað þetta væri arfa­vit­laust. Og hann féllst á það og sagði að þetta væri ansi ótrú­verð­ugt. Það eru hans eigin orð. En þá sagði hann að Árni hefði verið á kafi í eit­ur­lyfjum. Kókaíni. Ég sagði: ókei. Ég fór þá líka að rann­saka það eins og hitt allt,“ segir Hjalti Úrsus og bætir við að það hafi ekki verið neitt blóð­töku­vott­orð. Hann segir jafn­framt að eitt­hvað hafi vantað upp á að full­nægj­andi gögn fylgdu mál­inu. „Þau hafa lík­lega glat­ast eða týnst. Þannig að þeir týndu öllu.“

Passar ekkert saman

Hjalti Úrsus segir að tækni­deild lög­regl­unnar hafi aldrei farið á vett­vang glæps­ins eða meints glæps. „Hefðu þeir bara tekið þessa þrjá blóð­dropa og séð að þeir voru úr Árna sjálfum, þá hefði verið ólík­legt að hinn hefði orðið fyrir miklum skaða þarna. Hann er stór, hann er 2,05 metrar og senni­lega 190 kíló. Rosalega stór og sterkur.“ Þegar Oddgeir lög­maður [innsk. blm. Oddgeir Ein­ars­son var verj­andi Árna] sagði að það væru engar blóðprufur, þá sagði ákæru­valdið að það skipti ekki máli úr hverjum blóðið væri. Ég bara: ha? Skiptir ekki máli? Ákæru­valdið fór í allt of mik­inn ham ein­hvern veg­inn.“ Tækni­deildin var ekki kölluð til að sögn Hjalta Úrsus og engar ljós­myndir teknar af áverk­unum. „Það var ekk­ert blóð, ekk­ert DNA, það var ekk­ert vopn. Þeir náðu að fela það allt. Öll rann­sóknin var í því­líkum molum. Og svo líka spít­al­inn. Ég var að djöfl­ast í spít­al­anum og kona þar, sem sá um sam­skipti, sagði að í kjöl­far þessa máls myndu þau breyta starfs­reglum og ef um væri að ræða ofbeld­is­mál þá yrðu teknar myndir. En þarna voru ekki teknar myndir og þau segja að það verði að taka mynd af svona áverka með kvarða; þá hefðu þeir kannski séð að sárið var eftir skó­sóla eða ekki hníf. Áverkinn sem hann kom með á spít­al­ann var um fjög­urra sentí­metra breiður en dýptin á sár­inu var 0,8 milli­metrar, ef hann hefði stungið hann hefði dýptin verið um þrír milli­metrar. Eða fimm milli­metrar. Þetta er svo ein­falt; dýptin á sár­inu – þetta passar ekk­ert saman.

Við áfrýj­uðum til Hæsta­réttar og Hæsti­réttur sagði að í fyrsta lagi væri einn dóm­ari og að það þyrfti að hafa fjöl­skip­aðan dóm. Svo tóku þeir út smá­texta úr dómnum; þar stendur að ákærða hefði mátt vera ljóst með því að slást við brota­þola með svo hættu­legu vopni að þá gæti illa farið, hvort sem hann héldi sjálfur á hnífnum eða hann héldi um hníf brota­þola, sem var með hníf­inn, og þarna segir bara Hæsti­réttur að mað­ur­inn sé ekki að fara í fang­elsi ef þið vitið ekki einu sinni hvort það var hann sem hélt á hnífnum eða hinn. Svo segja þeir: Hver er staða brota­þola ann­ars vegar og ákærða hins vegar?

Og svo átti Árni að hafa stungið hann með vinstri. Bíddu; er Árni rétt­hentur eða örv­hentur?“

Kærði brotaþola

Hjalti Úrsus seg­ist hafa gert svo­lítið klókt. „Árni fór niður á lög­reglu­stöð af því að Aron [innsk. blm. mað­ur­inn sem Árni á að hafa ráð­ist á] var búinn að játa að hann hefði komið með hníf­inn; hann hefði bara verið undir svo miklum áhrifum áfengis og eit­ur­lyfja að hann hefði ekki vitað það. Þá kærðum við Aron fyrir ólög­legan vopna­burð. Við kærðum hann líka fyrir rangar sak­ar­giftir af því að hann sagði að Árni hefði komið með hníf­inn. Við kærðum hann fyrir yfir­hylm­ingu sönn­un­ar­gagna, því þrjú vitni sáu hann fara með hníf­inn í burtu. Þannig að þá var hitt málið nátt­úr­lega í gangi og hann var búinn að játa þetta allt fyrir rétti. Þannig að það þurfti ekki að rann­saka þetta. Og þeir rann­sök­uðu aldrei þetta mál á móti honum, því þeir vissu að ef þeir myndu gera það þá myndi hitt málið eyði­leggj­ast. Þannig að lög­reglan bara mat það sem svo að ákæru­valdið: Heyrðu, hérna er komin kæra, við skulum aldrei yfir­heyra. En það stendur í lög­unum að ef þú átt að ákæra mann þá er mögu­leiki á að kostn­að­ur­inn sé svo mik­ill og ákæran svo kostn­að­ar­söm og sé mik­ill vafi á hvort hann verði sak­felldur, þá getir þú sleppt því að ákæra; ef það er mik­ill vafi.

En þegar það liggur fyrir játn­ing þá er eng­inn vafi lengur. Engu að síður var þessu hent út um glugg­ann. Og þeir dæmdu hann aftur. Og fengu Sebast­ian Kunz rétt­ar­meina­fræð­ing, sem er þýsku­mæl­andi, og málið var flutt og svo var verið að þýða þetta yfir á ensku og íslensku. Það komu þarna kaflar sem engin skildi. Þetta er flókin enska. Það vissi eng­inn hvað var að ger­ast.“

Ég fékk pró­fess­ora í íslensku til að lesa þetta og þeir sögðu að þessi texti hafi enga merk­ingu í íslensku og að þetta væri bara þýð­ing­ar­klúður.

Hjalti Úrsus segir að í áliti Kunz hafi sagt að ef Árni hefði staðið fyrir aftan mann­inn, þá hefði hann staðið eitt­hvað til hliðar, „eða vinstra megin eða hægra megin til hliðar ef hann stóð fyrir aftan hann. Ég fékk pró­fess­ora í íslensku til að lesa þetta og þeir sögðu að text­inn hefði enga merk­ingu í íslensku, þetta væri bara þýð­ing­ar­klúður. Og þetta fór inn í rétt­inn. Þrír íslensku­fræð­ingar sögðu: „Þetta gengur ekki; ann­að­hvort er hann fyrir aftan hann eða fyrir framan hann og það þarf að segja frá hvaða horni hann var vinstra megin“.“

Í frétt Vísis kemur fram að þjar­mað hafi verið að rétt­ar­meina­fræð­ingnum við aðal­með­ferð í máli Árna Gils og þar segir meðal ann­ars: „Kunz lagði mat á áverka brota­þola en tvær mats­gerðir rétt­ar­meina­fræð­ings­ins eru á meðal þess sem mest er deilt um í mál­inu. Sú fyrri var ekki talin í sam­ræmi við saka­mála­lög að mati Lands­réttar þar sem rétt­ar­meina­fræð­ingnum hafði láðst að boða mats­fund og fá þar með gögn og sjón­ar­mið fram frá ákærða og verj­anda hans, Oddgeir Ein­ars­syni“. (https://www.visir.is/g/202028351d)

„Sebast­ian tal­aði í um fimm mín­útur, en var svo sagt: „ég er ekki að spyrja að því“ (sagði Oddgeir): Ef hann var beint fyrir aftan hann eins og brota­þoli segir hvernig gat hann gert þetta? Svo sagði hann „it’s impossi­ble“. Það er úti­lokað! Þar með held ég að björn­inn hafi verið unn­inn.“

Hjalti Úrsus telur vera mik­il­vægt að lær­dómur verði dreg­inn af svona mis­tökum.

Látinn

Árni losn­aði úr fang­els­inu og segir Hjalti Úrsus að hann hafi verið alltaf svo skrýt­inn eftir það. „Ég hélt þetta væri and­legt. Hann losn­aði í des­em­ber og í mars/apríl fór ég með hann upp á geð­deild Land­spít­al­ans. Þá hringdi geð­læknir í mig sem sagð­ist hafa mælt súr­efn­is­upp­tök­una í Árna og að það væri eitt­hvað óeðli­legt í honum eftir fang­els­is­vist­ina. Þetta var á laug­ar­degi, en ég fór með hann á föstu­degi. Á sunnu­deg­inum var hringt í mig og mér sagt að sonur minn væri kom­inn á gjör­gæslu­deild og að ekki væri vitað hvort hann myndi lifa af. Það var búið að tengja í hann alla hugs­an­lega víra; nýrna­vél og önd­un­ar­vél og búið að setja gat í bark­ann á honum.“ Hjalti Úrsus segir að það hafi tekið sjö mán­uði fyrir son hans að kom­ast á fætur aftur og að Árni hefði verið í 21 dag á gjör­gæslu­deild.

Hjalti Úrsus er spurður hver sé staðan á Árna.

„Hún er bara mjög góð. Hann er að fara í bíl­prófið núna og við erum að kanna hvort hann geti farið í létta vinnu. Og hann er kom­inn með eigin íbúð og þetta er allt á réttri leið. Hann er búinn að vera á Reykja­lundi í end­ur­hæf­ingu, þannig að þetta er allt á réttri leið finnst manni.“

Eigum við ekki að segja að það sé bjart fram undan?

Fær Árni sál­fræði­þjón­ustu?

„Hann mun örugg­lega þurfa hana. Meðan á þessu öllu stóð var hann meira og minna inni á geð­deild Land­spít­al­ans. Þau unnu krafta­verk. Hann var stundum í mjög langan tíma þar. Þau sáu hve veikur hann var. En núna, sér­stak­lega eftir sýknu­dóm­inn, er engin inn­lögn. Eigum við ekki að segja að það sé bjart fram undan?“

Árni Gils Hjalta­son lést tveimur dögum eftir að við­talið var tekið.

Minning hans lifir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Menning

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Hrósar lýsingum Laxness á íslenskri náttúru og árstíðunum
Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu